Beint í efni

15. fundur

08.03.2023
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

15. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

08.03.2023

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Einar Örn Ævarsson - aðalmaður
  • Sigurður Sveinn Þórðarson - varamaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 2303127

01

Golfklúbburinnn Oddur 2023

Kynning á starfsemi Golfklúbbsins Odds

Kári Sölmundarson formaður GO og Þorvaldur Þorsteinsson framkvæmdastjóri kynntu starf golfklúbbsins Odds. Þeir ítreka óskir um aðstoð við leigu á landi og aðstöðu, uppbyggingu á inniaðstöðu og framkvæmd Íslandsmóts í höggleik í sumar. Einnig ítreka að tenging við Urriðaholtshverfið verði gerð örugg með undirgöngum undir Flóttamannaveginn.

Málsnúmer 2303126

02

Reglur um afreksstyrki

Til skoðunar

Samþykkt var að gera breytingar á úthlutun afreksstyrkja ÍTG. Úthlutun verður tvisvar á ári í febrúar og september. Reglur um afreksstyrki er í afreksstefnu Garðabæjar sem verður uppfærð með tilliti til þess og send bæjarstjórn til samþykktar.

Málsnúmer 2201070

03

Hvatapeningar 2022

Skýrsla um nýtingu hvatapeninga í Garðabæ árið 2022.

Íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi fór yfir greinargerð um nýtingu hvatapeninga barna í Garðabæ 2022.

Upphæð hvatapeninga er 50.000 á hvert barn 5 ára til 18 ára. 3.705 börn áttu rétt á hvatapeningum og 2.761 barn nýtti sér þann rétt eða 75%. Heildarúthlutun var kr. 133.294.802. 91% greiðslna fór í gegnum rafrænafærslu við skráningu kr. 121.313.445.

Nýting fellur áberandi frá því að vera 91% við 11 ára aldur, árangi 2011, niður í 41% hjá 18 ára aldrinum, árgangi 2004. Athygli vekur að unglingar elstu þriggja árganganna nýta ekki hvatapeninga í jafn miklum mæli í skipulögðu starfi.

Þrír elstu aldurshópar sækja í „almennar æfingar“ (líkamsræktarstöðvar) í meira mæli en í fótbolta, fimleika og körfu, enda opna reglurnar ekki á að nýta styrkinn í almenna líkamsrækt fyrr en við 16 ára aldur. Hvatapeningar voru nýttir í 39 mismunandi námskeið/félög, mest í knattspyrnu, fimleika, körfubolta, handbolta og líkamsræktarkort

Nemendur í tónlist nýta hvatapeninga vel, TG er í 6. sæti yfir greidda hvatapeninga.

Málsnúmer 2303137

04

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Skúli Steinar Pétursson sækir um styrk vegna þátttöku í Special Ólympics í sumar.

ÍTG samþykkir að Skúli Steinar Pétursson fái kr. 120.000 styrk vegna þátttöku í Special Ólympics í sumar fyrir sig og aðstoðarfólk sitt.

Málsnúmer 2302127

05

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2022

Hulda Hauksdóttir deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar hjá Garðabæ kynnti niðurstöður þjónustukönnunar Gallup 2022. Útkoman er almennt mjög jákvæð.

Bærinn skorar hátt hjá íbúum varðandi ánægju með íþróttaaðstöðu og er það framför frá fyrri könnun. Mjög jákvæð niðurstaða er einnig í flest öllum öðrum málaflokkum en hægt að bæta varðandi þjónustu við fatlaða.