Brottfall samþykktar um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
4. (919). fundur
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir staðfestingu á viðauka um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Garðabæjar sem hefur verið birtur í B- deild Stjórnartíðinda.
Bæjarstjóri lagði til brottfall samþykktar um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 15. desember 2022.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða brottfall samþykktarinnar frá 15. desember 2022.
Fjölskylduráð Garðabæjar
02
11. fundur
Á fundi bæjarstjórnar 15. desember 2022 voru staðfest drög að samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Garðabæjar. Samþykktin tekur mið af barnaverndarlögum nr. 80/2002 og er sett á grundvelli 3. mgr. 12. gr. laganna þar sem segir að sveitarstjórn setji samþykkt þar sem vald til fullnaðarafgreiðslu mála samkvæmt barnaverndarlögum er falið einum eða fleiri úr hópi starfsfólks barnaverndarþjónustu eftir því sem nánar er mælt fyrir um í lögunum. Lagt fram til kynningar fjölskylduráðs.
Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Garðabæjar lögð fram til kynningar. Samþykktin, sem staðfest var af bæjarstjórn 15.12.2022, tekur gildi 1. janúar 2023.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
18. (914). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samþykktir um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
04
45. (2052). fundur
Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði gerði grein fyrir drögum að samþykktunum um fullnaðarafgreiðslu mála hjá baranverndarþjónustu. Í samþykktunum kemur fram að tilgreindum starfsmönnum barnaverndarþjónustu Garðabæjar er falið umboð til könnunar, meðferðar og ákvarðanatöku í einstökum barnaverndarmálum og öðrum málum þar sem barnaverndarþjónusta fer lögum samkvæmt með ákvörðunarvald.
Bæjarráð vísar samþykktunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.