Beint í efni

Hönnun - Útboð - Þjónusta við gatnalýsingu í Garðabæ

Málsnúmer 2109340

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (897). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

49. (2007). fundur

Lögð fram að nýju yfirfarin tilboð sem bárust í þjónustu og viðhald gatnalýsingar.

Bergraf kr. 277.308.424
TG Raf kr. 215.344.734
Orkuvirki kr. 556.987.375
Hlíðarhagi kr. 256.149.740
Rafall kr. 213.730.147
Raflína kr. 197.037.150
Tengill kr. 224.631.955

Kostnaðaráætlun kr. 328.809.064

Á fundinum var upplýst að komið hefur í ljós að lægstbjóðandi uppfyllir ekki skilmála útboðsins og verður því ekki samið við hann um verkefnið.


Bæjarráð samþykkir að taka tilboði næst lægstbjóðanda Rafals ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð Garðabæjar

03

46. (2004). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í þjónustu og viðhald gatnalýsingar og hafa tilboð verið yfirfarin.

Bergraf kr. 277.308.424
TG Raf kr. 215.344.734
Orkuvirki kr. 556.987.375
Hlíðarhagi kr. 256.149.740
Rafall kr. 213.730.147
Raflína kr. 197.037.150
Tengill kr. 224.631.955

Kostnaðaráætlun kr. 328.809.064

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Raflínu ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð Garðabæjar

04

38. (1996). fundur

Lögð fram tillaga að útboðs- og verklýsingu vegna þjónustu og viðhalds gatnalýsingar. Um er að ræða sameiginlegt útboð Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar og Garðabæjar í þjónustu og viðhald gatnalýsingar í Garðabæ og Hafnarfirði.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti þátttöku í sameiginlegu útboði ofangreindra aðila á grundvelli fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingar.