Fundargerð bæjarráðs frá 11/1 ´22.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (897). fundur
Gunnar Einarsson, ræddi 19. tl., tillögu um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum og lagði til eftirfarandi leiðréttingu á fundargerð.
Eftirfarandi hluti fundargerðarinnar falli niður.
„Bæjarráð samþykkir að settar verði reglur um tekjutengingu afsláttar af ofangreindum gjöldum sem gildi frá og með 1. mars 2022. Í tilvikum systkinaafslátta verði afsláttur fyrir fyrsta systkin tekjutengdur en gildandi gjaldskrá án tekjutengingar haldi sér þegar um fleiri systkin er að ræða.“
Í fundargerðina verði fært í þess stað.
„Bæjarráð samþykkir að settar verði reglur um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum dagforeldra sem gildi frá og með 1. mars 2022. Gildandi afslættir samkvæmt gjaldskrám haldast óbreyttir.“
Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., tillögu um nafn á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri og vakti athygli á nafni hússins sem er Miðgarður. Almar lýsti ánægju með nafnið og óskaði bæjarbúum til hamingju með það.
Fundargerðin sem er 24 tl., er samþykkt með ofangreindri breytingu á 19. tl. fundargerðrinnar.
Afgreiðsla mála.