Húsnæðisáætlun Garðabæjar 2023
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
5. f.(920). fundur
Almar Guðmundsson, fylgdi úr hlaði uppfærslu húsnæðisáætlunar Garðabæjar til 10 ára.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Við í Viðreisn fögnum því hve vel Garðabær mætir uppbyggingaþörf á húsnæðismarkaðinn um almennt. Hins vegar teljum við í Viðreisn mikilvægt að rýna hvernig megi tryggja betur aukið framboð af fjölbreyttu almennu húsnæði en ekki síður í húsnæði sem telst til félagslegs húsnæðis í eigu Garðabæjar sem og í eigum óhagnaðadrifinna félaga í ljósi þess vaxtar sem á sér stað í sveitarfélaginu. Vaxtar sem lýsir sér í fjölbreyttari íbúasamsetningu en áður, aukningu í yngri íbúum sem sömuleiðis kallar á fjölbreyttari leiðir í vali á húsnæði.“
Sara Dögg Svanhildardóttir oddviti Viðreisnar.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Uppfærð húsnæðisáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023 endurspeglar metnaðarfulla íbúðauppbyggingu Garðabæjar á næstu árum sem mun mæta brýnni þörf á húsnæðismarkaði.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að standa vörð um góða þjónustu við bæjarbúa, sem staðfest er í nýlegri íbúakönnun. Því þarf að tryggja að uppbyggingu innviða fylgi fjölgun íbúða og hverfa í bænum, hér eftir sem hingað til.
Í húsnæðisáætlun er lögð áhersla á fjölbreytni í íbúðagerð og að framboð af sérbýli aukist. Þá er það mjög mikilvæg áhersla að uppbygging í bænum skapi tækifæri fyrir ólíka hópa til að eignast húsnæði við hæfi, hvort sem um er að ræða fyrstu kaup eða tilfærslu yfir í stærra eða minna húsnæði eftir aðstæðum hvers og eins. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins standa þannig vörð um séreignarstefnu.
Í húsnæðisáætlun er þörfum hinna ýmsu hópa fyrir hagkvæmar íbúðir mætt, m.a. með leiguúrræðum. Þá er stefnt að umtalsverðri fækkun einstaklinga og fjölskyldna á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði.“
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans ítreka þá skoðun sína að áætlanir um húsnæðisuppbyggingu ættu að gera ráð fyrir því að allt að 30% nýs húsnæðis í Garðabæ á næstu tíu árum verði hagkvæmt húsnæði, t.d. leiguhúsnæði á vegum óhagnaðardrifinna félaga og hlutdeildarlánaíbúðir, og þar af 5% félagslegar leiguíbúðir. Í fyrirliggjandi húsnæðisáætlun er þetta hlutfall um 10%. Það er skoðun okkar að Garðabær verði að taka ábyrgð á ástandinu á húsnæðismarkaði til jafns við önnur sveitarfélög og bjóða upp á fjölbreyttari valkosti sem henta fleiri tekjuhópum. Við sitjum því hjá, með von um að áætlunin taki breytingum við næstu endurskoðun.“
Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls að nýju.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls að nýju.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls að nýju.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum uppfærslu húsnæðisáætlunar Garðabæjar til 10 ára í samræmi við 1. gr. reglugerðar um húsnæðisáætlun sveitarfélaga nr. 1248/2018, sbr. breyting samkvæmt reglugerð nr. 1597/2022 og lögum um húsnæðismál nr. 44/1998.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir sitja hjá.
Fjölskylduráð Garðabæjar
02
3. fundur
Húsnæðisáætlun Garðabæjar til umræðu.
Húsnæðisáætlun Garðabæjar 2023 var til umræðu í bæjarráði 14. mars sl. og var vísað til fjölskylduráðs til kynningar. Umræða, Svanhildur Þengilsdóttir og Snædís BJörnsdóttir svara fyrirspurnum nefndarmanna.
Bæjarráð Garðabæjar
03
11. (2064). fundur
Lögð fram skýrsla um húsnæðisáætlun Garðabæjar til 10 ára í samræmi við 1. gr. reglugerðar um húsnæðisáætlun sveitarfélaga nr. 124/2018, sbr. breyting samkvæmt reglugerð nr. 1597/2022 og lögum um húsnæðismál nr. 44/1998.
Áætlunin byggir á greiningu um þörf fyrir íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu með tilliti til mismunandi búsetuforma. Við greininguna skal m.a. skoða framboð og eftirspurn eftir mismunandi búsetuformum og hvort jafnvægi ríki á húsnæðismarkaði. Þá skal meta þörf fyrir húsnæði til að mæta þörfum einstakra hópa s.s. fatlaðs fólks, eldri borgara, tekju- og eignaminni og námsmanna, auk húsnæðisþarfar á almennum markaði. Áætlunin byggir á almennum upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og upplýsingum frá Garðabæ sem færðar hafa verið í starfrænt áætlunarkerfi HMS.
Bæjarstjóri fór yfir helstu forsendur, lykiltölur og áætlun um íbúðaþörf til tíu ára.
Bæjarstjórn vísar húsnæðisáætlun Garðabæjar 2023 - 2032 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur fjölskyldusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð Garðabæjar
04
10. (2063). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu við endurskoðun húsnæðisáætlunar Garðabæjar 2023.
Á fund bæjarráð kom Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði og gerði grein fyrir upplýsingaöflun og undirbúningi að endurskoðun húsnæðisáætlunar Garðabæjar árið 2023. Snædís kynnti nokkrar lykiltölur sem lagðar eru til grundvallar við gerð áætlunarinnar.
Gert er ráð fyrir að leggja fram tillögu að endurskoðun húsnæðisáætlunar Garðabæjar árið 2023 á fundi bæjarráðs 14. mars, til kynningar í fjölskylduráði 15. mars og til afgreiðslu og staðfestingar í bæjarstjórn 16. mars.
Bæjarráð Garðabæjar
05
9. (2062). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu við endurskoðun húsnæðisáætlunar Garðabæjar sem ber að gera árlega samkvæmt 3. gr. reglugerðar um húsnæðisáætlanir sveitarfélaga.
Stefnt er að því að leggja fram tillögu að endurskoðun húsnæðisáætlunar Garðabæjar árið 2023 á fundi bæjarráðs 14. mars, til kynningar í fjölskylduráði 15. mars og til afgreiðslu og staðfestingar í bæjarstjórn 16. mars.
Bæjarstjóri mun upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um stöðu málsins, sbr. ákvæði 5. gr. reglugerðarinnar.