Beint í efni

4. (919). fundur

02.03.2023
Bæjarstjórn Garðabæjar

4. (919). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

02.03.2023

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - varabæjarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - varabæjarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu um afbrigði við dagskrá samkvæmt heimild í 2. mgr. 17. gr samþykkta um stjórn Garðabæjar.

Á dagskrá komi sem dagskráliður nr. 12 samkomulag um kjarasamningsumboð vegna kjarasamningsgerðar.

Tillaga um afbrigði við dagskrá samþykkt samhljóða.

Fundargerð fundar bæjarstjórnar frá 16. febrúar 2023 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2302026F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 21/2 ´23.

Rakel Steinberg Sölvadóttir, ræddi 2.tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2.tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2.tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði. Sigríður Hulda hrósaði stjórnendum, starfsmönnum skólanna, nemendum og foreldrum fyrir þeirra viðbrögð við að leita lausna til halda úti sem mest eðlilegu skólahaldi við þessar erfiðu aðstæður.

Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.

Fundargerðin sem er 8 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2302041F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 28/2 ´23.

Rakel Steinberg Sölvadóttir, ræddi 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna legu Flóttamannavegar o.fl., 12. tl., stöðu framkvæmda við byggingu leikskóla að Holtsvegi 20 og 17. tl., tillögu Viðreisnar um að meta kostnað við að endurvekja næturstrætó í samstarfi við Kópavog og Hafnarfjörð.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 13. tl., húsnæðisáætlun Garðabæjar 2023.

Ingvar Arnarson, ræddi 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna tilkynningar Landsnets um framkvæmdir við breytingar á Hamraneslínu.

Björg Fenger, ræddi 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna legu Flóttamannavegar o.fl. og 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna tilkynningar Landsnets um framkvæmdir við breytingar á Hamraneslínu.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna legu Flóttamannavegar o.fl., 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna tilkynningar Landsnets um framkvæmdir við breytingar á Hamraneslínu, 13. tl., húsnæðisáætlun Garðabæjar 2023 og 17. tl., tillögu Viðreisnar um að meta kostnað við að endurvekja næturstrætó í samstarfi við Kópavog og Hafnarfjörð.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 17. tl., tillögu Viðreisnar um að meta kostnað við að endurvekja næturstrætó í samstarfi við Kópavog og Hafnarfjörð.

Rakel Steinberg Sölvadóttir, ræddi að nýju 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna legu Flóttamannavegarins o.fl. og 17. tl., tillögu Viðreisnar um að meta kostnað við að endurvekja næturstrætó í samstarfi við Kópavog og Hafnarfjörð.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi að nýju 17. tl., tillögu Viðreisnar um að meta kostnað við að endurvekja næturstrætó í samstarfi við Kópavog og Hafnarfjörð.

Almar Guðmundsson, ræddi 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna legu Flóttamannavegar o.fl., 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna tilkynningar Landsnets um framkvæmdir við breytingar á Hamraneslínu, 12. tl. stöðu framkvæmda við byggingu leikskóla að Holtsvegi 20 og 13. tl., húsnæðisáætlun Garðabæjar 2023,

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju 13. tl., húsnæðisáætlun Garðabæjar 2023.

Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 13. tl., húsnæðisáætlun Garðabæjar 2023.

Fundargerðin sem er 17 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2302028F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 22/2 ´23.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., málefni heimilislausra í Garðabæ, 2. tl., tillögu um að tryggja frumkvæðisskyldu hvað varðar þjónustu við fatlað fólk, 4. tl., endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ, 5. tl., úthlutun íbúða í búsetukjarnanum við Brekkuás 2 og 6. tl., jafnréttisstefnu Garðabæjar.

Þorbjörg Þorvalddóttir, ræddi 1. tl., málefni heimilislausra í Garðabæ.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2302031F

04

Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 23/2 ´23.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2302030F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 23/2 ´23.

