Beint í efni

Holtsvegur 20 dsk.br. Urriðaholt norðurhluti 1.

Málsnúmer 2303085

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (924). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 20 (Leikskólalóð). Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Tillagan gerir ráð fyrir að aðkoma að byggingunni breytist. Í stað aðkomu á efri hæð verður aðkoma að neðri hæð. Kennisnið breytist til samræmis við breytta aðkomu. Hámarkshæð byggingar lækkar úr 10 metrum í 9 metra. Byggingarreitur breytist. Hæð sem kallast kjallari breytist í aðkomuhæð (1.hæð), hæð sem kallast aðkomuhæð breytist í 2. hæð. Snið D-D í greinargerð með deiliskipulagi breytist og sýnir aðkomuhæð í 49.00 mys. Byggingarreitur neðri hæðar er óbreyttur en byggingarreitur efri hæðar minnkar og tekur nú aðeins til nyrsta hluta byggingarreits. Tafla sem sýnir stærðir lóðar og byggingarreits breytist þar sem að byggingarreitur efri hæðar minnkar verulega. Setning í texta greinargerðar um áætlaða stærð byggingar er felld út og í stað setningar þar sem gert er ráð fyrir 100 barna leikskóla kemur setning sem segir að um sex deilda leikskóla fyrir 100-120 börn sé að ræða.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.“ (Mál nr. 2303085)

Bæjarráð Garðabæjar

02

23. (2076). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 20 (Leikskólalóð). Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Tillagan gerir ráð fyrir að aðkoma að byggingunni breytist. Í stað aðkomu á efri hæð verður aðkoma að neðri hæð. Kennisnið breytist til samræmis við breytta aðkomu. Hámarkshæð byggingar lækkar úr 10 metrum í 9 metra. Byggingarreitur breytist. Hæð sem kallast kjallari breytist í aðkomuhæð (1.hæð), hæð sem kallast aðkomuhæð breytist í 2.hæð. Snið D-D í greinargerð með deiliskipulagi breytist og sýnir aðkomuhæð í 49.00 mys. Byggingarreitur neðri hæðar er óbreyttur en byggingarreitur efri hæðar minnkar og tekur nú aðeins til nyrsta hluta byggingarreits. Tafla sem sýnir stærðir lóðar og byggingarreits breytist þar sem að byggingarreitur efri hæðar minnkar verulega. Setning í texta greinargerðar um áætlaða stærð byggingar er felld út og í stað setningar þar sem gert er ráð fyrir 100 barna leikskóla kemur setning sem segir að um sex deilda leikskóla fyrir 100-120 börn sé að ræða.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 1 sem nær til leikskólalóðarinnar Holtsvegur 20 að lokinni auglýsingu.
Tillagan gerir ráð fyrir að aðkoma að byggingunni breytist. Í stað aðkomu á efri hæð verður aðkoma að neðri hæð. Kennisnið breytist til samræmis við breytta aðkomu. Hámarkshæð byggingar lækkar úr 10 metrum í 9 metra. Byggingarreitur breytist. Hæð sem kallast kjallari breytist í aðkomuhæð (1.hæð); hæð sem kallast aðkomuhæð breytist í 2.hæð. Snið D-D í greinargerð með deiliskipulagi breytist og sýnir aðkomuhæð í 49.00 mys. Byggingarreitur neðri hæðar er óbreyttur en byggingarreitur efri hæðar minnkar og tekur nú aðeins til nyrsta hluta byggingarreits. Tafla sem sýnir stærðir lóðar og byggingarreits breytist þar sem að byggingarreitur efri hæðar minnkar verulega. Setning í texta greinargerðar um áætlaða stærð byggingar er felld út og í stað setningar þar sem gert er ráð fyrir 100 barna leikskóla kemur setning sem segir að um sex deilda leikskóla fyrir 100-120 börn sé að ræða.
Alls bárust 9 erindi með athugasemdum sem undirritaðar eru af 24 íbúum, flestum búsettum að Holtsvegi 14, 16 og 18.
Athugasemdir lúta að breytingum á skilgreiningum hæða og hámarkshæð byggingarinnar og sem hefur í för með sér útsýniskerðingu og skuggavarpi. Einnig eru gerðar athugasemdir við málsmeðferð bæjaryfirvalda á málinu.
Skipulagsnefnd telur að þau rök sem færð eru fyrir því að breyta deiliskipulagi til þess að unnt verði að gefa út byggingarleyfi fyrir byggingu leikskóla á lóðinni við Holtsveg 20, í samræmi við vandaða hönnun hússins, varði samfélagslega hagsmuni sem vegi þyngra en hagsmunir nágranna af útsýnisskerðingu og skuggavarpi.
Fallist er á þá athugasemd sem fram hefur komið um að færa hæðarkóta inn á kennisnið gildandi deiliskipulags til skýringar á breytingunni.
Lögð fram drög að svörum við innsendum athugasemdum. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við drögin.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri lagfæringu sem breytingu deiliskipulags 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 3.mgr. 41.gr.skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

7. fundur

Tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 1 sem nær til leikskólalóðarinnar Holtsvegur 20 lögð fram að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

