Beint í efni

Fundargerð skipulagsnefndar frá 23/2 ´23.

Málsnúmer 2302030F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

4. (919). fundur

Rakel Steinberg Sölvadóttir, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands. og lagði fram eftirfarandi bókun sem fulltrúi Viðreisnar lagði fram á fundi skipulagsnefndar.

"Viðreisn leggur til að aldursskilyrði sem núna eru í drögum að skipulagi Arnarlandsins verði endurskoðuð með því markmiðið að fallið verði frá einhverjum skilyrðum um aldur íbúa eða hugmyndir um æskilegar fjölskyldusamsetningar á svæðinu.
Til þess að gera þetta mögulegt myndi Garðabær óska eftir innviðasamningi við Kópavog um samnýtingu innviða fyrir svæðið, til dæmis skólaþjónustu."

Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Björg Fenger, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands. Björg lagði fram eftirfarandi bókun.

„Skipulagslýsing fyrir Arnarland þe. breyting á aðalskipulagi Garðabæjar og nýtt deiliskipulag fyrir blandaða byggð var auglýst í febrúar 2022. Í lýsingunni koma fram helstu áherslu bæjaryfirvalda við gerð nýs deiliskipulags. Tilgangur lýsingarinnar er m.a. að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferlinu á fyrstu stigum þess, auka gagnsæi, tryggja betra upplýsingaflæði og skila betri og markvissari skipulagsvinnu. Allar ábendingar sem sendar eru inn varðandi lýsinguna eru skoðaðar og metið hvort tilefni sé til breytinga áður en farið er í forkynningu. Samstarf og samvinna við Kópavogsbæ í skipulagsferlinu er mikilvæg m.a. vegna umferðarmála en einnig til að samhæfa skipulag sveitarfélaganna.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að við þróun Arnarlands verði hugað að góðum tengingum svæðisins við önnur hverfi bæjarins og munu þeir sem velja sér búsetu í hinu nýja og spennandi hverfi njóta góðs að þeirri þjónustu sem Garðabær býður upp á, á sama hátt og aðrir íbúar Garðabæjar.“

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Hlynur E. Bæringsson, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Rakel Steinberg Sölvadóttir, ræddi að nýju 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju 2. tl., skipulagslýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi Arnarlands.

Fundargerðin lögð fram.