Beint í efni

1. (897). fundur

20.01.2022
Bæjarstjórn Garðabæjar

1. (897). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

20.01.2022

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Gunnar Einarsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 16. desember 2021 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2112023F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 21/12 ´21.

Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2201010F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 11/1 ´22.

Gunnar Einarsson, ræddi 19. tl., tillögu um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum og lagði til eftirfarandi leiðréttingu á fundargerð.

Eftirfarandi hluti fundargerðarinnar falli niður.

„Bæjarráð samþykkir að settar verði reglur um tekjutengingu afsláttar af ofangreindum gjöldum sem gildi frá og með 1. mars 2022. Í tilvikum systkinaafslátta verði afsláttur fyrir fyrsta systkin tekjutengdur en gildandi gjaldskrá án tekjutengingar haldi sér þegar um fleiri systkin er að ræða.“

Í fundargerðina verði fært í þess stað.

„Bæjarráð samþykkir að settar verði reglur um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum dagforeldra sem gildi frá og með 1. mars 2022. Gildandi afslættir samkvæmt gjaldskrám haldast óbreyttir.“

Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., tillögu um nafn á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri og vakti athygli á nafni hússins sem er Miðgarður. Almar lýsti ánægju með nafnið og óskaði bæjarbúum til hamingju með það.

Fundargerðin sem er 24 tl., er samþykkt með ofangreindri breytingu á 19. tl. fundargerðrinnar.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2201026F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 18/1 ´22.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 9. tl., afgreiðslu leikskólanefndar varðandi reglur um sérverkefnasjóð leikskóla.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 8. tl., tillögu Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ.

Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 8. tl., tillögu Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ., 6. tl., reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum og 9. tl., afgreiðslu leikskólanefndar varðandi reglur um sérverkefnasjóð leikskóla.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., kynningu frá Landsneti - matsáætlun fyrir Lyklafellslínu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., tillögu Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 8. tl., tillögu Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 8. tl., tillögu Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., kynningu frá Landsneti - matsáætlun fyrir Lyklafellslínu, 8. tl., tillögu Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ og 9. tl., afgreiðslu leikskólanefndar varðandi reglur um sérverkefnasjóð leikskóla.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju 8. tl., tillögu Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., tillögu Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 8. tl., tillögu Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ.

Ingvar Arnarson, ræddi 8. tl., tillögu Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 8. tl., tillögu Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ og 9. tl., afgreiðslu leikskólanefndar varðandi reglur um sérverkefnasjóð leikskóla.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., tillögu Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ.

Gunnar Einarsson, ræddi 8. tl., tillögu Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ.

Fundargerðin sem er 9 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2112016F

04

Fundargerð fjölskylduráðs frá 15/12 ´21.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar, 2. tl., niðurstöður starfshóps um kostnaðarþróun hjá sveitarfélögum á þjónustu við fatlað fólk, 3. tl., breytt skipulag barnaverndar og 4. tl., tillögu Garðabæjarlistans um endurskoðun á úthlutunarreglum félagslegs leiguhúsnæðis.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar og 4. tl., tillögu Garðabæjarlistans um endurskoðun á úthlutunarreglum félagslegs leiguhúsnæðis.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi stöðu mála varðandi byggingu búsetukjarna.

Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 1. tl., endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar og 4. tl., tillögu Garðabæjarlistans um endurskoðun á úthlutunarreglum félagslegs leiguhúsnæðis. Þá ræddi Almar stöðu mála varðandi byggingu búsetukjarna.

Gunnar Einarsson, ræddi stöðu mála varðandi byggingu búsetukjarna.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2112015F

05

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 14/12 ´21.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., kjör íþróttamanns Garðabæjar og óskaði fyrir hönd bæjarstjórnar íþróttamönnum Garðabæjar þeim Kolbrúnu Þöll Þorradóttur, hópfimleikakonu í Stjörnunni og Helga Laxdal Aðalgeirssyni, hópfimleikamanni í Stjörnunni til hamingju með viðurkenningarnar.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201011F

06

Fundargerð leikskólanefndar frá 12/1 ´22.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., ályktun bæjarráðs Árborgar um gjaldfrjálsan leikskóla og 6. tl., skólamat í leikskólum.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201034F

07

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 17/1 ´22.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., endurskoðun reglna um hvatningasjóð ungra listamanna og hönnuða, 3. tl., tillögur að ljósmynda-, skjala- og minjasafni, 4. tl., menningardagskrá vetur/vor 2022, 5. tl., menningardagskrá fyrir skólahópa og 6. tl., hugmynd að minnisvarða um Jón Sveinsson og starfsemina í Stálvík við Arnarvog.

Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., tillögur að ljósmynda skjalasafni og minjasafni, 4. tl., menningardagskrá vetur/vor 2022 og 6. tl., hugmynd um minnisvarða um Jón Sveinsson og starfsemina í Stálvík við Arnarvog.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju tillögur að ljósmynda-, skjala- og minjasafni.

Björg Fenger, ræddi 2. tl., endurskoðun reglna um hvatningasjóð ungra listamanna og hönnuða.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201001F

08

Fundargerð skipulagsnefndar frá 6/1 ´22.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 12. tl., deiliskipulag Víðiholts á Álftanesi og lagði til að fyrirhuguðum fundi með íbúum 27. janúar nk. verði frestað fram í febrúar þegar nýjar reglur um samkomutakmarkanir hafa tekið gildi. Þá ræddi Sigurður 11. tl., stofn- og samgöngustígur á Arnarnesi.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu um frestun fundarins.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2111044F

09

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 12/1 ´22.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., kórónuveiran - staða mála og þakkaði starfsmönnum skólanna fyrir þeirra störf við þessar erfiðu aðstæður. Þá ræddi Sigríður Hulda 4. tl., útboð á skólamat og 7. tl., endurskoðun skólastefnu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., útboð á skólamat.

Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., kórónuveiran - staða mála og tók undir þakkir til starfsmanna skólanna fyrir þeirra störf við þessar erfiðu aðstæður.

Ingvar lagði fram eftirfarandi bókun.

„Það hefur verið mikið álag á starfsmenn grunn- og leikskóla Garðabæjar, starfsmenn verið í framlínu þegar kemur að covid faraldrinum og staðið vaktina með prýði. Á tyllidögum hefur þeim verið þakkað fyrir góð störf. Nú á dögunum var grunnskólakennurum boðin samningur sem að okkar mati var langt frá því sem kennarar í Garðabæ eiga skilið. Sá samningur var felldur með miklum meirihluta atkvæða grunnskólakennara. Í kjölfarið kom formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga fram í fjölmiðlum og talaði niður til kennara, það finnst okkur miður. Við viljum hvetja fólk sem er í forsvari fyrir okkur í bæjarstjórn að vanda málflutning sinn og koma fram af sanngirni. Við í Garðabæ getum gert betur gagnvart okkar fólki en það sem boðið var í þessum samningi.“

Gunnar Einarsson, ræddi 4. tl., útboð á skólamat.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., útboð á skólamat.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101346

10

Fundargerðir SSH frá 20/12 og 29/12 ´21.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2201281

11

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 12/1 ´22.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., kynningu á hugmyndum um stólalyftu í Skálafelli og 2. tl., drög að breytingum á samstarfssamningi um rekstur skíðasvæðanna.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201292

12

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 14/1 ´22.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., yfirferð lögmanna á dómi héraðsdóms í máli IAV gegn Sorpu.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., yfirferð lögmanna á dómi héraðsdóms í máli IAV gegn Sorpu og 2. tl., húsnæðismál skrifstofu Sorpu og Góða hirðisins.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ítrekaði beiðni um að fundargerðir byggðasamlaganna verði lagðar fram til umfjöllunar í bæjarráði.

Sigurður Guðmundson kvaddi sér hljóðs og kynnti hugmynd um að selja Sorpu.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi málefni Sorpu og mikilvægi þess að vinna að þróun á flokkun sorps.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., yfirferð lögmanna á dómi héraðsdóms í máli IAV gegn Sorpu og útboðsmál almennt.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi útboðsmál Sorpu.

