Beint í efni

11. fundur

21.12.2022
Fjölskylduráð Garðabæjar

11. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

21.12.2022

Kl. 16:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Eymundur Sveinn Einarsson - varamaður

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2208745

01

Samningur um samræmda móttöku flóttafólks

Lagt fram til umræðu.

Minnisblað Guðrúnar Jónsdóttur verkefnastjóra og Svanhildar Þengilsdóttur sviðsstjóra, dags. 16.12.2022 lagt fram til umræðu. Verkefnastjóri og sviðsstjóri gerðu grein fyrir stöðu mála varðandi mótttöku flóttfólks í Garðabæ.

Málsnúmer 2212074

02

Umsókn um fjárhagsaðstoð - trygging húsaleigu

Mál nr. 2212074, lagt fram til afgreiðslu, umsókn um fjárhagsaðstoð.

Afgreiðsla máls nr. 2212074. Umsókn um styrk vegna tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir umsóknina. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2212142

03

Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu

Á fundi bæjarstjórnar 15. desember 2022 voru staðfest drög að samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Garðabæjar. Samþykktin tekur mið af barnaverndarlögum nr. 80/2002 og er sett á grundvelli 3. mgr. 12. gr. laganna þar sem segir að sveitarstjórn setji samþykkt þar sem vald til fullnaðarafgreiðslu mála samkvæmt barnaverndarlögum er falið einum eða fleiri úr hópi starfsfólks barnaverndarþjónustu eftir því sem nánar er mælt fyrir um í lögunum. Lagt fram til kynningar fjölskylduráðs.

Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Garðabæjar lögð fram til kynningar. Samþykktin, sem staðfest var af bæjarstjórn 15.12.2022, tekur gildi 1. janúar 2023.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2011383

04

Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannssaðstoðar

Á fundi bæjarstjórnar 15.12.2022 voru samþykktar breytingar á reglum um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Breytingarnar fólu í sér samræmingu við breytingar á barnaverndarlögum þar sem fastanefndum sveitarfélaga er ekki lengur falið úrskurðarvald í barnaverndarmálum heldur umdæmisráði barnaverndar.

Lagt fram til kynningar fjölskylduráðs.

Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 lagðar fram til kynningar. Reglurnar voru samþykktar af bæjarstjórn 15.12.2022.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1903268

05

Tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð

Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar til nóvember 2022 lögð fram til umræðu og kynningar.

Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar-nóvember 2022 lögð fram til kynningar. Fjölskylduráð óskar þess að fá upplýsingar um tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð fjórum sinnum á ári, næst í mars 2023.

Málsnúmer 2206389

06

Önnur mál

Fjölskylduráði tilkynnt um fyrirhuguð starfslok Hildigunnar Árnadóttur, umsjónarfélagsráðgjafa sem hefur verið ráðin sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs Akraness frá og með næstu áramótum.

Fjölskylduráð Garðabæjar þakkar Hildigunni Árnadóttur, umsjónarfélagsráðgjafa, fyrir vel unnin störf í þágu sviðsins og óskar henni velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.

Málsnúmer 2206219

07

Félagsstarf eldri borgara í Jónshúsi

Kynning á félagsstarfi eldri borgara í Jónshúsi þar sem farið verður yfir þá virkni sem verið er að bjóða upp á og hvað framundan er í starfinu.

Fundurinn færðist niður í Jónshús á Sjálandi þar sem Elín Þ. Þorsteinsdóttir, umsjónarmaður félagsstarfs eldri borgara í Garðabæ mætti til fundarins, kynnti fjölskylduráði starfsemi eldri borgara í Garðabæ ásamt félagsstarfi eldra fólks í Jónshúsi og svaraði spurningum ráðsmanna.