Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðarinnar við Hraunhóla 8.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
11. (2018). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir skiptingu lóðarinnar við Hraunhóla 8 í tvær lóðir. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Bæjarráð Garðabæjar
02
46. (2004). fundur
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu á þessu stigi til bæjarstjóra vegna samkomulags við lóðarhafa um greiðslu byggingarréttargjalds og gatnagerðargjalds.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags lóðarinnar Hraunhólar 8 að lokinni grenndarkynningu.
Vegna mistaka voru ný lóðarmörk ekki sýnd eins og lóðarhafi hafði óskað eftir. Gerði umsækjandi því athugsemd við grenndarkynninguna.
Þar sem að lagfæring lóðarmarka varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins samþykkir skipulagsnefnd lagfæringu á tillögunni hvað varðar lóðarmörk og lögun byggingarreits.
Skiplagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
13. (891). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra í tilefni umsóknar um að lóðinni við Hraunhóla 8 verði skipt í tvær einbýlishúsalóðir. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum allra húsa við Hraunhóla og Lynghóla." (Mál nr. 1912107)
Bæjarráð Garðabæjar
05
38. (1996). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra í tilefni umsóknar um að lóðinni við Hraunhóla 8 verði skipt í tvær einbýlishúsalóðir. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum allra húsa við Hraunhóla og Lynghóla.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir því að lóðin Hraunhólar 8 skiptist í tvær einbýlishúsalóðir.
Með vísan til ríkjandi byggðarmynsturs og skiptingar lóðar númer 12 við samþykkt deiliskipulags Hraunsholts eystra metur skipulagsnefnd tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga vísar til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum allra húsa við Hraunhóla og Lynghóla.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
1. fundur
Deiliskipulag lóðarinnar og annarra lóða sunnan Hraunhóla ræddar. Skipulagsnefnd telur skynsamlegra að skoða nánar möguleika á því að breyta deiliskipulagi lóðanna þannig að þar mætti reisa íbúðarhús með fleiri íbúðum sem gætu verið minni og af fjölbreyttari gerð. Ennfremur þarf að huga að áhrifum fyrirhugaðrar stofnbrautar milli Engidals og Reykjanesbrautar á byggð við Hraunhóla. Málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs til skoðunar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
12. fundur
Skipulagsstjóri leggur til við skipulagsnefnd að unnin verði tillaga að deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir skiptingu lóða við Hraunhóla að sunnanverðu með líkum hætti og gert var við Hraunhóla nr.12.
Skipulagsnefnd felur skipulagstjóra að vinna tillögu sem lögð verði fram í skipulagsnefnd.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
4. fundur
Lögð fram tillaga að skiptingu lóðarinnar í tvær einbýlishúsalóðir.
Skipulagsnefnd hafnar tillögunni að svo stöddu og vísar því til skipulagsstjóra að deiliskipulag við Hraunhóla verði skoðað heildstætt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
2. fundur
Vísað til frekar skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
17. fundur
Lögð fram tillaga lóðarhafa Hraunhóla 8 sem gerir ráð fyrir skiptingu hennar í tvær einbýlishúsalóðir. Ekki eru lagðar til frekari breytingar á deiliskipulaginu sem er deiliskipulag Hraunsholts eystra.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.