5. f.(920). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 20, sbr. 1. mgr. 43. gr laganna. Tillagan gerir ráð fyrir að aðkoma að byggingunni breytist. Í stað aðkomu á efri hæð verður aðkoma að neðri hæð. Kennisnið breytist til samræmis við breytta aðkomu. Hámarkshæð byggingar lækkar úr 10 metrum í 9 metra. Byggingarreitur breytist. Hæð sem kallast kjallari breytist í aðkomuhæð (1.hæð), hæð sem kallast aðkomuhæð breytist í 2. hæð. Snið D-D í deiliskipulagsgreinargerð breytist og sýnir aðkomuhæð í 49.00 mys. Byggingarreitur neðri hæðar er óbreyttur en byggingarreitur efri hæðar minnkar og tekur nú aðeins til nyrsta hluta byggingarreits. Tafla sem sýnir stærð lóðar og byggingarreits breytist þar sem að byggingarreitur efri hæðar minnkar verulega. Setning í texta greinargerðar um áætlaða stærð byggingar er felld út og í stað setningar þar sem gert er ráð fyrir 100 barna leikskóla kemur setning um 100-120 barna sex deilda leikskóla. (Mál nr. 2303085)

Bæjarráð Garðabæjar

06

11. (2064). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 20, sbr. 1. mgr. 43. gr laganna.
Tillagan gerir ráð fyrir að aðkoma að byggingunni breytist. Í stað aðkomu á efri hæð verður aðkoma að neðri hæð. Kennisnið breytist til samræmis við breytta aðkomu. Hámarkshæð byggingar lækkar úr 10 metrum í 9 metra. Byggingarreitur breytist. Hæð sem kallast kjallari breytist í aðkomuhæð (1.hæð), hæð sem kallast aðkomuhæð breytist í 2. hæð. Snið D-D í deiliskipulagsgreinargerð breytist og sýnir aðkomuhæð í 49.00 mys. Byggingarreitur neðri hæðar er óbreyttur en byggingarreitur efri hæðar minnkar og tekur nú aðeins til nyrsta hluta byggingarreits. Tafla sem sýnir stærð lóðar og byggingarreits breytist þar sem að byggingarreitur efri hæðar minnkar verulega. Setning í texta greinargerðar um áætlaða stærð byggingar er felld út og í stað setningar þar sem gert sé ráð fyrir 100 barna leikskóla kemur setning um 100-120 barna sex deilda leikskóla.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

4. fundur

Með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem birtur var 16. desember 2022, var byggingarleyfi, dags. 26. september 2022 fyrir 6 deilda leikskóla að Holtsvegi 20, fellt úr gildi. Í niðurstöðu nefndarinnar kemur fram að samkvæmt skilmálum deiliskipulagsins megi hæðarkóti húss á lóðinni mest vera 55,00 en samkvæmt útgefnu byggingarleyfi er hæðarkóti hússins 57,31 Þá kemur einnig fram að skilmálar deiliskipulagsins heimili einungis að hús sé ein hæð að götu en ekki tvær.
Á fundi bæjarráðs Garðabæjar sem haldinn var 6. janúar 2023 voru samþykkt byggingaráform fyrir breyttan 5-deilda leikskóla á einni hæð. Byggingarleyfi var útgefið sama dag.
Bæjarráð hefur fjallað um stöðu framkvæmda við byggingu leikskóla að Holtsvegi á fundum sínum 2. janúar, 7. febrúar 21. febrúar og 28. febrúar 2023. Þá fundaði bæjarstjóri með þremur íbúum við Holtsveg 14-18 en íbúar hafa með bréfi, dags. 30, janúar 2023 krafist þess að ekki verði gerð breyting á deiliskipulagi lóðarinnar í þeim tilgangi að hækka hæð byggingarinnar.
Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 28. febrúar sl. samþykkti bæjarráð að vísa til skipulagsnefndar að móta tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 20 þannig að upphafleg hönnun byggingar leikskóla falli að skilmálum deiliskipulagsins. Fram kom að bæjarráð lýsir yfir vilja til að leita leiða til að lækka heildarhæð þess hluta leikskólans sem er tveggja hæða til að koma á móts við sjónarmið íbúa um að takmarka útsýnisskerðingu þeirra eins og kostur er.
Í bókun bæjarráðs kemur fram að lögð er áhersla á þá samfélagslegu hagsmuni sem að liggja því til grundvallar að byggja leikskóla fyrir 120 börn í Urriðaholti til standa undir væntingum og kröfum ungra barnafjölskyldna um að eiga kost á leikskóladvöl barna sinna frá 12 mánaða aldri.

Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 20.
Um er að ræða tillögu að breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Tillagan gerir ráð fyrir að aðkoma að byggingunni breytist. Í stað aðkomu á efri hæð verður aðkoma að neðri hæð. Kennisnið breytist til samræmis við breytta aðkomu. Hámarkshæð byggingar er lækkar úr 10 metrum í 9 metra. Byggingarreitur breytist. Hæð sem kallast kjallari breytist í aðkomuhæð (1.hæð), hæð sem kallast aðkomuhæð breytist í 2.hæð. Snið D-D í deiliskipulagsgreinargerð breytist og sýnir aðkomuhæð í 49.00 mys. Byggingarreitur neðri hæðar er óbreyttur en byggingarreitur efri hæðar minnkar og tekur nú aðeins til nyrsta hluta byggingarreits. Tafla sem sýnir stærðir lóðar og byggingarreits breytist þar sem að byggingarreitur efri hæðar minnkar verulega. Setning í texta greinargerðar um áætlaða stærð byggingar felld út og í stað setningar þar sem gert sé ráð fyrir 100 barna leikskóla kemur setning um 100-120 barna sex deilda leikskóla.
Tillagan skal auglýst eins og mælt er fyrir um í 31. gr. skipulagslaga og skal frestur til að gera athugasemdir við tillöguna ekki vera skemmri en sex vikur frá birtingu auglýsingar. Jafnframt skal auglýsing tillögunnar borin út í nærliggjandi hús.