Lambamýri 1-3 fyrirspurn
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
3. (918). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum hvað varðar inndregnar þaksvalir, hjólastæði og sólskýli í innigörðum vegna byggingar fjölbýlishúss við Lambamýri 1-3. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“ (Mál nr. 2301605)
Bæjarráð Garðabæjar
02
7. (2060). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum hvað varðar inndregnar þaksvalir, hjólastæði og sólskýli í innigörðum vegna byggingar fjölbýlishúss við Lambamýri 1-3. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
2. fundur
Lögð fram beiðni lóðarhafa um útfærslu sem varðar deiliskipulagsákvæði. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað inndregnar þaksvalir, hjólastæði og sólskýla í innigörðum varðar. Skoða þarf betur útfærslu á gönguleið áður en hægt verður að taka afstöðu til málsins.