Beint í efni

7. (2060). fundur

14.02.2023
Bæjarráð Garðabæjar

7. (2060). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

14.02.2023

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - varamaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2302127

01

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2022.

Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2022.

Almennt hækkar ánægja íbúa með þjónustu bæjarins á árinu 2022 og þegar á heildina er litið eru íbúar í Garðabæ ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.

Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun.

„Enn og aftur mælist ánægja með þjónustu við fatlað fólk langt undir öllum öðrum þjónustuþáttum í ánægjukönnun íbúa.

Eins ánægjulegt og það er að mælingar á öllum öðrum þjónustuþáttum fari upp á við þá er það jafn dapurlegt að mælingar haggist ekki þegar kemur að þjónustu við fatlað fólk.“

Bæjarráð samþykkir að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda.

Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2212136

02

Aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.

Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála og sagði m.a. frá fundi með foreldrum Flataskóla sem haldinn var síðastliðinn þriðjudag. Sagt var frá að unnið er að viðgerðum á hluta húsnæðis Flataskóla og stefnt er að því að skólahald hefjist strax að loknu vetrafríi en mögulega með einhverjum frávikum.

Niðurstöður sýna úr Hofsstaðaskóla bárust í síðustu viku og eftir greiningu þeirra var tekin ákvörðun um að loka skólanum föstudaginn 10. febrúar sl. til að hefjast handa við viðgerðir með það að markmiði að opna hluta skólans að nýju í vikunni eftir vetrarfrí.

Málsnúmer 2301605

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss við Lambamýri 1-3.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum hvað varðar inndregnar þaksvalir, hjólastæði og sólskýli í innigörðum vegna byggingar fjölbýlishúss við Lambamýri 1-3. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


Málsnúmer 2212216

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss við Grásteinsmýri 1-3.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum hvað varðar hækkun gólfkóta húss um 20 cm vegna byggingar fjölbýlishúss við Grásteinsmýri 1-3. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2301315

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Deildar og Landakots á Álftanesi vegna lóðanna við Landakot I og II.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Deildar og Landakots samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir skiptingu lóðarinnar við Landakot I og II ásamt því að skilgreina heimildir og skilmála fyrir báðar lóðirnar.

Málsnúmer 1405080

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð í Móum.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til forkynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 deiliskipulag fyrir Móahverfi. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Skal kynningin auglýst með áberandi hætti. Að lokinni kynningu skal deiliskipulagstillagan lögð fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu.

Málsnúmer 2212304

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Eskiás 6.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Grunda og Ása samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga vegna lóðarinnar við Eskiás 6. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit lóðarinnar til að aðlaga betur íbúðir í byggingu hússins.

Málsnúmer 2202274

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Lautargötu 1,3 og 5.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit og fjölgun íbúða úr 24 í 30 á lóðunum við Lautargötu 1, 3 og 5. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 1.043.943 á íbúð m.v. BVT 901,7 stig í janúar 2023 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Málsnúmer 2301491

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna stækkunar lóðarinnar við Kauptún 4.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga vegna lóðarinnar við Kauptún 4. Tillagan gerir ráð stækkun lóðarinnar til norður um 375 fm.

Málsnúmer 2211254

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Austurhraun 9.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sem gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit lóðarinnar við Austurhraun 9. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 2210172

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 21.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverlega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 21. Tillagan gerir ráð fyrir heimild til að svalir nái út fyrir byggingarreit. Tillagan skal grenndarkynnt eigendum og íbúum við Víkurgötu 19, 23, 10, 12, og 14 samkvæmt 44. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga.

Málsnúmer 22091018

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi kröfu viðurkenningu á byggingarleyfisskyldri framkvæmd að Reynilundi 11.

Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi skoðunar umhverfissviðs.

Málsnúmer 2211035

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi hesthúsahverfis við Kjóavelli vegna lóðanna við Tinnuvelli 8-10.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi hesthúsahverfisins á Kjóavöllum með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðanna við Tinnuvelli 8 og 10. Tillagan gerir ráð fyrir sameiningu lóðanna með einum byggingarreit. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 2301057

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar vegna lóðarinnar við Holtsbúð 33.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ábúðar og Holtsbúðar vegna lóðarinnar við Holtbúð 33 með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir hækkun á hæðarsetningu útveggja um 24 cm. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 2302138

15

Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi ágang búfjár, dags. 03.02.23.

Málsnúmer 2302148

16

Bréf Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa varðandi niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 06.02.23.

