Beint í efni

9. (924). fundur

15.06.2023
Bæjarstjórn Garðabæjar

9. (924). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

15.06.2023

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Guðjón Pétur Lýðsson - varabæjarfulltrúi
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
  • Einar Örn Ævarsson - varabæjarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð fundar bæjarstjórnar frá 1. júní 2023 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2306003F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 6/6 ´23.

Fundargerðin sem er 11 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2306012F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 13/6 ´23.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi kynningu á tillögu að deiliskipulagi Arnarlands.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi kynningu á tillögu að deiliskipulagi Arnarlands, 3 tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts, 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 20 og 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir félagssvæði Hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi kynningu á tillögu að deiliskipulagi Arnarlands.

Almar Guðmundsson, ræddi, 1. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi kynningu á tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og 9. tl., úthlutunarreglur og skilmála varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 12. tl., samning við Vegagerðina um veghald Álftanesvegar og framkvæmdir við ný gatnamót við Garðahraunsveg og 8. tl., erindi Umhverfisstofnunar varðandi friðlýsingu Bessastaðaness.

Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, greiðir ekki atkvæði um 9. tl., úthlutunarreglur og skilmálar varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti vegna tengsla við söluaðila, sbr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Afgreiðsla mála.

2.1 - 2110129 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi kynningu á tillögu að deiliskipulagi Arnarlands.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um forkynningu á deiliskipulagi fyrir Arnarland. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða skal kynna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Arnarlands.“ (Mál nr. 2110129)

Fylgiskjöl

2.2 - 2110128 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi kynningu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 varðandi svæði Arnarlands.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um forkynningu samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar varðandi svæði Arnarlands. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins. Samhliða skal kynna tillögu að deiliskipulagi fyrir Arnarland.“ (Mál nr. 2110128)

Fylgiskjöl

2.3 - 2302671 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Tillagan gerir ráð fyrir viðbótar hæðum fjölbýlishúsa sem verða inndregnar og fjölgun bílastæða innan lóða til að mæta mögulegri fjölgun íbúða vegna aukins byggingarmagns. Einnig er gert ráð fyrir því að fjórum tveggja hæða einbýlishúsalóðum verði breytt í raðhús og parhús.
Lagt er til að gera eftirfarandi breytingar á auglýstri tillögu. Fækkað verði um eina íbúðareiningu í raðhúslengjunni við Stekkholt næst bæjarmörkum við Kópavog. Ákvæði verði sett um uppbrot efstu hæða í fjölbýlishúsum sem snúa að Vorbraut. Ákvæðum um Hnoðraholtslínu í jörð verði bætt við greinargerð sbr. umsögn Landsnets.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.“ (Mál nr. 2302671)

Fylgiskjöl

2.4 - 2303085 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 20.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 20 (Leikskólalóð). Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Tillagan gerir ráð fyrir að aðkoma að byggingunni breytist. Í stað aðkomu á efri hæð verður aðkoma að neðri hæð. Kennisnið breytist til samræmis við breytta aðkomu. Hámarkshæð byggingar lækkar úr 10 metrum í 9 metra. Byggingarreitur breytist. Hæð sem kallast kjallari breytist í aðkomuhæð (1.hæð), hæð sem kallast aðkomuhæð breytist í 2. hæð. Snið D-D í greinargerð með deiliskipulagi breytist og sýnir aðkomuhæð í 49.00 mys. Byggingarreitur neðri hæðar er óbreyttur en byggingarreitur efri hæðar minnkar og tekur nú aðeins til nyrsta hluta byggingarreits. Tafla sem sýnir stærðir lóðar og byggingarreits breytist þar sem að byggingarreitur efri hæðar minnkar verulega. Setning í texta greinargerðar um áætlaða stærð byggingar er felld út og í stað setningar þar sem gert er ráð fyrir 100 barna leikskóla kemur setning sem segir að um sex deilda leikskóla fyrir 100-120 börn sé að ræða.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.“ (Mál nr. 2303085)

Fylgiskjöl

2.5 - 2204332 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi útgáfu á byggingarleyfi vegna frágangs skólalóðar við húsnæði Alþjóðaskólans að Þórsgrund 2.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna frágangs lóðar Alþjóðaskólans við Þórsgrund 2 þó að vikið sé lítillega frá deiliskipulagi við tengingu skólalóðar við undirgöng undir Vífilsstaðaveg. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. laganna.“ (Mál nr. 2204332)

