Hvatapeningar 2022
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
15. fundur
Skýrsla um nýtingu hvatapeninga í Garðabæ árið 2022.
Íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi fór yfir greinargerð um nýtingu hvatapeninga barna í Garðabæ 2022.
Upphæð hvatapeninga er 50.000 á hvert barn 5 ára til 18 ára. 3.705 börn áttu rétt á hvatapeningum og 2.761 barn nýtti sér þann rétt eða 75%. Heildarúthlutun var kr. 133.294.802. 91% greiðslna fór í gegnum rafrænafærslu við skráningu kr. 121.313.445.
Nýting fellur áberandi frá því að vera 91% við 11 ára aldur, árangi 2011, niður í 41% hjá 18 ára aldrinum, árgangi 2004. Athygli vekur að unglingar elstu þriggja árganganna nýta ekki hvatapeninga í jafn miklum mæli í skipulögðu starfi.
Þrír elstu aldurshópar sækja í „almennar æfingar“ (líkamsræktarstöðvar) í meira mæli en í fótbolta, fimleika og körfu, enda opna reglurnar ekki á að nýta styrkinn í almenna líkamsrækt fyrr en við 16 ára aldur. Hvatapeningar voru nýttir í 39 mismunandi námskeið/félög, mest í knattspyrnu, fimleika, körfubolta, handbolta og líkamsræktarkort
Nemendur í tónlist nýta hvatapeninga vel, TG er í 6. sæti yfir greidda hvatapeninga.
Bæjarráð Garðabæjar
02
1. (2008). fundur
Bæjarráð samþykkir reglur um hvatapeninga til að gilda árið 2022.