11. (2018). fundur
11. (2018). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
22.03.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Grjóti, Hausastaðakot - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hjalta Harðarsyni, kt. 190351-4169, leyfi til að skrá og leggja fram reyndarteikningar fyrir Grjóta, í Garðahverfi.
02
Maríugata 7 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Búseta húsnæðissamvinnufélagi, kt. 561184-0709, leyfi til að breyta þakformi á bílgeymslu fjölbýlishússins við Maríugötu 7.
03
Hraungata 10 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hrafni Guðmundssyni, kt. 311283-2199, leyfi til breytinga á lagnarými og óverulegum útlitsbreytingum einbýlishússins við Hraungötu 10.
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðarinnar við Hraunhóla 8.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir skiptingu lóðarinnar við Hraunhóla 8 í tvær lóðir. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
05
Opnun tilboða í verkið sláttur og hirðing í Garðabæ.
Eftirfarandi tilboð barst í verkið „Grassláttur og hirðing í Garðabæ 2022-2024“.
Svæði 1 Svæði 2 Svæði 3
Garðlist ehf. kr. 23.407.447 kr. 13.839.013 kr. 19.347.769
Kostnaðaráætlun kr. 28.495.190 kr. 16.942.046 kr. 20.324.928
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Garðlistar ehf. ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
06
Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í 1. áfanga Hnoðraholts norður.
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við gatnagerð á Hnoðraholti.
Loftorka Reykjavík ehf. kr. 1.052.033.490
Óskatak ehf. kr. 1.159.532.350
D. Ing verk ehf. kr. 927.077.700
Háfell ehf. kr. 948.920.450
Snókur verktakar ehf. kr. 892.050.050
Íslenskir aðalverktakar kr. 965.690.544
Grafa og grjót ehf. kr. 1.057.146.200
Kostnaðaráætlun kr. 1.107.797.895
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Snóks verktaka ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
07
Bréf Kópavogsbæjar varðandi deiliskipulag Vatnsendahæðar í Vatnsendahvarfi, dags. 10.03.22.
Bæjarráð vísaði bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
08
Tilkynning frá Hafnarfirði varðandi auglýsingu á tillögu um breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna breyttrar landnotkunar o.fl., dags. 15.03.22.
Bæjarráð vísaði bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
09
Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi ágang máva í Sjálandshverfi.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að leita eftir heimild umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra fyrir undanþágu til að grípa til aðgerðar til að fækka mávum í friðlandi Gálgahrauns.
10
Afgreiðsla skólanefndar varðandi úthlutun styrkja úr þróunarsjóði grunnskóla.
Lögð fram afgreiðsla skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla 2022. Alls bárust 22 umsóknir. Skólanefnd leggur til við bæjarráð að úthlutað verði kr. 28.000.000 til 18 verkefna. Bæjarráð staðfestir tillögur skólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð grunnskóla.
11
Erindi Hestamannafélagsins Spretts um niðurfellingu fasteignagjalda 2022.
Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að fjárhæð kr. 2.269.665 til greiðslu fasteignagjalda árið 2022.
13
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi viðauka við samkomulag um framkvæmdir á skíðasvæðum, dags. 14.03.22.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við samkomulag um framkvæmdir á skíðasvæðum sem gerir m.a. ráð fyrir kaupum á nýrri stólalyftu í Skálafelli. Bæjarstjóra er falið ótakmarkað umboð til undirritunar viðaukans.
Fylgiskjöl
14
Bréf UMF-Stjörnunnar varðandi aukinn fjölda sumarstarfsmanna, dags. 17.03.22.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra. Upplýst er á fundinum að fjöldi umsókna um sumarstörf er mun minni en í fyrra.
Fylgiskjöl
15
Bréf UMF-Stjörnunnar varðandi FIFA vottun Stjörnuvallar og Miðgarðs, dags. 17.03.22.
Bæjarverkfræðingur upplýsti að hluti af skilum Miðgarðs til bæjarins er að fyrir liggi FIFA Pro vottun. Bæjarráð samþykkir að bærinn hlutist um að Stjörnuvöllur fái FIFA Pro vottun.
Fylgiskjöl
17