1. (2008). fundur
1. (2008). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
11.01.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2111123
01
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins varðandi staðfestingu á breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar, dags. 04.01.22.
Í bréfinu kemur fram að ráðuneytið hefur staðfest breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar þar sem meðal annars kemur fram heimild til fjarfunda í bæjarstjórn, bæjarráði og nefndum bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2112283
02
Tillaga um úttekt á innleiðingu nýs greiðslukerfis Strætó bs.
Á fundi bæjarráðs voru Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., Daði Áslaugarson, deildarstjóri upplýsingartækni hjá Strætó bs. og Gunnar Valur Gíslason, fulltrúi Garðabæjar í stjórn Strætó bs. Gerðu þeir grein fyrir innleiðingu á nýju greiðslukerfi Strætó bs. ásamt útfærslu á aðgerðum til úrbóta fyrir þann hóp viðskiptamanna sem hefur verið í erfiðleikum með að hagnýta sér kerfið.
Umræða var um málið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2112388
03
Bókun í fundargerð Strætó bs. frá 29.10.21 varðandi heimild til lántöku.
Í bókuninni kemur fram að stjórn Strætó bs. og eigendafundur Strætó bs. hafa samþykkt að taka lán að fjárhæð kr. 400.000.000 hjá Lánasjóði sveitarfélaga og að fjárhæð kr. 300.000.000 hjá Arion banka.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2110140
04
Kinnargata 20 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir að veita Hótel Keili ehf., kt. 701288-1229, leyfi til að byggja einbýlishús að Kinnargötu 20.
Málsnúmer 2107310
05
Tillaga um nafn á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.
Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 20. júlí 2021 var samþykkt að efna til opinnar samkeppni um nafn á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri. Alls bárust um 250 tillögur um nafn á húsinu. Dómnefnd var skipuð, Almari Guðmundsyni, Björg Fenger og Baldri Ó Svavarssyni, fulltrúum bæjarstjórnar í undirbúningsnefnd um byggingu hússins.
Almar Guðmundsson, gerði grein fyrir niðurstöðum dómnefndar og rökstuðningi um nafn fyrir nýtt fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri ásamt rökstuðningi.
Bæjarráð samþykkir niðurstöður dómnefndar og verður nafn hússins tilkynnt með frétt á vef bæjarins.
Málsnúmer 2109356
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 4.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna lóðarinnar við Kauptún 4. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar um 16.866 m2 eða úr 56.403 m2 í 73.269 m2. Hámarks byggingarmagn eykst úr 22.500 m2 í 35.000 m2
Málsnúmer 1604105
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar við Hraunhóla 14 á skipulagsuppdrætti en lóðin er eignarlóð. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum við Hraunhóla.
Málsnúmer 2112037
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar vegna skiptingar lóðar á svæðinu fyrir dælu- og dreifistöð í tvær lóðir. Samkvæmt heimild í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga er fallið frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins.
Málsnúmer 2111173
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Smárahvammsvegar.
Lögð fram.
Málsnúmer 2111423
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025. (Snókalönd)
Lögð fram.
Málsnúmer 2111422
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar. (Sléttuhlíð)
Lögð fram.
Málsnúmer 2201071
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna breytingar á skilgreiningu á stofnstíg. Tillagan gerir ráð fyrir að stígur meðfram Hafnarfjarðarvegi frá Arnarneslæk, um væntanleg undirgögn á Arnarneshæð og að Kópavogslæk verði skilgreindur sem samgöngustígur með aðgreindri umferð hjólreiða og gangandi vegfarenda. Breidd samgöngustígs getur verið allt að 2x3 metrar með raflýsingu.
Málsnúmer 2109174
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá skipulagi Akrahverfis vegna umsóknar um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis fyrir einbýlishús að Sunnakri 4 þó að tröppur við húsið fari út fyrir byggingarreit. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1801192
14
Uppgjör og frágangur samkvæmt kaupsamningi Ríkissjóðs Íslands og Garðabæjar um jörðina Vífilsstaðir.
