Beint í efni

Móttaka flóttafólks - staða mála.

Málsnúmer 2205327

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

9. fundur

Verkefnastjóri samræmdrar móttöku flóttafólks fer yfir stöðu mála í Garðabæ og kynnir innihald ársskýrslu sem sveitarfélaginu ber að skila til Félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins í október, sbr. kröfulýsingu samningsins um samræmda móttöku flóttafólks.

Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri samræmdrar móttöku flóttafólks fer yfir stöðu mála í Garðabæ og kynnir innihald ársskýrslu sem sveitarfélaginu ber að skila til Félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins í október, sbr. kröfulýsingu samningsins um samræmda móttöku flóttafólks.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

5. f.(920). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að ganga til samninga við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið um samræmda móttöku flóttafólks og felur bæjarstjóra undirritun samningsins. (Mál nr. 2205327)

Fjölskylduráð Garðabæjar

03

3. fundur

Minnisblað um næstu skref í móttöku flóttafólks í Garðabæ lagt fram til umræðu.

Fjölskylduráð þakkar verkefnastjóra fjölskyldusviðs í málefnum flóttafólks fyrir að hafa leitt umfangsmikla og góða þjónustu fyrir þann stóra hóp flóttafólks sem hefur flutt í Garðabæ á síðastliðnu ári. Um er að ræða viðkvæman hóp með fjölþættar þjónustuþarfir og hefur verkefnið falið í sér margar áskoranir sem verkefnastjóri og fjölskyldusvið hafa unnið með á afar faglegan og lausnamiðaðan hátt.

Fjölskylduráð fagnar því að Garðabær hafi verið valinn ásamt þremur öðrum sveitarfélögum til þess að vinna með mennta- og barnamálaráðuneytinu við að meta reynslu og framgang reynsluverkefnis til stuðnings móttöku barna á flótta hjá sveitarfélögum skólaárið 2022-2023. Framlög sem hafa komið vegna skólamála flóttabarna eru lægri en raunkostnaður gefur til kynna og fjölskylduráð telur æskilegt að stuðningur ráðuneytisins við skólaþjónustu sveitarfélaganna sé hluti af samningi um samræmda móttöku flóttamanna til að tryggja betur samræmingu og fjármögnun velferðarþjónustu og skólaþjónustu sveitarfélaganna í verkefninu.

Bæjarráð Garðabæjar

04

11. (2064). fundur

Á fund bæjarráðs kom Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri á fjölskyldusviði og gerði grein fyrir minnisblaði um næstu skref varðandi móttöku flóttafólks í Garðabæ. Guðrún fór nánar yfir verkefni er varða þjónustu og stuðning við flóttafólk sem flutt hefur til Garðabæjar. Í minnisblaðinu kemur fram hvað felst í því að gera samning við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið um samræmda móttöku flóttafólks en með samningnum tryggir ríkið ákveðið fjármagn til verkefnisins auk þess sem sveitarfélaginu er endurgreiddur sérstakur húsnæðisstuðningur sem flóttafólk fær greiddan fyrstu tólf mánuðina.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að ganga til samninga við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið um samræmda móttöku flóttafólks.

Bæjarráð Garðabæjar

05

46. (2053). fundur

Á fund bæjarráðs kom Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri og gerði ásamt sviðstjóra grein fyrir stöðum mála varðandi móttöku flóttafólks. Farið var yfir minnisblað, dags. 16.12.2022, sem vistað hefur verið í fundargátt bæjarráðs.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

06

8. fundur

Minnisblað verkefnastjóra í málefnum flóttafólks lagt fram til umræðu og kynningar.

Snædís Björnsdóttir, verkefnastjóri á fjölskyldusviði, fer yfir minnisblað um stöðu flóttafólks í Garðabæ og umfang þjónustu við hópinn.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

07

33. (2040). fundur

Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Garðabæ vegna móttöku flóttafólks kom á fund bæjarráðs. Guðrún gerði grein fyrir minnisblaði um móttöku flóttafólks í Garðabæ

Í lok ágústmánaðar voru 99 flóttamenn skráðir með lögheimili í Garðabæ og þar af voru 44 börn.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

08

6. fundur

Mál nr. 2205327, minnisblað um stöðu mála flóttafólks frá Úkraínu lagt fram til umræðu.

Mál nr. 2205327, minnisblað um stöðu flóttafólks. Guðrún Jónsdóttir verkefnastjóri í málefnum flóttafólks situr fundinn og svara spurningum nefndarmanna.

Bæjarráð Garðabæjar

09

19. (2026). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Garðabæ vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu. Guðrún gerði nánari grein fyrir fjölda og samsetningu hópsins og helstu verkefnum við að gera einstaklingum kleift að halda virkni og aðlagast samfélaginu.