Beint í efni

Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ

Málsnúmer 2201363

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. f.(920). fundur

Bæjarstjórn samþykkir reglur um fjárhagsaðstoð í Garðabæ til að gilda frá 1. apríl 2023. Jafnframt falla úr gildi reglur um fjárhagsaðstoð sem samþykktar voru á fundi bæjarstjórnar 21. desember 2017.

Bæjarráð Garðabæjar

02

10. (2063). fundur

Reglurnar voru til umfjöllunar á fundi fjölskylduráðs 22. febrúar 2023 og vísaði ráðið þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði grein fyrir vinnu við endurskoðun reglnanna og fór yfir helstu breytingar.

Bæjarráð vísar endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Fjölskylduráð Garðabæjar

03

2. fundur

Málið var síðast á dagskrá á fundi fjölskylduráðs 26.10.2022 og er í vinnslu á fjölskyldusviði. Drög að endurskoðuðum reglum eru nú lögð fyrir ráðið.

Fjölskylduráð vísar framlögðum drögum að breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð í Garðabæ til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Fjölskylduráð Garðabæjar

04

9. fundur

Málið var síðast á dagskrá á fundi fjölskylduráðs 16.03.2022 og er í vinnslu á fjölskyldusviði.

Vísað til áframhaldandi umfjöllunar á næsta fundi. Stefnt skal að því að endurskoðaðar reglur verði lagðar fram í fjölskylduráði í desember.

Fjölskylduráð Garðabæjar

05

3. fundur

Staða á endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ.

Í gildi eru reglur um fjárhagsaðstoð í Garðabæ sem voru teknar í notkun árið 2018 og hafa ekki sætt heildarendurskoðun frá þeim tíma. Mikil reynsla er komin á notkun reglnanna og tímabært að skoða reglurnar með hliðsjón af þeirri reynslu. Starfsmenn fjölskyldusviðs hafa hafið þá vinnu og leggja fyrir ráðið fyrstu drög að breytingartillögum. Framundan er einnig innleiðing á stafrænni fjárhagsaðstoð í Garðabæ og fyrir liggur að endurskoðun reglnanna þarf að taka mið af þeirri vinnu. Stafræn fjárhagsaðstoð hefur áhrif á umsóknarferli og umsýslu og stuðlar að betri þjónustu, aukinni sjálfvirkni og skjótari afgreiðslu mála.
Fjölskylduráð mun fjalla frekar um málið á næsta fundi ráðsins.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

06

2. fundur

Fjölskylduráð felur starfsmönnum fjölskyldusviðs að móta tillögur að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð í Garðabæ sem lagðar verða fyrir ráðið á vormánuðum.