Lögð fram tillaga um uppgjör og frágang samkvæmt kaupsamningi Ríkissjós Íslands og Garðabæjar um jörðina Vífilsstaðir.
Kaupverð jarðarinnar var kr. 588.600.000 og greiddi Garðabær við undirritun kaupsamnings kr. 99.300.000.
Kaupsamningsgreiðsla að fjárhæð 211.800.00 var á gjaldaga í apríl 2020 en veittur var greiðslufrestur, fyrst til ársins 2021 og síðar til 2022. Gert er ráð fyrir að greiðslan verði innt af hendi í janúar 2022.
Þá verður gefið út skuldabréf að fjárhæð kr. 304.044.230 til átta ára vegna greiðslu samkvæmt c-lið 6. gr. kaupsamnings.
Gerðir verða lóðarleigusamningar vegna lóða fasteigna í eigu ríkisjóðs á Vífilsstöðum.
Garðabær mun kaupa húsnæði ríkisins við Spítalaveg 11 þar sem rekin er leikskóli. Kaupverðið er fasteignamat hússin árið 2021 kr. 23.250.000. Kvöð er á húsnæðinu um að Garðabær starfræki leikskóla í húsinu næstu 10 árin.
Bæjarráð samþykkir tillögu um uppgjör og frágang samkvæmt kaupsamningi Ríkissjós Íslands og Garðabæjar um jörðina Vífilsstaðir.
Málsnúmer 2109240
15
Samningur Vegagerðarinnar og Garðabæjar um yfirfærslu veghalds.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir samningi við Vegagerðina um yfirfærslu veghalds.
Gert er ráð fyrir að veghald eftirfarandi vega færist yfir til Garðabæjar frá og með 1. janúar 2022.
Arnarnesvegur nr. 411-02, frá Hegranesi að Hafnarfjarðarvegur.
Vífilsstaðavegur nr. 412-01, frá Hafnarfjarðarvegi að Reykjanesbraut.
Vífilsstaðavegur nr. 412-02, frá Reykjanesbraut að Elliðavatnsvegi.
Álftanesvegur nr. 415-02, frá Reykjarnesbraut að Garðahrauni.
Vegagerðin mun greiða Garðabæ kr. 82.410.000 til að koma viðkomandi vegum í viðunandi ástand.
Í samningum gerir Garðabær eftirfarandi fyrirvara.
Fyrirvari samkvæmt 6. gr. samningsins.
„Samningar hafa ekki tekist um að fjármunir sem Vegagerðin hefur haft til reksturs og viðhalds þeirra vega sem færast til Garðabæjar við yfirfærslu veghalds samkvæmt vegalögum, 1. janúar 2022. Í greinargerð með lögum nr. 14/2015 kemur fram sá vilji löggjafans að „ekki [sé]gert ráð fyrir að í yfirfærslunni felist aukinn kostnaður fyrir sveitarfélögin“ og að „gert er ráð fyrir að það fjármagn sem nú er á hendi Vegagerðarinnar vegna veghalds þessara vega færist yfir til sveitarfélaganna samhliða yfirfærslunni á grundvelli samninga.“ Því lítur Garðabær svo á að þeim þætti sem lýtur að fjármögnun reksturs og viðhalds umræddra vega til framtíðar sé ólokið. Er því fyrirvari gerður við undirskrift þessa samkomulags og áskilnaður um allan rétt sveitarfélagsins til að leita réttar síns hvað þetta varðar.
Garðabær gerir þann fyrirvara að yfirfærsla veghalds Álftanesvegar frá Reykjanesbraut að Garðahrauni eigi ekki að leiða til aukins kostnaðarhlutar bæjarins við framtíðar endurgerð vegamóta Álftanesvegar og Reykjanesbrautar frá því sem væri ef vegurinn væri áfram í veghaldi Vegagerðarinnar.
Vegagerðin tekur ekki afstöðu til fyrirvara Garðabæjar en áskilur sér rétt til þess síðar verði tilefni til.“
Fyrirvari samkvæmt 7. gr. samningsins.