Rakel Steinberg Sölvadóttir, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands. og lagði fram eftirfarandi bókun sem fulltrúi Viðreisnar lagði fram á fundi skipulagsnefndar.

"Viðreisn leggur til að aldursskilyrði sem núna eru í drögum að skipulagi Arnarlandsins verði endurskoðuð með því markmiðið að fallið verði frá einhverjum skilyrðum um aldur íbúa eða hugmyndir um æskilegar fjölskyldusamsetningar á svæðinu.

Til þess að gera þetta mögulegt myndi Garðabær óska eftir innviðasamningi við Kópavog um samnýtingu innviða fyrir svæðið, til dæmis skólaþjónustu."

Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Björg Fenger, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands. Björg lagði fram eftirfarandi bókun.

„Skipulagslýsing fyrir Arnarland þe. breyting á aðalskipulagi Garðabæjar og nýtt deiliskipulag fyrir blandaða byggð var auglýst í febrúar 2022. Í lýsingunni koma fram helstu áherslu bæjaryfirvalda við gerð nýs deiliskipulags. Tilgangur lýsingarinnar er m.a. að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferlinu á fyrstu stigum þess, auka gagnsæi, tryggja betra upplýsingaflæði og skila betri og markvissari skipulagsvinnu. Allar ábendingar sem sendar eru inn varðandi lýsinguna eru skoðaðar og metið hvort tilefni sé til breytinga áður en farið er í forkynningu. Samstarf og samvinna við Kópavogsbæ í skipulagsferlinu er mikilvæg m.a. vegna umferðarmála en einnig til að samhæfa skipulag sveitarfélaganna.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að við þróun Arnarlands verði hugað að góðum tengingum svæðisins við önnur hverfi bæjarins og munu þeir sem velja sér búsetu í hinu nýja og spennandi hverfi njóta góðs að þeirri þjónustu sem Garðabær býður upp á, á sama hátt og aðrir íbúar Garðabæjar.“

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Hlynur E. Bæringsson, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Rakel Steinberg Sölvadóttir, ræddi að nýju 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2301458

06

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 15/2 ´23.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2301673

07

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 17/2 ´23.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., gerð fýsileikaskýrslu varðandi græna stíginn og 3. tl., tillögu að breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins varðandi svæði í Rjúpnahlíð.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2302122

08

Fundargerð Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 10/2 ´23.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2301318

09

Fundargerðir stjórnar SSH frá 3/2 og 20/2 ´23.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2206112

10

Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2023.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 500.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2303_14G. Um er að ræða jafngreiðslulán til 17 ára, verðtryggt með 3,12% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 500.000.000, með lokagjalddaga þann 23. mars 2040, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Þá hefur bæjarstjórnin kynnt sér gildandi græna umgjörð Lánasjóðs sveitarfélaga og samþykkir að ráðstöfun lánsins falli að henni. Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu Svansvottaðs leikskóla sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Almari Guðmundssyni bæjarstjóra, kt. 030572-2979, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.

Málsnúmer 2212142

11

Brottfall samþykktar um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir staðfestingu á viðauka um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Garðabæjar sem hefur verið birtur í B- deild Stjórnartíðinda.

Bæjarstjóri lagði til brottfall samþykktar um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 15. desember 2022.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða brottfall samþykktarinnar frá 15. desember 2022.

Málsnúmer 2212244

12

Samkomulag um kjarasamningsumboð vegna kjarasamningsgerðar.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi endurnýjun kjarasamningsumboðs og samkomulag um sameiginlega ábyrgð.

Ingvar Arnarson, tók til máls varðandi samkomulag um sameiginlega ábyrgð.

Almar Guðmundson, tók til máls og svaraði fyrirspurn.

Bæjarstjórn samþykkir umboð til Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna gerð kjarasamninga og samkomulag um sameiginlega ábyrgð og felur bæjarstjóra undirritun viðkomandi skjala.