Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi hesthúsahverfis við Kjóavelli vegna lóðanna við Tinnuvelli 8-10.

Málsnúmer 2211035

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

7. (2060). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi hesthúsahverfisins á Kjóavöllum með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðanna við Tinnuvelli 8 og 10. Tillagan gerir ráð fyrir sameiningu lóðanna með einum byggingarreit. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

2. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir því að hesthúsalóðirnar Tinnuvellir 8 og Tinnuvellir 10 sameinist í eina lóð með sameiginlegum byggingarreit.
Engar athugasemdir bárust, tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Kjóavalla.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

17. (913). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi hesthúsahverfis við Kjóavelli í tilefni umsóknar um að sameina byggingarreiti lóðanna við Tinnuvelli 8 og 10. Grenndarkynna skal tillöguna lóðarhöfum í hesthúsahverfinu, stjórn Hestamannafélagsins Spretts og skipulagsyfirvöldum í Kópavogi en um er að ræða sameiginlegt deiliskipulag Garðabæjar og Kópavogs.“ [Mál nr.2211035]

Bæjarráð Garðabæjar

04

43. (2050). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi hesthúsahverfis við Kjóavelli í tilefni umsóknar um að sameina byggingarreiti lóðanna við Tinnuvelli 8 og 10. Grenndarkynna skal tillöguna lóðarhöfum í hesthúsahverfinu, stjórn Hestamannafélagsins Spretts og skipulagsyfirvöldum í Kópavogi en um er að ræða sameiginlegt deiliskipulag Garðabæjar og Kópavogs.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

11. fundur

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að hesthúsalóðirnar Tinnuvellir 8 og Tinnuvellir 10 sameinist í eina lóð með sameiginlegum byggingarreit.
Skipulagsnefnd metur tillögunar sem óverulega breytingu deiliskipulags Kjóavalla í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr 1123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar.
Grenndarkynna skal öllum lóðarhöfum í Rjúpnahlíðarhverfi, stjórn Hestamannafélagsins Spretts og Kópavogsbæ sem er aðili að deiliskipulagi Kjóavalla.