Kynning fyrir fjölskylduráð
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
4. fundur
Kynning á starfsemi Ísafoldar, hjúkrunarheimilis og dagdvalar.
Sara Pálmadóttir forstöðumaður Ísafoldar sat fundinn undir þessum dagskrárlið, kynnti starfsemi Ísafoldar hjúkrunarheimilis og dagdvalar og svaraði fyrirspurnum. Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu sat einnig fundinn undir þessum lið.
Fjölskylduráð Garðabæjar
02
11. fundur
Kynning á félagsstarfi eldri borgara í Jónshúsi þar sem farið verður yfir þá virkni sem verið er að bjóða upp á og hvað framundan er í starfinu.
Fundurinn færðist niður í Jónshús á Sjálandi þar sem Elín Þ. Þorsteinsdóttir, umsjónarmaður félagsstarfs eldri borgara í Garðabæ mætti til fundarins, kynnti fjölskylduráði starfsemi eldri borgara í Garðabæ ásamt félagsstarfi eldra fólks í Jónshúsi og svaraði spurningum ráðsmanna.
Fjölskylduráð Garðabæjar
03
8. fundur
Lögð fram til kynningar staða málaflokks fatlaðs fólks í Garðabæ. Pála Marie Einarsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi fer yfir stöðuna.
Pála Marie Einarsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi, fer yfir stöðu málaflokksins og helstu verkefni framundan.
Fjölskylduráð Garðabæjar
04
5. fundur
Mál nr. 2206219, kynning fyrir fjölskylduráð um verkefni fjölskyldusviðs og aðkomu fjölskylduráðs að þeim málum.
Mál nr. 2206219, kynning fyrir fjölskylduráð. Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur fjölskyldusviðs fer yfir helstu hlutverk og verkefni fjölskylduráðs. Viðstaddir fulltrúar fjölskylduráðs skrifa undir yfirlýsingu um trúnaðar- og þagnarskyldu.