Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Lautargötu 1,3 og 5.

Málsnúmer 2202274

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

7. (2060). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit og fjölgun íbúða úr 24 í 30 á lóðunum við Lautargötu 1, 3 og 5. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 1.043.943 á íbúð m.v. BVT 901,7 stig í janúar 2023 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 sem nær til lóðanna Lautargata 1, 3 og 5 að lokinni auglýsingu.
Tillagan gerir ráð fyrir því að að ein hæð bætist við undir aðkomuhæð til aðlögunar að landslagi. Hæðarkóti aðkomuhæðar breytist ekki. Íbúðum á hverri lóð er fjölgað um tvær, úr 8 í 10 og eru viðbótaríbúðir undir 90 m2 að stærð. Heildarfjöldi íbúða á lóðunum þremur hækkar úr 24 í 30. Ákvæði um eitt gestastæði á lóð er fellt niður en gott framboð er af gestastæðum innar í götunni.
Auglýsing í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 er lokið og engar athugasemdir hafa borist.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 í samræmi við 3.mgr.ofangreindrar lagagreinar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

15. (911). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit og fjölgun íbúða úr 24 í 30 á lóðunum við Lautargötu 1, 3 og 5.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 1.015.693 á íbúð m.v. BVT 877,3 stig í október 2022 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi. (Mál nr.2202274)

Bæjarráð Garðabæjar

04

39. (2046). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit og fjölgun íbúða úr 24 í 30 á lóðunum við Lautargötu 1, 3 og 5.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 1.015.693 á íbúð m.v. BVT 877,3 stig í október 2022 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 sem nær til lóðanna Lautargata 1, 3 og 5.
Tillagan gerir ráð fyrir því að að ein hæð bætist við undir aðkomuhæð til aðlögunar að landslagi. Hæðarkóti aðkomuhæðar breytist ekki. Íbúðum á hverri lóð er fjölgað um tvær, úr 8 í 10 og eru viðbótaríbúðir undir 90 m2 að stærð. Heildarfjöldi íbúða á lóðunum þremur hækkar úr 24 í 30. Ákvæði um eitt gestastæði á lóð er fellt niður en gott framboð er af gestastæðum innar í götunni.
Tekið hefur verið tillit til umsagnar deiliskipulagshöfundar um þá tillögu sem áður var lögð fram. Skipulagsnefnd leggur til að því ákvæði verði bætt við tillöguna þar sem að óskað er eftir rúmum byggingarreit að tillögu að aðalteikningum verði vísað til kynningar í skipulagsnefnd þegar þær liggja fyrir ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Guðrún Dóra Brynjólfdóttir vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

9. fundur

Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um tillögu að breytingu deiliskipulags sem skipulagsnefnd óskaði eftir.
Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

8. fundur

Lögð fram sameiginleg tillaga lóðarhafa um breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 sem nær til fjölbýlishúslóðanna Lautargata 1,3 og 5.
Vegna aðstæðna á lóð sem einkennast af verulegum landhalla er óskað eftir breytingum sem meðal annars fæli í sér að einni hæð yrði bætt við undir aðkomuhæð.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

3. fundur

Lögð fram tillaga lóðarhafa að breytingu deiliskipulags sem nær til lóðanna Lautargata 1,3 og 5.Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.