Samstarf um endurhæfingarúrræði
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
4. fundur
Mál nr. 2204274, kynning á endurhæfingarúrræði hjá Hugarafli.
Starfsemi Hugarafls er mótuð bæði af einstaklingum með persónulega reynslu af andlegum áskorunum (notendur) og einstaklingum með fagmenntun. Þátttaka í starfsemi Hugarafls er fyrir öll, 18 ára og eldri, sem hafa áhuga á að vinna í geðheilsu sinni á eigin forsendum. Starfsmenn á fjölskyldusviði áttu fund með Hugarafli 18. febrúar 2022 þar sem rætt var um mögulegt samstarf fyrir einstaklinga sem hafa verið lengi á fjárhagsaðstoð. Samtökin hafa sérstaklega horft til þess hóps í starfi sínu. Starfsmenn fjölskyldusviðs telja að fjöldi einstaklinga á fjárhagsaðstoð sem gætu nýtt sér slíka þjónustu séu á bilinu 5-15 talsins. Hugarafl hefur gert samning við önnur sveitarfélög og tekið á móti skjólstæðingum þeirra með sérsniðnum stuðningi gegn því að greitt sé mánaðarlega með hverjum og einum skjólstæðingi. Gera má ráð fyrir að skjólstæðingar þurfi á fjárhagsaðstoð að halda eftir upphaf endurhæfingarinnar í allt að tvo mánuði á meðan unnið er að endurhæfingaráætlun og sótt er um endurhæfingarlífeyri til Tryggingastofnunar. Að sögn Hugarafls hefur reynst vel að koma notendum í virkni og betur út í samfélagið í kjölfar endurhæfingar. Margir þurfi ekki á fjárhagsaðstoð að halda í kjölfarið.
Lagt fram til umræðu.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Fjölskylduráð tekur jákvætt í möguleikann á samstarfi og beinir því til starfsmanna að skoða hvernig úrræðið hefur reynst hjá öðrum sveitarfélögum sem hafa þegar gert samninga við Hugarafl.