Bæjarráð samþykkir að veita Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa styrk að fjárhæð kr. 2.214.046 til greiðslu fasteignagjalda af golfskála árið 2023.

Málsnúmer 2302149

17

Bréf Skátafélagsins Vífils og Hjálparsveitar skáta í Garðabæ varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2023, dags. 06.02.23.

Bæjarráð samþykkir að veita Skátafélaginu Vífli og Hjálparsveit skáta í Garðabæ styrk að fjárhæð kr. 4.974.003 til greiðslu fasteignagjalda af skátaheimilinu Jötunheimar árið 2023.

Málsnúmer 2302205

18

Bréf Bessastaðasóknar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2023, dags. 06.02.23.

Bæjarráð samþykkir að veita Bessastaðasókn styrk að fjárhæð kr. 345.541 til greiðslu fasteignagjalda af safnaðarheimili árið 2023.

Málsnúmer 2302239

19

Bréf eiganda fasteignarinnar við Iðnbúð 8 varðandi álagningu fasteignagjalda dags. 09.02.23.

Í bréfinu er gerð athugasemd við álagningu fasteignagjalda árið 2023 en bréfritari telur þau allt of há.

Bæjarráð bendir á að fasteignamat eignarinnar eins og það er ákvarðað af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er lagt til grundvallar álagningu fasteignagjalda hverju sinni.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara og upplýsa hann um að álagning fasteignaskatts er kæranleg til yfirfasteignanefndar skv. 3. mgr. 4. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og skal kæran borin fram innan þriggja mánaða frá álagningu, sbr. 27. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Málsnúmer 2205177

20

Ályktun kennara Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi tillögu að styttingu vinnutíma samkvæmt kjarasamningi, dags. 31.01.23.

Lögð fram ályktun kennara Tónlistarskóla Garðabæjar þar sem fram kemur að kennarar skólans hafna tillögu sem lögð hefur verið fram um styttingu vinnutíma.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2302216

21

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi til rekstrar gististaðar að Hraunhólum 4A.

Bæjarráð getur ekki fallist á að veita jákvæða umsögn en um er að ræða umsókn um gististað í íbúðarhverfi þar sem ekki er bein heimild fyrir atvinnustarfsemi í skilmálum deiliskipulags og starfsemin þess eðlis að umferð gesta getur valdið ónæði og óþægindum fyrir nágranna.

Málsnúmer 2302175

22

Bréf Hilde Berit Hundstuen varðandi leyfi til rekstrar gististaðar í íbúðarhúsnæði, dags. 03.02.23.

Bæjarráð vísar til umsagnar vegna umsóknar bréfritara til sýslumanns um leyfi til rekstrar gististaðar að Hraunhólum 4A. Í umsögninni kemur fram að ekki er fallist á að veita jákvæða umsögn þar sem skipulagskilmálar sem gilda fyrir hverfið kveða ekki á um beina heimild fyrir atvinnustarfsemi. Bæjarráð telur að starfsemin sé þess eðlis að umferð gesta getur valdið ónæði og óþægindum fyrir nágranna.

Bæjarstjóra falið að svara bréfritara.

Málsnúmer 2009650

23

Tilkynning um kynningu Umhverfisstofnunar á tillögu friðlýsingar Urriðakotshrauns í Garðabæ, dags. 09.02.23.

Lögð fram tilkynning frá Umhverfisstofnun þar sem fram kemur að tillaga að friðlýsingu Urriðakotshraun hefur verið lögð fram til kynningar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með 11. maí 2023.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2302085

24

Tilkynning Náttúruhamfaratryggingar Íslands varðandi tryggingu mannvirkja sem skylt er að tryggja hjá félaginu, dags. 31.01.23.

Bæjarráð vísar bréfinu til frekari skoðunar og úrvinnslu umhverfissviðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2211333

25

Drög að endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja endurnýjun samstarfssamning við UMF Stjörnuna með gildistíma til 31. desember 2025.

Málsnúmer 2302120

26

Bréf UMF Stjörnunnar varðandi heimild til útleigu á aðstöðu á efri hæð íþróttahússins Mýrarinnar, dags. 31.01.23.

Bæjarráð vísar bréfinu á þessu stigi til nánari skoðunar hjá bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2207259

27

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna stoðveggjar á lóðinni við Hraungötu 10.

Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúa Garðabæjar frá 1. júlí 2022 um að synja um beitingu þvingunaraðgerða vegna stoðveggjar á lóð Hraungötu 10.

Fylgiskjöl