Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2022
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
8. fundur
Hulda Hauksdóttir deildarstjóri þjónustu og starfrænnar þróunar kynnti niðurstöðu þjónustukönnunar Gallup. Skólanefnd fagnar því að forráðamenn grunnskólanemenda í Garðabæ eru þeir ánægðustu meðal sveitarfélaga sem könnunin nær til. Þakkir eru færðar til starfsmanna fræðslu- og menningarsviðs og grunnskólanna í bænum.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
15. fundur
Hulda Hauksdóttir deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar hjá Garðabæ kynnti niðurstöður þjónustukönnunar Gallup 2022. Útkoman er almennt mjög jákvæð.
Bærinn skorar hátt hjá íbúum varðandi ánægju með íþróttaaðstöðu og er það framför frá fyrri könnun. Mjög jákvæð niðurstaða er einnig í flest öllum öðrum málaflokkum en hægt að bæta varðandi þjónustu við fatlaða.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
47. fundur
Lagt fram og góðar umræður sköpuðust.
Fylgiskjöl
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
8 (22-26). fundur
Hulda Hauksdóttir,deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnir Þjónustukönnun Gallup 2022
Leikskólanefnd Garðabæjar
05
2. fundur
Á fundi bæjarráðs 14.2.2023 var lögð fram til kynningar niðurstöður íbúa- og þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar. Bæjarráð vísaði þjónustukönnunni til umfjöllunar nefnda.
Hulda Hauksdóttir kynnti íbúa- og þjónustukönnun meðal íbúa Garðabæjar. Almennt hækkar ánægja íbúa með þjónustu bæjarins á árinu 2022 og þegar á heildina er litið eru íbúar í Garðabæ ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.
Fylgiskjöl
Öldungaráð
06
1. fundur
Á fundi bæjarráðs 14.2.2022 var þjónustukönnun Gallup meðal íbúa Garðabæjar 2022 vísað til umfjöllunar nefnda. Helstu niðurstöður þjónustukönnunar eru að almennt hækkar ánægja íbúa með þjónustu bæjarins á árinu 2022 og þegar á heildina er litið eru íbúar í Garðabæ ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.
Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar, kynnti niðurstöður þjónustukönnunar Gallup í Garðabæ fyrir árið 2022, þar sem ánægja íbúa með þjónustuna hækkar almennt og íbúar eru ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í. Hækkun er á ánægju íbúa með þjónustu við eldri íbúa á milli ára.
Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar
07
3.. fundur
Hulda Hauksdóttir deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þjónustu kynnti niðurstöður úr íbúakönnun.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
08
1. fundur
Á fundi bæjarráðs 14.2.2022 var þjónustukönnun Gallup meðal íbúa Garðabæjar 2022 vísað til umfjöllunar nefnda. Helstu niðurstöður þjónustukönnunar eru að almennt hækkar ánægja íbúa með þjónustu bæjarins á árinu 2022 og þegar á heildina er litið eru íbúar í Garðabæ ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.
Hulda Hauksdóttir deildarstjóri þjónustu og rafrænnar þróunar kynnir niðurstöður þjónustukönnunar Gallup fyrir Garðabæ. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks fjallar um niðurstöður þjónustukönnunarinnar Garðabæjar fyrir árið 2022, þar sem ánægja íbúa með þjónustuna hækkar almennt og íbúar eru ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í. Meðaltal í könnun Gallup á þjónustu við fatlað fólk á meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins er 3,3 sem er það sama og niðurstaða könnunarinnar í Garðabæ og stendur í stað á milli ára. Verið er að vinna að útfærslu á myndun rýnihópa um þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélaginu.
Fjölskylduráð Garðabæjar
10
2. fundur
Á fundi bæjarráðs 14.2.2022 var þjónustukönnun Gallup meðal íbúa Garðabæjar 2022 vísað til umfjöllunar nefnda. Helstu niðurstöður þjónustukönnunar eru að almennt hækkar ánægja íbúa með þjónustu bæjarins á árinu 2022 og þegar á heildina er litið eru íbúar í Garðabæ ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.
Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar, kynnti niðurstöður þjónustukönnunar Gallup í Garðabæ fyrir árið 2022, þar sem ánægja íbúa með þjónustuna hækkar almennt og íbúar eru ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í. Meðaltal í könnun Gallup á þjónustu við fatlað fólk á meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins er 3,3 sem er það sama og niðurstaðan í Garðabæ.
Bæjarráð Garðabæjar
11
7. (2060). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2022.
Almennt hækkar ánægja íbúa með þjónustu bæjarins á árinu 2022 og þegar á heildina er litið eru íbúar í Garðabæ ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.
Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun.
„Enn og aftur mælist ánægja með þjónustu við fatlað fólk langt undir öllum öðrum þjónustuþáttum í ánægjukönnun íbúa.
Eins ánægjulegt og það er að mælingar á öllum öðrum þjónustuþáttum fari upp á við þá er það jafn dapurlegt að mælingar haggist ekki þegar kemur að þjónustu við fatlað fólk.“
Bæjarráð samþykkir að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda.
Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.