Gunnar Einarsson, ræddi hugmynd um að selja Sorpu.

Almar Guðmundsson, ræddi almennt um málefni Sorpu bs.

Gunnar Einarsson, ræddi málefni Sorpu bs.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi almennt um málefni Sorpu bs.

Ingvar Arnarson, ræddi málefni Sorpu bs.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi málefni Sorpu bs.

Jóna Sæmundsdóttir ræddi málefni Sorpu bs.

Ingvar Arnarson, ræddi málefni Sorpu bs. og Góða hirðisins.


Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102176

13

Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 26/11 og 20/12 ´21.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., fg frá 20/12, staðan á úttekt GAJA og næstu skref og 2. tl., staða á verkefni með Ými Technologies.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., fg. 20/12 stöðu GAJA, næstu skref og almennt um málefni Sorpu.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2101300

14

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 3/12 ´21.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., fjárhagsstöðu Strætó bs. 4. tl., Klappir - nýtt rafrænt greiðslukerfi Strætó, 6. tl., borgalínuverkefnið.

Björg Fenger, ræddi 6. tl., borgarlínuverkefnið.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201214

15

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 7/1 ´22.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., innbrot í tölvukerfi Strætó og 2. tl., fjármál Strætó.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2112388

16

Beiðni Strætó bs. um ábyrgð vegna lántöku.

Gunnar Einarsson gerði grein fyrir málinu og upplýsti að samþykki eigendafundar Strætó bs. liggur fyrir vegna lántökunnar.

„Bæjarstjórn samþykkir hér með að á fundi bæjarstjórnar að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68 gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns Strætó bs., kt. 500501-3160 hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 400.000.000 með lokagjalddaga 15. ágúst 2029, í samræmi við skilmála lánasamnings sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitastjórnin hefur kynnt sér. Nær samþykki sveitarstjórna jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir. Þá hefur sveitarstjórnin kynnt sér gildandi græna umgjörð Lánasjóðs sveitarfélaga og samþykkir að ráðstöfun lánsins falli að henni.

Er lánið tekið til fjárfestingar í rafvögnum til endurnýjunar í flota Strætó bs með það að markmiði að lækka kolefnisspor Strætó, sem felur í sér að vera verkefnis sem hefur almenna efnahagslega þýðingu sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaganna nr. 150/2006.

Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélagsins að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“

„Bæjarstjórn samþykkir að verða við beiðni stjórnar Strætó bs. að veita Strætó bs. einfalda ábyrgð vegna lántöku að fjárhæð kr. 300.000.000 hjá Arion banka.“

Málsnúmer 2009461

17

Samþykkt fyrir sameiginlegt heilbrigðiseftirlit og kosning fulltrúa í heilbrigðisnefnd.

Bæjarstjórn samþykkir að kjósa eftirfarandi einstaklinga sem fulltrúa Garðabæjar í heilbrigðisnefnd fyrir sameiginlegt svæði Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Kópavogs, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar.

Ingibjörg Hauksdóttir, aðalmaður og Jón Bjarni Þorsteinsson, varamaður.

Þau voru aðal- og varafulltrúi í heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.

Málsnúmer 2111406

18

Reglur um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum.

Gunnar Einarsson, fylgdi úr hlaði reglum um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum og lagði til að reglurnar verði samþykktar.

Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls og ræddi orðalag í 4. tl. og lagði til að afsláttarprósenta hækki úr 40% í 50%.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Gunnar Einarsson tók til máls og lagði til að fella út eftirfarandi setningu í 4. tl.

„Ekki er hægt að fá hvoru tveggja systkinaafslátt og viðbótarafslátt.“

Tillaga um að hækka afsláttarprósentu úr 40% í 50% var felld með átta atkvæðum (BF,AHJ,SHJ,SG,GVG,JS,AG,GE) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).

Reglurnar samþykktar með ofangreindri breytingartillögu á 4.tl.

Málsnúmer 2101319

19

Skrá yfir þau störf sem heimild til verkfalls nær ekki til.

Bæjarstjórn samþykkir lista yfir störf sem falla undir undanþáguheimild vegna töku verkfalls samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna.