Beint í efni

14. (2021. fundur

12.04.2022
Bæjarráð Garðabæjar

14. (2021. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

12.04.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2202275

01

Garðatorg 7 - (sýning) Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita tækni- og umhverfissviði Garðabæjar leyfi til að loka svæði og gera sýningaraðstöðu undir palli á Garðatorgi 7.

Málsnúmer 2203462

02

Seinakur 2 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa Garðabæjar að veita Sindra Hlífari Guðmundssyni, kt. 110886-3309, leyfi til að byggja einbýlishús að Seinakri 2.

Málsnúmer 2110108

03

Opnun tilboða í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í norðurhluta Hnoðraholts.

Eftirfarandi tilboð bárust í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í norðurhluta Hnoðraholts.

Verkís hf. kr. 32.405.950

Hnit verkfræðistofa hf. kr. 31.248.000

Verkfræðistofa Reykjavíkur ehf. kr. 28.458.000

VSB verkfræðistofa ehf. kr. 28.429.542

VSÓ Ráðgjöf ehf. kr. 27.425.700

Strendingur ehf. kr. 26.970.000

Kostnaðaráætlun kr. 32.480.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Strendings ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2204083

04

Undirskriftarlisti íbúa við Garðatorg 7 varðandi bætta hljóðvist á torginu.

Bæjarráð vísar undirskriftalistanum til nánari skoðunar bæjarstjóra.

Málsnúmer 2204081

05

Ársreikningur Heilbrigðiseftirlits 2021.

Lagður fram.

Málsnúmer 2204152

06

Minnisblað verkefnastjóra varðandi framtíðarsýn fyrir áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins, dags. 29.03.22.

Lagt fram.

Málsnúmer 2204148

07

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi viðauka við þjónustusamning við Fjölsmiðjuna, dags. 06.04.22.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við þjónustusamning fyrir Fjölsmiðjuna þar sem gert er ráð fyrir viðbótarframlagi kr. 11.500.000 á ári árin 2022, 2023 og 2024.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að láta gera viðauka við fjárhagsáætlun vegna ársins 2022 og vísar viðauka við samninginn til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.

Málsnúmer 2204170

08

Beiðni Fjölbrautaskólans í Garðabæ um styrk vegna verkefnis að vinna gegn fordómum.

Bæjarráð samþykkir að veita Fjölbrautaskólanum í Garðabæ styrk að fjárhæð kr. 250.000 vegna átaks við að vinna gegn fordómum.

Málsnúmer 2203237

09

Móttaka flóttafólks frá Úkraínu.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði grein fyrir móttöku á flóttafólki til Garðabæjar frá Úkraínu. Fram kom að flóttafólki hafi verið boðið til samkomu sl. föstudags þar sem það var boðið velkomið og farið nánar yfir mál hvers og eins. Ráðinn hefur verið sérstakur verkefnastjóri til að hafa umsjón með málflokknum. Von er á samningsdrögum frá ríkinu vegna málsins.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir undirbúningi að skólaþjónustu fyrir börnin í hópnum.

Málsnúmer 2204118

10

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um fjarskipti, 461. mál., dags. 30.03.22.

Lagt fram.

Málsnúmer 2204175

11

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu um frumvarp í samráðsgátt er varðar fasteignaskráningu, dags. 04.04.22..

Lögð fram.

Málsnúmer 2204181

12

Erindi Pure North varðandi tilraunaverkefni um breytt úrgangsstjórnunarkerfi með Garðabæ.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara og vísar erindinu til kynningar í umhverfisnefnd.

Málsnúmer 2106536

13

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - helstu framkvæmdir.

Bæjarverkfræðingur fór yfir stöðu helstu framkvæmda samkvæmt fjárhagsáætlun 2022.