Beint í efni

8. fundur

22.03.2023
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

8. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

22.03.2023

Kl. 16:00 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - varamaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Jóhann Skagfjörð Magnússon - fulltrúi skólastjóra
  • Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2302127

01

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2022

Hulda Hauksdóttir deildarstjóri þjónustu og starfrænnar þróunar kynnti niðurstöðu þjónustukönnunar Gallup. Skólanefnd fagnar því að forráðamenn grunnskólanemenda í Garðabæ eru þeir ánægðustu meðal sveitarfélaga sem könnunin nær til. Þakkir eru færðar til starfsmanna fræðslu- og menningarsviðs og grunnskólanna í bænum.

Málsnúmer 2212136

02

Verkferlar er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði stofnana bæjarins.

Guðbjörg Brá Gísladóttir og Sigurjón Árnason verkefnisstjóri hjá Mannvit, fóru yfir niðurstöður úr sýnatökum og framkvæmdir í tengslum við rakaskemmdir í grunnskólum. Starfsmenn og foreldrar fá reglubundnar upplýsingar á samráðsfundum þar sem fulltrúar þeirra sitja ásamt fulltrúum eignasviðs, fræðsluskrifstofu og bæjarstjóra. Skólanefnd er meðvituð um þá stöðu sem nemendur og starfsfólk eru í. Starfsfólk hefur sýnt þrautseigju og lausnarmiðaða nálgun í flóknum aðstæðum. Nemendum, forráðamönnum og starfsfólki skólanna eru færðar bestu þakkir.

Málsnúmer 2211059

03

Þróunarsjóður grunnskóla 2023

Lagt var fram til kynningar upplýsingar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar 2023. Úthlutað var kr: 28.000.000. 25 umsóknir bárust, að þessu sinni hlutu 23 verkefni styrk.