8. fundur
8. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
21.09.2022
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Hildigunnur Árnadóttir
Dagskrá
01
Kynning fyrir fjölskylduráð
Lögð fram til kynningar staða málaflokks fatlaðs fólks í Garðabæ. Pála Marie Einarsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi fer yfir stöðuna.
Pála Marie Einarsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi, fer yfir stöðu málaflokksins og helstu verkefni framundan.
02
Tillaga um húsnæðismál fatlaðs fólks.
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 15.9.2022 var samþykkt að fela fjölskyldusviði Garðabæjar í samráði við fjölskylduráð og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks að yfirfara verklag við gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk, þ.m.t. aðgengi fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra að upplýsingum um stöðu þeirra á biðlistum bæjarins. Stefnt skal að því að niðurstaða yfirferðar fjölskylduráðs og fjölskyldusviðs liggi fyrir til kynningar í bæjarráði eigi síðar en í lok nóvember n.k.
Lagt fram til umræðu og áframhaldandi vinnslu.
Fjölskylduráð felur starfsfólki fjölskyldusviðs að hefja vinnu við yfirferð fyrrnefnds verklags og leggja kynningu á stöðu þess fyrir fund ráðsins í október. Málið verði kynnt sem fyrst fyrir samráðshópi um málefni fatlaðs fólks til að tryggja aðkomu hópsins að málinu.
Fylgiskjöl
03
Tillaga um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 15.9.2022 var samþykkt að fela bæjarstjóra í samráði við fjölskyldusvið Garðabæjar og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks að leita til ráðgjafa um mótun tillögu að útfærslu og tímasetningu á rýnihópum notenda og aðstandenda um helstu þætti þjónustu Garðabæjar við fatlað fólk með það að markmiði að öðlast dýpri skilning á þörf þjónustuþega og kanna væntingar fólks til þjónustunnar. Með vinnu rýnihópanna verði leitast til að fá fram góðan og áreiðanlegan grunn til að vinna með til að bæta þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ. Lagt skuli upp með að fundir rýnihópanna verði haldnir hið fyrsta og að samantekt úr vinnu hópanna liggi fyrir til kynningar í bæjarráði eigi síðar en tveimur vikum eftir að framkvæmd lýkur. Lagt fyrir fjölskylduráð til umræðu og kynningar.
Tillagan rædd. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju með framkomna tillögu og óskar þess að fá að fylgjast með framgangi málsins.
Fylgiskjöl
04
Breytt skipulag barnaverndar (umdæmisráð)
Mál nr. 2112038 lagt fram til umræðu í fjölskylduráði, varðandi sameiginlega aðkomu sveitarfélaga að rekstri umdæmisráðs samkvæmt nýrri 13. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Á fundi sviðsstjóra velferðarmála á höfuðborgarsvæðinu hinn 14.09.2022 sl. kom fram að fleiri sveitarfélög, utan Kragans, hefðu óskað eftir aðkomu að sameiginlegri starfssemi umdæmisráðs sem sviðsstjórar á höfuðborgarsvæðinu eru jákvæðir gagnvart, enda í samræmi við markmið laganna um faglegri meðferð barnaverndarmála, aukningu málafjölda til umfjöllunar hjá umdæmisráði og aukna hagkvæmni.
Barna- og fjölskyldustofa hefur lagt fram sniðmát að samningi milli sveitarfélaga um rekstur umdæmisráðs sem sveitarstjórnir þurfa að taka formlega afstöðu til. Sá samningur tekur ekki á rekstrarkostnaði, fjalla þarf um það sérstaklega.
Sviðsstjórar í velferðarþjónustu munu senda sameiginlegt erindi á SSH þar sem óskað er eftir formlegri ákvörðun sveitarstjórna um samstarfið, en umdæmisráð taka formlega til starfa frá og með 01. janúar 2023.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
Fylgiskjöl
05
Drög að reglugerð um tengiliði og málstjóra í samráðsgátt stjórnvalda
Drög að reglugerð um tengiliði og málstjóra samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna liggur í samráðsgátt. Málinu var vísað til kynningar í fjölskylduráði á fundi bæjarráðs 16.8.2022.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
06
Ósk um yfirlýsingu frá Barnaverndarnefnd Garðabæjar, sbr. 2. mgr. 38. gr. reglugerðar nr. 652/2004, vegna reksturs á skammtímaheimili fyrir börn og ungmenni
Tekið er fyrir mál nr. 2206349, beiðni frá Klettabæ dags. 21.06.2022 þar sem óskað er eftir yfirlýsingu frá barnaverndarnefnd Garðabæjar, sbr. 2. mgr. 38. gr. reglugerðar nr. 652/2004, um að barnaverndarnefndin sjái því ekkert til fyrirstöðu að Klettabær setji á laggirnar bráðavistun skv. 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 fyrir börn og ungmenni á miðhæð og efstu hæð í Breiðási 11. Málið fór fyrir fund fjölskylduráðs í ágústmánuði þar sem bókað var að barnaverndarnefnd Garðabæjar sæi ekkert því til fyrirstöðu að viðkomandi skammtímaheimili yrði sett á laggirnar. Óskað hefur verið eftir skýrari yfirlýsingu að um sé að ræða bráðavistun á grundvelli 84. gr. barnaverndarlaga. Málið er því lagt aftur fyrir fjölskylduráð til bókunar.
Afgreiðsla máls nr. 2206349. Á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga í greinargerð starfsmanns barnaverndarþjónustu, sér barnaverndarnefnd Garðabæjar ekkert því til fyrirstöðu að Klettabær setji á laggirnar bráðavistun skv. 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, á miðhæð og efstu hæð að Breiðási 11, 210 Garðabæ.
Fylgiskjöl
07
Umsókn um fjárhagsaðstoð - trygging húsaleigu/ábyrgðaryfirlýsing
Mál nr. 2209239, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu lögð fyrir fjölskylduráð til afgreiðslu.
Tekið er fyrir mál nr. 2209239 umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
08
Umsókn um fjárhagsaðstoð - trygging vegna greiðslu húsaleigu
Mál nr. 2208497, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu lögð fyrir fjölskylduráð til afgreiðslu.
Tekið er fyrir mál nr. 2208497 umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
09
Tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar til ágúst 2022 lagt fram til umræðu og kynningar.
Mál nr. 1903268 lagt fram til kynningar, tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar-ágúst 2022. Fjölskylduráð óskar þess að fá upplýsingar um tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð um fjórum sinnum á ári, næst í desember 2022.
Fylgiskjöl
10
Móttaka flóttafólks - staða mála.
Minnisblað verkefnastjóra í málefnum flóttafólks lagt fram til umræðu og kynningar.
Snædís Björnsdóttir, verkefnastjóri á fjölskyldusviði, fer yfir minnisblað um stöðu flóttafólks í Garðabæ og umfang þjónustu við hópinn.