3. fundur
3. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
15.03.2023
Kl. 16:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
- Theodóra Fanndal Torfadóttir - varamaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
- Guðrún Jónsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Móttaka flóttafólks - staða mála.
Minnisblað um næstu skref í móttöku flóttafólks í Garðabæ lagt fram til umræðu.
Fjölskylduráð þakkar verkefnastjóra fjölskyldusviðs í málefnum flóttafólks fyrir að hafa leitt umfangsmikla og góða þjónustu fyrir þann stóra hóp flóttafólks sem hefur flutt í Garðabæ á síðastliðnu ári. Um er að ræða viðkvæman hóp með fjölþættar þjónustuþarfir og hefur verkefnið falið í sér margar áskoranir sem verkefnastjóri og fjölskyldusvið hafa unnið með á afar faglegan og lausnamiðaðan hátt.
Fjölskylduráð fagnar því að Garðabær hafi verið valinn ásamt þremur öðrum sveitarfélögum til þess að vinna með mennta- og barnamálaráðuneytinu við að meta reynslu og framgang reynsluverkefnis til stuðnings móttöku barna á flótta hjá sveitarfélögum skólaárið 2022-2023. Framlög sem hafa komið vegna skólamála flóttabarna eru lægri en raunkostnaður gefur til kynna og fjölskylduráð telur æskilegt að stuðningur ráðuneytisins við skólaþjónustu sveitarfélaganna sé hluti af samningi um samræmda móttöku flóttamanna til að tryggja betur samræmingu og fjármögnun velferðarþjónustu og skólaþjónustu sveitarfélaganna í verkefninu.
02
Leigustyrkur - fjárhagsaðstoð<br/><br/>
Mál nr. 2303266, leigustyrkur, fjárhagsaðstoð lagt fram til kynningar.
Í apríl 2022 tók góðgerðafélagið Einhorn 16 íbúðir í Urriðaholtsstræti 26 á leigu af Ölmu leigufélagi. Leigusamningur var gerður til eins árs og framleigði og niðurgreiddi Einhorn íbúðirnar til flóttafólks frá Úkraínu. Leigusamningi Einhorns við Ölmu leigufélag lýkur 31. mars nk. og 1. apríl nk. tekur Alma leigufélag við sem leigusali og hefur hækkað leiguverð íbúðanna.
Vegna erfiðra félagslegra aðstæðna nær allra íbúa í Urriðaholtsstræti 26 og mikilvægis þess að tryggja börnum þeirra stöðugleika og öruggan húsnæðiskost ákvað Garðabær að veita fjárhagsaðstoð til íbúa í formi leigustyrks að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Fjárhagsaðstoðin væru veitt tímabundið og þörf íbúa fyrir aðstoð endurskoðuð á 3 mánaða fresti.
Fjölskyldusvið útfærði tiltekin reikniviðmið sem litið var til við útfærslu leigustyrks. Við mat á útreikningum fyrir leigustyrk íbúa voru lagðar til grundvallar forsendur þar sem tekið var mið af tekjum og eignum heimilisfólks, greiðslubyrði vegna leigu, fjárhæð húsnæðisbóta og sérstaks húsnæðisstuðnings, fjölskyldusamsetningu auk þess sem lagt var mat á hvort leigustyrkurinn miðaði að því að viðhalda árangri sem náðst hefði með sérstökum úrræðum og markvissum stuðningi fjölskyldusviðs.
Þegar útreikningar lágu fyrir voru íbúar hverrar íbúðar upplýstir um þátttöku Garðabæjar í leigustyrk, með tölvupósti. Jafnframt var þeim gefinn kostur á að áfrýja ákvörðun fjölskyldusviðs til fjölskylduráðs.
Forsendur leigustyrks í formi fjárhagsaðstoðar lagðar fram til kynningar.
03
Stafræn húsnæðisáætlun 2022
Húsnæðisáætlun Garðabæjar til umræðu.
Húsnæðisáætlun Garðabæjar 2023 var til umræðu í bæjarráði 14. mars sl. og var vísað til fjölskylduráðs til kynningar. Umræða, Svanhildur Þengilsdóttir og Snædís BJörnsdóttir svara fyrirspurnum nefndarmanna.
04
Fjölgun NPA samninga á árinu 2023
Bréf frá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu vegna fjölgunar NPA samninga á árinu 2023 lagt fram.
Bréf frá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu vegna fjölgunar NPA samninga á árinu 2023 lagt fram.
Í desember 2022 var á Alþingi samþykkt frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018. Breytingarnar fólust annars vegar í því að innleiðingartímabil notendastýrðar persónulegrar aðstoðar (NPA) var framlengt til ársloka 2024 og hins vegar í fjölgun samninga á árunum 2023 og 2024.
Fjölskylduráð Garðabæjar telur nauðsynlegt að félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standi við skuldbindingar sínar um þátttöku í fyrirséðum nýjum samningum um notendastýrða persónulega aðstoð og að vinnu við það verklag sem upplýst er um í bréfinu verði lokið sem allra fyrst.
05
Tillaga um að tryggja frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins.
Minnisblað fjölskyldusviðs um núverandi verklag og framkvæmd sviðsins á frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins hvað varðar þjónustu við fatlað fólk lagt fram.
Minnisblað fjölskyldusviðs um núverandi verklag og framkvæmd sviðsins á frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins hvað varðar þjónustu við fatlað fólk lagt fram til umræðu.