Beint í efni

10. (2063). fundur

07.03.2023
Bæjarráð Garðabæjar

10. (2063). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

07.03.2023

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2302558

01

Kynning á embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.

Á fund bæjarráð mættu Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður og Einar Jónsson staðgengill sýslumanns og sviðsstjóri fullnustu- og skiptasviðs. Gerðu þau grein fyrir starfsemi embættis sýslumanns, helstu verkefnum og fyrirkomulagi á samráði við sveitarfélög samkvæmt lögum um framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins í héraði nr. 50/2014.

Sigríður Logadóttir, lögfræðingur og persónufulltrúi, sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Málsnúmer 2303019

02

Vífilsstaðavegur Flataskóli - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita umhverfissviði Garðabæjar leyfi til að reisa færanalegar kennslustofur á lóð Flataskóla.

Málsnúmer 2208056

03

Miðhraun 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RA 5 ehf., kt. 590404-2410, leyfi til að breyta innra skipulagi atvinnuhúsnæðis við Miðhraun 4.

Málsnúmer 2207498

04

Endurnýjun samstarfssamnings við Félag eldri borgara í Garðabæ.

Lagður fram og kynntur endurnýjaður samningur við Félag eldri borgara í Garðabæ.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2302682

05

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um innleiðingu lýðheilsumats í íslenska löggjöf, 25. mál., dags. 28.02.23.

Lagt fram.

Málsnúmer 2211569

06

Húsnæðisáætlun Garðabæjar 2023.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu við endurskoðun húsnæðisáætlunar Garðabæjar 2023.

Á fund bæjarráð kom Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði og gerði grein fyrir upplýsingaöflun og undirbúningi að endurskoðun húsnæðisáætlunar Garðabæjar árið 2023. Snædís kynnti nokkrar lykiltölur sem lagðar eru til grundvallar við gerð áætlunarinnar.

Gert er ráð fyrir að leggja fram tillögu að endurskoðun húsnæðisáætlunar Garðabæjar árið 2023 á fundi bæjarráðs 14. mars, til kynningar í fjölskylduráði 15. mars og til afgreiðslu og staðfestingar í bæjarstjórn 16. mars.

Málsnúmer 2201363

07

Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ.

Reglurnar voru til umfjöllunar á fundi fjölskylduráðs 22. febrúar 2023 og vísaði ráðið þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði grein fyrir vinnu við endurskoðun reglnanna og fór yfir helstu breytingar.

Bæjarráð vísar endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2302595

08

Drög að samkomulagi við Landsbankann hf. um lóðir við Kjarrprýði.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Landsbankann hf um ráðstöfun lóða við Kjarrprýði.

Málsnúmer 2303086

09

Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi frumvarp um breytingar á kosningalögum í samráðsgátt, dags. 01.03.23.

Lögð fram.

Málsnúmer 2301245

10

Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga varðandi framlag úr Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna úrbóta á aðgengismálum, dags. 13.02.23.

Í bréfinu kemur fram að ráðgjafanefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur fjallað um umsókn Garðabæjar um framlag vegna framkvæmda við úrbætur á heimilum fatlaðs fólks. Nefndin samþykkti að veita Garðabæ hámarksframlag samkvæmt reglum sjóðsins að fjárhæð kr. 10.976.878.

Fylgiskjöl