Beint í efni

2. fundur

09.02.2023
Skipulagsnefnd Garðabæjar

2. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

09.02.2023

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1405080

01

Móar, endurskoðað deiliskipulag

Bergdís Bjarnadóttir og Pála Ríkharðsdóttir hjá Nordic arkitektum kynntu drög að deiliskipulagi Móa.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Boða skal til kynningarfundar meðan á forkynningu stendur.

Málsnúmer 2212216

02

Grásteinsmýri - hækkun gólfkvóta -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um hækkun á gólfkóta húss um 20 cm ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar sem er jákvæð.

Með vísan í framlagða umsögn gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað hækkun gólfkóta varðar.

Málsnúmer 2301605

03

Lambamýri 1-3 fyrirspurn

Lögð fram beiðni lóðarhafa um útfærslu sem varðar deiliskipulagsákvæði. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað inndregnar þaksvalir, hjólastæði og sólskýla í innigörðum varðar. Skoða þarf betur útfærslu á gönguleið áður en hægt verður að taka afstöðu til málsins.

Málsnúmer 2302193

04

Brekkuás - Farsíma mastur - lóð - dsk br.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir lóð fyrir fjarskiptamastur (gsm endurvarp) austan við Brekkuás 2.

Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.

Málsnúmer 2301315

05

Landakot, dsk br

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Deildar og Landakots á Álftanesi sem nær til lóðanna Landakot I og Landakot II.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar sbr. 1.mgr.43.gr. og 31.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús þar sem athygli er vakin á auglýsingunni.

Málsnúmer 2212304

06

Deiliskipulagsbreytingu á Eskiás - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskiplags Ása og Grunda sem nær til lóðarinnar Eskiás 6. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit til að laga hann að þeim íbúagerðum sem hafa verið þróaðar við uppbyggingu við Eskiás.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar sbr. 1.mgr.43.gr. og 31.gr.skipulagslaga nr.123/2010

Málsnúmer 2301154

07

Blikanes 27 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn ásamt umsögn deiliskipulagsráðgjafa Arnarness.

Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.

Málsnúmer 2204332

08

Þórsgrund 2 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem útfærsla á lóð gerir ekki ráð fyrir rampi fyrir miðri lóð niður að undirgöngum undir Vífilsstaðaveg.

Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.

Málsnúmer 2209212

09

Hagaflöt 1 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulag Flata sem nær til lóðarinnar Hagaflatar 1 að lokinni grenndarkynningu. 3 erindi sem hafa borist með athugasemdum við tillöguna lögð fram. Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.

Málsnúmer 2302039

10

Sekkjarflöt 23 stækkun - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um tillögu um viðbyggingu framan við hús.

Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.

Málsnúmer 22091018

11

Krafa um viðurkenningu á byggingarleyfisskyldri framkvæmd að Reynilundi 11.

Lagt fram bréf lögmanns eigenda Reynilundar 17, með kröfugerð í fjórum liðum.

Hvað varðar viðbyggingu við bílskúr er það mat skipulagsnefndar að byggingin eigi sér stoð í skipulagi en hún var reist án útgáfu byggingarleyfis eins og heimilt var á þeim tíma.

Skipulagsnefnd telur að kröfugerðinni sé að öðru leyti beint til bæjarráðs og byggingarfulltrúa.

Skipulagsstjóri og Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir véku af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 2301057

12

Holtsbúð 33 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Ásbúðar og Holtsbúðar að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir að hæð útveggja sé 24 cm hærri en deiliskipulag heimilar. (grein 2.2.2. Hæðarkótar í greinargerð deiliskipulags)

Engar athugasemdir bárust, tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Ásbúðar og Holtsbúðar.

Málsnúmer 2211254

13

Austurhraun 9 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð tillaga að deiliskipulagi Molduhrauns sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur fyrir stakstæðar byggingar á lóðinni Austurhraun 9 sé felldur út og í stað þess stækki byggingarreitur lóðarinnar til norðvesturs. Ástæða tillögunnar er sú að áform um stækkun verksmiðjuhúsnæðisins hafa breyst.

Auglýsing í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 er lokið og engar athugasemdir hafa borist.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 3.mgr.ofangreindrar lagagreinar.

Málsnúmer 2205229

14

Miðhraun 18 breyting - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á viðbyggingu við gafl atvinnuhúsnæðisins að Miðhrauni 18. Lagðar fram tvær tillögur.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til umsagnar deiliskipulagsráðgjafa og skoðunar hjá Umhverfissviði.

Málsnúmer 2301491

15

Kauptún 4 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 4 (IKEA).

Lóðin Kauptún 4 stækkar til norðurs um 375 m². Lóðastærð fyrir breytingu er 73.269 m² en verður eftir breytingu 73.644 m².

Frágangur lóðamarka skal vera í samræmi við almenna skilmála sjá grein 6.5 Landslagsmótun og frágangur lóða.

Þó er heimilt að vinna hæðaraðlögun við stoðvegg í samræmi við skýringarsnið sem sýnd eru á uppdrætti,

enda verði gengið vandlega frá skeringunni með hraungrýti af svæðinu og lyngmóatorfi.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar sbr. 1.mgr.43.gr. og 31.gr.skipulagslaga nr.123/2010

Málsnúmer 2202274

16

Lautargata 1,3 og 5, dsk breyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 sem nær til lóðanna Lautargata 1, 3 og 5 að lokinni auglýsingu.

Tillagan gerir ráð fyrir því að að ein hæð bætist við undir aðkomuhæð til aðlögunar að landslagi. Hæðarkóti aðkomuhæðar breytist ekki. Íbúðum á hverri lóð er fjölgað um tvær, úr 8 í 10 og eru viðbótaríbúðir undir 90 m2 að stærð. Heildarfjöldi íbúða á lóðunum þremur hækkar úr 24 í 30. Ákvæði um eitt gestastæði á lóð er fellt niður en gott framboð er af gestastæðum innar í götunni.

Auglýsing í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 er lokið og engar athugasemdir hafa borist.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 í samræmi við 3.mgr.ofangreindrar lagagreinar.

Málsnúmer 2210172

17

Víkurgata 21 - Svalir út fyrir byggingarreit

Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að svalir nái út fyrir byggingarreit.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.

Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Víkurgötu 19,23, 10,12 og 14.

Málsnúmer 2301418

18

Pikkoló - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.

Málsnúmer 2211035

19

Tinnuvellir 8-10 sameining lóða - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir því að hesthúsalóðirnar Tinnuvellir 8 og Tinnuvellir 10 sameinist í eina lóð með sameiginlegum byggingarreit.

Engar athugasemdir bárust, tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Kjóavalla.

Málsnúmer 2302006F

20

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 2

Lögð fram.