Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar vegna lóðarinnar við Holtsbúð 33.

Málsnúmer 2301057

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

7. (2060). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ábúðar og Holtsbúðar vegna lóðarinnar við Holtbúð 33 með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir hækkun á hæðarsetningu útveggja um 24 cm. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

2. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Ásbúðar og Holtsbúðar að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir að hæð útveggja sé 24 cm hærri en deiliskipulag heimilar. (grein 2.2.2. Hæðarkótar í greinargerð deiliskipulags)
Engar athugasemdir bárust, tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Ásbúðar og Holtsbúðar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

1. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

04

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ásbúðar og Holtsbúðar sem gerir ráð fyrir að hæð útveggja sé 24 cm hærri en deiliskipulag heimilar. (grein 2.2.2. Hæðarkótar í greinargerð deiliskipulags)

Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ásbúðar og Holtsbúðar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Holtsbúð 14, 16,18,31 og 35.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.