Beint í efni

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 8/12 ´23.

Málsnúmer 2301673

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

18. (933). fundur

Björg Fenger, ræddi 3. tl., samþykkt um leiðbeiningar um sjálfbært skipulag og vistvænar samgöngur.

Baldur Ólafur Svavarsson, ræddi 3. tl., samþykkt um leiðbeiningar um sjálfbært skipulag og vistvænar samgöngur og 4. tl., hvatningu til sveitarfélaga um að innleiða græna stíginn í sínar skipulagsáætlanir.

Fundargerðin lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

17. (932). fundur

Björg Fenger, kvaddi sér hljóðs og sagði frá því að fundurinn hafi verið haldinn á Álftanesi þar sem sérstök kynning var á skipulagi miðsvæðis Álftaness. Farið var í vettvangsskoðun í nýjar íbúðir við Lambamýri. Þá ræddi Björg 1. tl., fýsileikaskýrslu Græna stígsins.

Fundargerðin lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

15. (930). fundur

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna uppbyggingar Arnarlands.

Fundargerðin lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

12. (927). fundur

Fundargerðin lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

9. (924). fundur

Björg Fenger, ræddi 1. tl., fýsileikaskýrslu varðandi Græna stíginn.

Fundargerðin er lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

8. (923). fundur

Björg Fenger sagði frá sameiginlegum fundi svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins og svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja. Þá ræddi Björg 1. tl. fg. frá 12/5, varðandi samþykkt nefndarinnar á umsögn svæðisskipulagsstjóra vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar og deiliskipulagi fyrir svæði í upplandi bæjarins.

Fundargerðin lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

6. (921). fundur

Björg Fenger, ræddi 1. tl., bættar almenningssamgöngur til Keflavíkurflugvallar og 2. tl., áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns og bókun fulltrúa Garðabæjar í nefndinni.

Fundargerðin er lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

4. (919). fundur

Björg Fenger, ræddi 1. tl., gerð fýsileikaskýrslu varðandi græna stíginn og 3. tl., tillögu að breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins varðandi svæði í Rjúpnahlíð.

Fundargerðin lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

2. (917). fundur

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., markmið og áherslur svæðisskipulags 2022-2026, 2. tl., fjölgun á íbúðum í Hamranesi í Hafnarfirði, 3. tl., græni stígurinn og 4. tl. heimsókn nefndarinnar til sveitarfélaganna.

Fundargerðin er lögð fram.