23. (2076). fundur
23. (2076). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
13.06.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2110129
01
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi kynningu á tillögu að deiliskipulagi Arnarlands.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja forkynningu á tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Arnarland. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða skal kynna tillögur að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Arnarlands.
Málsnúmer 2110128
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi kynningu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 varðandi svæði Arnarlands.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja forkynningu á tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar varðandi svæði Arnarlands. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins. Samhliða skal kynna tillögu að deiliskipulagi fyrir Arnarland.
Málsnúmer 2302671
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Tillagan gerir ráð fyrir viðbótar hæðum fjölbýlishúsa sem verða inndregnar og fjölgun bílastæða innan lóða til að mæta mögulegri fjölgun íbúða vegna aukins byggingarmagns. Einnig er gert ráð fyrir því að fjórum tveggja hæða einbýlishúsalóðum verði breytt í raðhús og parhús.
Lagt er til að gera eftirfarandi breytingar á auglýstri tillögu. Fækkað verði um eina íbúðareiningu í raðhúslengjunni við Stekkholt næst bæjarmörkum við Kópavog. Ákvæði verði sett um uppbrot efstu hæða í fjölbýlishúsum sem snúa að Vorbraut. Ákvæðum um Hnoðraholtslínu í jörð verði bætt við greinargerð sbr. umsögn Landsnets.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Málsnúmer 2303085
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 20.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 20 (Leikskólalóð). Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Tillagan gerir ráð fyrir að aðkoma að byggingunni breytist. Í stað aðkomu á efri hæð verður aðkoma að neðri hæð. Kennisnið breytist til samræmis við breytta aðkomu. Hámarkshæð byggingar lækkar úr 10 metrum í 9 metra. Byggingarreitur breytist. Hæð sem kallast kjallari breytist í aðkomuhæð (1.hæð), hæð sem kallast aðkomuhæð breytist í 2.hæð. Snið D-D í greinargerð með deiliskipulagi breytist og sýnir aðkomuhæð í 49.00 mys. Byggingarreitur neðri hæðar er óbreyttur en byggingarreitur efri hæðar minnkar og tekur nú aðeins til nyrsta hluta byggingarreits. Tafla sem sýnir stærðir lóðar og byggingarreits breytist þar sem að byggingarreitur efri hæðar minnkar verulega. Setning í texta greinargerðar um áætlaða stærð byggingar er felld út og í stað setningar þar sem gert er ráð fyrir 100 barna leikskóla kemur setning sem segir að um sex deilda leikskóla fyrir 100-120 börn sé að ræða.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Málsnúmer 2204332
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi útgáfu á byggingarleyfi vegna frágangs skólalóðar við húsnæði Alþjóðaskólans að Þórsgrund 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna frágangs lóðar Alþjóðaskólans við Þórsgrund 2 þó að vikið sé lítilega frá deiliskipulagi við tengingu skólalóðar við undirgöng undir Vífilsstaðaveg. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. laganna.
Málsnúmer 2102110
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir félagssvæði Hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag fyrir félagsvæði Sóta á Álftanesi. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Lagt er til að gera eftirfarandi breytingar á auglýstri tillögu. Byggingarreitir núverandi hesthúsa verði breikkaðir inn í hestagerði úr 7,5 í 8,5 metra þannig að hægt verði að stækka stíur til samræmis við gildandi reglugerðir. Útigerði húsa númer 5, 4 og 6 verði stækkuð til suðurs og austurs og tryggja þannig að betur fari um hrossin í þéttsetnu hverfi. Sorpgerði og bíla-og kerrustæðum verði hnikað um 2 metrar til austurs eins og Veitur óska eftir í erindi sínu.
Skipulagsnefnd hafnar að fallast á lengingu húsa númer 5 og 6 og bendir á að gert er ráð fyrir 3 nýjum hesthúsum í hverfinu. Þá er ekki fallist á að gera ráð fyrir byggingarreit fyrir viðbyggingum við núverandi hús sem þrengja að aðkomugötu en bent er á að heimilað verður að stækka húsin talsvert í hina áttina.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Málsnúmer 2305610
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar vegna lóðarinnar við Vetrarbraut 2-4.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar vegna lóðarinnar við Vetrarbraut 2-4, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að gera ráð fyrir að bifreiðageymslur geti verið 2 hæðir og eykst byggingarmagn sem nemur því.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og lóðarhafa.
