Reglur um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (897). fundur
Gunnar Einarsson, fylgdi úr hlaði reglum um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum og lagði til að reglurnar verði samþykktar.
Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls og ræddi orðalag í 4. tl. og lagði til að afsláttarprósenta hækki úr 40% í 50%.
Ingvar Arnarson, tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Gunnar Einarsson tók til máls og lagði til að fella út eftirfarandi setningu í 4. tl.
„Ekki er hægt að fá hvoru tveggja systkinaafslátt og viðbótarafslátt.“
Tillaga um að hækka afsláttarprósentu úr 40% í 50% var felld með átta atkvæðum (BF,AHJ,SHJ,SG,GVG,JS,AG,GE) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).
Reglurnar samþykktar með ofangreindri breytingartillögu á 4.tl.
Bæjarráð Garðabæjar
02
1. (2008). fundur
Lagt fram minnisblað um tekjutengingu afslátta af leikskólagjöldum og afsláttum af gjöldum frístundaheimila.
Bæjarráð samþykkir að settar verði reglur um tekjutengingu afslátta af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum dagforeldra sem gildi frá og með 1. mars 2022. Gildandi afslættir samkvæmt gjaldskrám haldast óbreyttir.“[Texta í fundargerð breytt á fundi bæjarstjórnar 20.01.2022]
Viðmiðunartekjur skulu vera.
Hjón
Mánaðartekjur allt að kr. 600.000.
Einstaklingar allt að kr. 416.000.
Miða skal við meðaltekjur samkvæmt staðgreiðsluskrá fyrir mánuðina október, nóvember og desember 2021.
Reglur um tekjutengingu afslátta skulu endurskoðað við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Bæjarráð vísar reglum um tekjutengingu afslátta af leikskólagjöldum og gjöldum á frístundaheimilum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
46. (2004). fundur
Á fund bæjarráðs kom Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri og gerði grein fyrir minnisblaði um tekjutengingu afslátta af leikskólagjöldum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram í bæjarráði tillögu um ákvörðun og afgreiðslu málsins.