Beint í efni

46. (2004). fundur

30.11.2021
Bæjarráð Garðabæjar

46. (2004). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

30.11.2021

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Lúðvík Hjalti Jónsson - fjármálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

COVID-19 - Staða mála. (JVM mætir á fundinn)

1. 2001444 - COVID-19 - Staða mála. (JVM mætir á fundinn)

Á fund bæjarráðs mætti Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu. Jón Viðar fór almennt yfir stöðuna og lagði fram upplýsingar um þróunina í faraldrinum sem staðið hefur í 642 daga. Hjá sveitarfélögunum hefur verið lögð áhersla að halda órofinni starfseminni sem almennt hefur gengið mjög vel. Jón Viðar fór yfir þróunina í Garðabæ frá júlí 2021 og stöðuna almennt í leikskólum og grunnskólum og upplýsti um skiptingu smita hjá einstaklingum eftir aldurshópum.

Jón Viðar vakti athygli á vefsíðu sem RÚV hefur opnað undir heitinu íslenska kovidkortið en þar eru upplýsingar um stöðu mála uppfærðar daglega. Jón Viðar kom inn á umræðu og aðgerðir vegna Ómíkron afbrigðisins.

Björg Fenger, bæjarfulltrúi var á fjarfund bæjarráðs undir dagskráliðum 1 og 2.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2106536

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 (2022-2025).

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum um álagningu fasteignaskatta og þjónustugjalda sem verða til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar 2. desember nk. ásamt tillögum um breytingar milli umræðna.

Lagt fram yfirlit yfir mál sem vísað hefur verið til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Málsnúmer 2111068

03

Miðhraun 4 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RA ehf., kt. 590404-2410, leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi atvinnuhúsnæðisins við Miðhraun 4.

Málsnúmer 2010451

04

Kirkjulundur 17 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Fjölráði ehf., kt. 510602-2930, leyfi fyrir uppsetningu reykháfs við atvinnuhúsnæðið við Kirkjulund 17.

Málsnúmer 2111168

05

Þrastarlundur 4 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir að veita Ágústi Rafni Ingólfssyni, kt. 070241-2189, leyfi fyrir byggingu sólskála við einbýlishúsið við Þrastarlund 4.

Málsnúmer 1912107

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðarinnar við Hraunhóla 8.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu á þessu stigi til bæjarstjóra vegna samkomulags við lóðarhafa um greiðslu byggingarréttargjalds og gatnagerðargjalds.

Málsnúmer 1907083

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna Víkurgötu 19.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðarhafa að Víkurgötu 19 um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholt vegna lóðarinnar við Víkurgötu 19. Í umsókninni var farið fram á stækkun byggingarreits vegna útskots fyrir svalir.

Málsnúmer 2108232

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 22.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 22 sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til suðaustur. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. laganna og bárust engar athugasemdir.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2109133

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 6.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 6 sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til norðausturs. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. laganna og bárust engar athugasemdir.

Málsnúmer 2102544

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi vegna uppsetningar aðkomutákns við mörk Garðabæjar og Hafnarfjarðar við Reykjanesbraut.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að veita leyfi til framkvæmda fyrir uppsetningu á aðkomutákni við mörk Garðabæjar og Hafnarfjarðar við Reykjanesbraut.

Málsnúmer 2108621

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna göngustígs o.fl. við Mosagötu.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir breytingu á göngustíg, leiksvæði o.fl. á svæði við Mosagötu.

Málsnúmer 2110336

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulegt frávik frá deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Grímsgötu 2-4.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að aðeins ein íbúð verði á aðkomuhæð í stað tveggja en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2111211

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tilkynningu um breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025.

Lögð fram.

Málsnúmer 2105498

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna íbúðarbyggðar við Þorraholt.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna íbúðarhúsalóða við Þorraholt. Fallið er frá gerð lýsingar og forkynningar samkvæmt heimild í 2. ml. 1. mgr. 43. gr. og 3. ml. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga.

Málsnúmer 2110329

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar vegna lóðarinnar við Iðnbúð 6.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar í tilefni umsóknar lóðarhafa að Iðnbúð 6 um stækkun byggingarreits. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Iðnbúðar 4 og 8 og Gilsbúðar 3, 5 og 7.

Málsnúmer 2103060

16

Umsóknir ráðgjafa vegna vinnu við gerð rammahluta aðalskipulags og deiliskipulags fyrir þróunarsvæði A.

Upplýst var að alls bárust umsóknir frá fimm ráðgjafateymum vegna vinnu við gerð rammahluta aðalskipulags og deiliskipulag fyrir þróunarsvæði A.

Yrki- arkitektar, VSÓ - ráðgjöf, VSB, verkfræðistofa, Felixx

Arkþing/Nordic og Efla.

Landmótun, HJARK Hulda Jóns Arkitektúr, SaStudio, Verkfræðastofa Bjarna Viðarssonar, Teknik

Verkís

Mannvit, Arkís, Landslag.

Við mat á ráðgjöfum verður m.a. horft til fjölbreytileika teyma, reynslu við skipulagsgerð og samgöngulausnir sem og reynslu við verkefnastjórnun og teymisvinnu í umfangsmiklum verkefnum. Lagt verður mat á innsendar umsóknir sem gildir 80% og kynningu ráðgjafa sem gildir 20% en í kynningunni hafa ráðgjafar tök á að segja frá nálgun sinni á verkefninu og svara spurningum matshóps. Í matshóp sitja Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri, Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri, Sólveig H. Jóhannsdóttir, skipulagsfræðingur og Svanhildur Gunnlaugsdóttir, landslagsarkitekt.

Bæjarráð samþykkir skipan matshóps.

Tillaga um val á ráðgjafateymi verður lögð fram til afgreiðslu í bæjarráði.

Málsnúmer 2105271

17

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi ákvörðun bæjarstjórnar um deiliskipulag norðurhluta Hnoðraholts.

Í úrskurðarorði kemur fram að hafnað er kröfum kærenda um ógildingu ákvörðunar bæjarstjórnar Garðabæjar um nýtt deiliskipulag fyrir norðurhluta Hnoðraholts.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2111398

18

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Lionsklúbbs Álftaness um tímabundið áfengisleyfi í skötuveislu í íþróttamiðstöð Álftaness.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2111343

19

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar VH veitinga ehf. um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir veitingastað GKG.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2111360

20

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UHS ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað að Urriðaholtsstræti 2.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2111137

21

Endurnýjun samstarfssamnings við Hjálparsveit skáta.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að endurnýjun samnings um stuðning við Hjálparsveit skáta til að gilda árin 2022-2024.

Bæjarráð samþykkir samningsdrögin og vísar þeim til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Málsnúmer 2109340

22

Opnun tilboða í þjónustu og viðhald gatnalýsingar í Garðabæ og Hafnarfirði.

Eftirfarandi tilboð bárust í þjónustu og viðhald gatnalýsingar og hafa tilboð verið yfirfarin.

Bergraf kr. 277.308.424

TG Raf kr. 215.344.734

Orkuvirki kr. 556.987.375

Hlíðarhagi kr. 256.149.740

Rafall kr. 213.730.147

Raflína kr. 197.037.150

Tengill kr. 224.631.955

Kostnaðaráætlun kr. 328.809.064

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Raflínu ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2105046

23

Niðurstöður greiningar á kostnaðarþróun Garðabæjar í þjónustu við fatlað fólk árin 2018-2020.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir undirbúningi og aðdraganda málsins og upplýsti að verulega halli á að málaflokkurinn hafi verið fjármagnaður við yfirfærsluna til sveitarfélaganna. Bæjarstjóri sagði að gerðar hafa verið athugasemdir við að ekki er tekið tillit til kostnaðar vegna yfirstjórnar og þá var bent á að verulegar tafir geta verið á framkvæmd CIS mats.

Þorbjörg Kolbeinsdóttir, deildarstjóri bókhalds og Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerðu grein fyrir vinnu við útvegum upplýsinga og útreikninga vegna kostnaðarþróunar Garðabæjar í þjónustu við fatlað fólk.

Niðurstöður kostnaðargreiningar fyrir hvert einstakt á er eftirfarandi

Fjárvöntun 2018 kr. 448.098.233

Fjárvöntun 2019 kr. 482.866.053

Fjárvöntun 2020 kr. 581.885.953

Niðurstöðunum hefur verið skilað til starfshóps á vegum félagsmálaráðuneytis sem vinnur að greiningu á kostnaðarþróun sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk og hefur það hlutverk að vinna samantekt um raunkostað sveitarfélaga árin 2018-2020.

Bæjarráð vísar málinu til kynningar í fjölskylduráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.

Málsnúmer 2111406

24

Minnisblað - Tekjutenging afslátta af leikskólagjöldum

Á fund bæjarráðs kom Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri og gerði grein fyrir minnisblaði um tekjutengingu afslátta af leikskólagjöldum.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram í bæjarráði tillögu um ákvörðun og afgreiðslu málsins.