9. fundur
9. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
25.10.2023
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Snædís Björnsdóttir
Dagskrá
01
Móttaka flóttafólks - staða mála.
Verkefnastjóri samræmdrar móttöku flóttafólks fer yfir stöðu mála í Garðabæ og kynnir innihald ársskýrslu sem sveitarfélaginu ber að skila til Félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins í október, sbr. kröfulýsingu samningsins um samræmda móttöku flóttafólks.
Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri samræmdrar móttöku flóttafólks fer yfir stöðu mála í Garðabæ og kynnir innihald ársskýrslu sem sveitarfélaginu ber að skila til Félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins í október, sbr. kröfulýsingu samningsins um samræmda móttöku flóttafólks.
02
Liðveisla
Beiðni um endurskoðun ákvörðunar afgreiðslufunds um stuðnings- og stoðþjónustu frá 29.8.2023.
Niðurstaða afgreiðslufundar um stuðnings- og stoðþjónustu frá 29.8.2023 er staðfest en skal endurskoðuð innan þriggja mánaða. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
03
Liðveisla
Beiðni um endurskoðun ákvörðunar afgreiðslufunds um stuðnings- og stoðþjónustu frá 29.8.2023.
Niðurstaða afgreiðslufundar um stuðnings- og stoðþjónustu frá 29.8.2023 er staðfest en skal endurskoðuð innan þriggja mánaða. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
04
Jafnréttisáætlun Garðabæjar 2023-2027
Fjölskylduráð fer með jafnréttismál sveitarfélagsins og skal hafa, með stuðningi starfsfólks, umsjón með undirbúningi áætlunar sveitarfélagsins um jafnréttismál og framkvæmd hennar, sbr. 2. mgr. 13. gr. laga nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála.
Lögin tóku gildi 6. janúar 2021. Með þeim varð sú breyting að gæta skyldi að fleiri mismununarástæðum en kyni í áætlun sveitarfélagsins, þ.e. einnig kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum og kyntjáningu. Í núgildandi jafnréttisstefnu Garðabæjar var þó þegar tekið mið af öllum fyrrnefndum mismununarástæðum.
Sveitarfélög þurfa að uppfylla skilyrði laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði, nr. 85/2018 um jafna meðferð utan vinnumarkaðar og nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála. Áætlun sveitarfélagsins skal taka til markmiða og aðgerða til að stuðla að jafnrétti og jafnri meðferð við ráðstöfun fjármagns, í þjónustu sveitarfélagsins og starfsmannamálum. Sveitarfélagið skal vinna að kynja- og jafnréttissjónarmiðum á öllum sviðum, í stefnumótun, áætlanagerð og ákvörðunartöku.
Lagt fram til umræðu.
Fjölskylduráð fer með jafnréttismál sveitarfélagsins og skal hafa, með stuðningi starfsfólks, umsjón með undirbúningi áætlunar sveitarfélagsins um jafnréttismál og framkvæmd hennar, sbr. 2. mgr. 13. gr. laga nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála. Unnið er að gerð jafnréttisstefnu og aðgerðabundinni áætlun, m.a. á fjölskyldusviði Garðabæjar. Stefnt er að því að fyrstu drög liggi fyrir í desember nk. og tillaga verði lögð fyrir bæjarstjórn vorið 2024.