Fylgiskjöl

2.6 - 2102110 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir félagssvæði Hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag fyrir félagssvæði Sóta á Álftanesi. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Lagt er til að gera eftirfarandi breytingar á auglýstri tillögu. Byggingarreitir núverandi hesthúsa verði breikkaðir inn í hestagerði úr 7,5 í 8,5 metra þannig að hægt verði að stækka stíur til samræmis við gildandi reglugerðir. Útigerði húsa númer 5, 4 og 6 verði stækkuð til suðurs og austurs og tryggja þannig að betur fari um hrossin í þéttsetnu hverfi. Sorpgerði og bíla- og kerrustæðum verði hnikað um 2 metra til austurs eins og Veitur óska eftir í erindi sínu.
Skipulagsnefnd hafnar að fallast á lengingu húsa númer 5 og 6 og bendir á að gert er ráð fyrir 3 nýjum hesthúsum í hverfinu. Þá er ekki fallist á að gera ráð fyrir byggingarreit fyrir viðbyggingum við núverandi hús sem þrengja að aðkomugötu en bent er á að heimilað verður að stækka húsin talsvert í hina áttina.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.“ (Mál nr. 2102110)

Fylgiskjöl

2.7 - 2305610 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar vegna lóðarinnar við Vetrarbraut 2-4.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar vegna lóðarinnar við Vetrarbraut 2-4, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að gera ráð fyrir að bifreiðageymslur geti verið 2 hæðir og eykst byggingarmagn sem nemur því.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og lóðarhafa.“ (Mál nr. 2305610)

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2305034F

03

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 30/5 ´23.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., útnefningu bæjarlistamanns 2023, heiðursviðurkenningu og afhendingu styrkja. Gunnar Valur óskaði bæjarlistamanni Garðabæjar, Gunnsteini Ólafssyni, hljómsveitar- og kórstjóra til hamingju með nafnbótina bæjarlistamaður Garðabæjar árið 2023. Gunnar Valur færði öðrum einstaklingum sem fengu viðurkenningu á hátíðinni hamingjuóskir.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., Jazzþorpið í Garðabæ árið 2023 og lýsti sérstakri ánægju með velheppnaða hátíð og góða stemningu á Garðatorgi.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., Jazzþorpið í Garðabæ árið 2023 og tók undir orð um ánægju með hátíðina og stemmninguna á Garðatorgi.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2305039F

04

Fundargerð skipulagsnefndar frá 2/6 ´23.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2305037F

05

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 5/6 ´23.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., verkferla varðandi aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir í skólahúsnæði, 2. tl., yfirlit yfir styrkveitingar úr þróunarsjóði grunnskóla og 4. tl., niðurstöður skólapúlsins 2022-2023.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2306004F

06

Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar frá 8/6 ´23.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., tillögu að nýrri gjaldskrá.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., tillögu að nýrri gjaldskrá.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögu að nýrri gjaldskrá.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2302048F

07

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 29/3 ´23.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2301664

08

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 5/6 ´23.

Harpa Rós Gísladóttir, kvaddi sér hljóðs og sagði frá sameiginlegum fundi formanna öldungaráða sveitarfélaga í kraganum þar sem farið var yfir sameiginleg mál og rætt um nánara samstarf.

Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls og lýsti ánægju með samstarf á þessum vettvangi.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2301673

09

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 7/6 ´23.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., fýsileikaskýrslu varðandi Græna stíginn.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2301318

10

Fundargerð stjórnar SSH frá 5/6 ´23.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., samstarf við Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., samstarf við Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., samstarf við Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 4. tl., samstarf við Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 4. tl., samstarf við Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2302122

11

Fundargerðir stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 5/5 og 19/5 ´23.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2203213

12

Samningur við Vegagerðina um veghald Álftanesvegar og framkvæmdir við ný gatnamót við Garðahraunsveg.

Bæjarstjórn samþykkir samning við Vegagerðina um að taka við veghaldi Álftanesvegar í samræmi við ákvæði vegalaga og framkvæmdir við ný gatnamót Álftanesvegar og Garðahraunsvegar.

Málsnúmer 1902106

13

Skilmálar fyrir friðlýsingu Bessastaðaness.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu að friðlýsingu Bessastaðaness í samræmi við 49. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Friðlýsingarskilmálar hafa verið unnir á vegum Umhverfisstofnunar í samstarfi við embætti forseta Íslands, Garðabæ, forsætisráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Minjastofnun Íslands.

Málsnúmer 2209221

14

Gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar 2023-2024.

Almar Guðmundsson, ræddi gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar og gerði grein fyrir að skólagjöldum er ætlað að standa undir öðrum kostnaði við skólareksturinn en launakostnaði kennara og skólastjóra.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2023 - 2024.

Málsnúmer 2306186

15

Tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar 2023.

„Með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 4. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 samþykkir bæjarstjórn að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og til 17. ágúst 2023. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 15. ágúst 2023.

Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga.“