Opnun tilboða í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í norðurhluta Hnoðraholts.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
14. (2021. fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í norðurhluta Hnoðraholts.
Verkís hf. kr. 32.405.950
Hnit verkfræðistofa hf. kr. 31.248.000
Verkfræðistofa Reykjavíkur ehf. kr. 28.458.000
VSB verkfræðistofa ehf. kr. 28.429.542
VSÓ Ráðgjöf ehf. kr. 27.425.700
Strendingur ehf. kr. 26.970.000
Kostnaðaráætlun kr. 32.480.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Strendings ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
6. (902). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar á norðurhluta Hnoðraholts. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 407/2021. (Mál nr. 2110108)
Bæjarráð Garðabæjar
03
12. (2019). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar á norðurhluta Hnoðraholts. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 407/2021.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
4. fundur
Lögð fram umsókn um veitingu framkvæmdaleyfis fyrir gatnagerð í Hnoðraholti norður. Gögn eru í samræmi við deiliskipulag.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi í samræmi við framlögð gögn sbr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
05
11. (2018). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við gatnagerð á Hnoðraholti.
Loftorka Reykjavík ehf. kr. 1.052.033.490
Óskatak ehf. kr. 1.159.532.350
D. Ing verk ehf. kr. 927.077.700
Háfell ehf. kr. 948.920.450
Snókur verktakar ehf. kr. 892.050.050
Íslenskir aðalverktakar kr. 965.690.544
Grafa og grjót ehf. kr. 1.057.146.200
Kostnaðaráætlun kr. 1.107.797.895
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Snóks verktaka ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.