Málsnúmer 1902106
08
Erindi Umhverfisstofnunar varðandi friðlýsingu Bessastaðaness, dags. 06.06.23.
Í erindinu kemur fram að tillaga að friðlýsingu Bessastaðaness sem unnið var að í samráði við Garðabæ hafi verið vísað til staðfestingar ráðherra í janúar 2022.
Bæjarráð vísar skilmálum um friðlýsingu Bessastaðaness til afgreiðslu bæjarstjórnar og til kynningar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.
Málsnúmer 2304477
09
Úthlutunarreglur og -skilmálar varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti.
Bæjarstjóri kynnti úthlutunarreglur og úthlutunarskilmála varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti.
Jafnframt kynnti bæjarstjóri samkomulag við Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. um úthlutun lóðanna við Vorbraut 2, 4 og 6 sem byggir á samkomulagi sem gert var vegna lóðanna við Strikið 1-7 árið 2006 og viðauka frá árinu 2015.
Bæjarráð samþykkir úthlutunarreglur og úthlutunarskilmála varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti og felur bæjarstjóra að auglýsa lóðirnar.
Bæjarráð samþykkir samkomulag við Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. um úthlutun lóðanna við Vorbraut 2, 4 og 6.
Stefnt er að auglýsa úthlutun lóðanna um næstu helgi . Tilboðsfrestur er um tvær vikur eða til 29. júní nk. og gilda tilboð í tvær vikur eða til 13. júlí. Tilboð verða opnuð og tekin fyrir á fundi bæjarráðs Garðabæjar kl. 08:00 þriðjudaginn 4. júlí 2023.
Bæjarstjóri fór nánar yfir drög að kynningarefni vegna auglýsingar um úthlutun lóðanna.
Málsnúmer 2306134
10
Opnun tilboða í malbikun gatna í Urriðaholti 2023.
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við malbikun gatna í Urriðaholti.
Óskatak ehf. kr. 42.037.000
Malbikunarstöðin ehf. kr. 41.114.500
Loftorka Reykjavík kr. 44.630.000
Kostnaðaráætlun kr. 49.128.500
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Malbikunarstöðvarinnar ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2301003
11
Tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu varðandi þróunarverkefni um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum.
Í tilkynningunni er auglýst eftir samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir sem vilja vinna að þróunarverkefnum um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Umsóknarfrestur er til 1. september 2023.
Bæjarráð felur fjölskyldusviði að gera minnisblað um mögulega þátttöku í verkefninu. Málinu er einnig vísað til kynningar í fjölskylduráði og öldungaráði.
Málsnúmer 2203213
12
Samningur við Vegagerðina um veghald Álftanesvegar og framkvæmdir við ný gatnamót við Garðahraunsveg.
Í samningnum er gert ráð fyrir að Garðabær taki við veghaldi Álftanesvegar í samræmi við ákvæði vegalaga og jafnframt er samkomulag um lagfæringu gatnamóta Álftanesvegar og gamla Álftanesvegar/Garðahraunsvegar.
Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2209221
13
Gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar skólaárið 2023-2024.
Bæjarráð vísar tillögu skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi gjaldskrá skólaárið 2023-2024 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2306111
14
Tilkynning frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun varðandi nýtt fasteignamat fyrir árið 2024.
Lögð fram tilkynning Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar varðandi nýtt fasteignamat fyrir árið 2024. Í fylgigögnum kemur fram að heildarfasteignamat í Garðabæ hækkar um 10,6% milli áranna 2023 og 2024.
Málsnúmer 2304460
15
Staða kjarasamningsviðræðna við Starfsmannafélag Garðabæjar.
Á laugardagsmorgun náðust samningar í kjaradeilu Sambands íslenskra sveitarfélaga og BSRB. Vinnustöðvum starfsmanna í starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa í leikskólum, á bæjarskrifstofum og íþróttamannvirkjum og sundlaugum í Ásgarði og Breiðumýri hefur verið aflýst. Sundlaugar og íþróttamannvirki opnuðu um helgina og starfsmenn leikskóla og bæjarskrifstofa komu til starfa í gærmorgun.