„Samningsaðilar munu skoða möguleika á því að leggja Álftanesveg frá Engidal að Reykjanesbraut en slík framkvæmd er háð því að ákvarðanir verði teknar um breytta flokkun vegarins.“
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samningsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2201070
16
Reglur um hvatapeninga 2022.
Bæjarráð samþykkir reglur um hvatapeninga til að gilda árið 2022.
Málsnúmer 2106536
17
Gjaldskrá stuðningsþjónustu í Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá stuðningsþjónustu í Garðabæ árið 2022.
Málsnúmer 2106536
18
Gjaldskrá bókasafns Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá bókasafns Garðabæjar árið 2022.
Málsnúmer 2111406
19
Tillaga um tekjutengingu afslátta af leikskólagjöldum.
Lagt fram minnisblað um tekjutengingu afslátta af leikskólagjöldum og afsláttum af gjöldum frístundaheimila.
Bæjarráð samþykkir að settar verði reglur um tekjutengingu afslátta af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum dagforeldra sem gildi frá og með 1. mars 2022. Gildandi afslættir samkvæmt gjaldskrám haldast óbreyttir.“[Texta í fundargerð breytt á fundi bæjarstjórnar 20.01.2022]
Viðmiðunartekjur skulu vera.
Hjón
Mánaðartekjur allt að kr. 600.000.
Einstaklingar allt að kr. 416.000.
Miða skal við meðaltekjur samkvæmt staðgreiðsluskrá fyrir mánuðina október, nóvember og desember 2021.
Reglur um tekjutengingu afslátta skulu endurskoðað við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Bæjarráð vísar reglum um tekjutengingu afslátta af leikskólagjöldum og gjöldum á frístundaheimilum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2101319
20
Auglýsing um skrár (lista) yfir þau störf hjá Garðabæ sem eru undanskilin verkfallsheimild.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja lista yfir störf sem falla undir undanþáguheimild vegna töku verkfalls samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Málsnúmer 2112135
21
Minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.
Sviðstjóri fjölskyldusviðs og sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerðu grein fyrir minnisblaði um aðgerðir sem unnið hefur verið að til að mæta líðan ungmenna og styðja þau í gegnum heimsfaraldurinn.
Auk þeirra aðgerða sem talin eru upp í minnisblaðinu hefur verið unnið að hefðbundnum verkefnum sem eru til þess fallin að styðja börn og ungmenni.
Umræða var um málið.
Málsnúmer 2201110
22
Bréf Húsbygg ehf. varðandi framsal lóðarréttinda lóða við Breiðumýri á Álftanesi, dags. 07.01.22.
Bæjarráð samþykkir í því skyni að flýta fyrir framkvæmdum og uppbyggingu svæðisins að heimila Húsbygg ehf. að framselja lóðarréttindi samkvæmt samningi um úthlutun lóða á miðsvæði Álftaness enda undirgangist framsalshafi ábyrgðir og skyldur samkvæmt upphaflegum samningi.
Framsalssamningur skal staðfestur í bæjarráði og fram skal koma að framsalshafi greiði innan mánaðar frá undirritun samnings 50% áætlaðra lágmarksgatnagerðargjalda af viðkomandi lóðum.
Málsnúmer 2201010
23
Bréf Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins um styrk, dags. 29.12.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2022.
Málsnúmer 2001444
24
COVID-19 - Staða mála í starfsemi Garðabæjar.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir stöðu mála í leik- og grunnskólum. Fram kom að um forföll er að ræða hjá bæði nemendum og starfsliði skólanna sem hafa valdið röskun á skólastarfi.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs upplýsti um að farið er yfir stöðuna á hverjum degi. Engin smit hafa komið á heimilisfólki á heimilum fatlaðs fólk en einhver forföll hafa verið hjá starfsmönnum vegna smita og sóttkvíar. Í stuðningsþjónustu hefur þurft að grípa til forgangsröðunar vegna forfalla starfsmanna.