Beint í efni

Þórsgrund 2 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2204332

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (924). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna frágangs lóðar Alþjóðaskólans við Þórsgrund 2 þó að vikið sé lítillega frá deiliskipulagi við tengingu skólalóðar við undirgöng undir Vífilsstaðaveg. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. laganna.“ (Mál nr. 2204332)

Bæjarráð Garðabæjar

02

23. (2076). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna frágangs lóðar Alþjóðaskólans við Þórsgrund 2 þó að vikið sé lítilega frá deiliskipulagi við tengingu skólalóðar við undirgöng undir Vífilsstaðaveg. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. laganna.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

8. fundur

Lagður fram lóðaruppdráttur sem víkur lítillega frá útfærslu deiliskipulags um tengingu skólalóðar við undirgöng undir Vífilsstaðaveg.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað útfærslu umræddrar tengingar varðar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

2. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem útfærsla á lóð gerir ekki ráð fyrir rampi fyrir miðri lóð niður að undirgöngum undir Vífilsstaðaveg.
Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.