2. fundur
2. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
16.02.2022
Kl. 16:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Menntastefna 2022
Drög að menntastefnu 2022, lögð fram til kynningar og umræðu. Um er að ræða drög að núgildandi skólastefnu sem ætlað er að móta í víðtæku samráði við starfsfólk skólanna, börn í leik-, grunn- og tónlistarskólum, kjörna fulltrúa, starfsfólk og bæjarbúa.
Mál nr. 2202263, endurskoðun á menntastefnu Garðabæjar lögð fram til kynningar og umræðu. Eiríkur Björn Björgvinsson,sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti samráðsferli við endurskoðun á eldri og gildandi skólastefnu Garðabæjar og svaraði spurningum fundarmanna. Stefnunni er ætlað að leggja grunn að farsælu og framsæknu skólastarfi. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju með framlagða stefnu og góða vinnu.
02
Barnaverndarmál
Dómur í barnaverndarmáli lagður fram til kynningar.
Dómur í máli 1807093, lagður fram til kynningar í fjölskylduráði Garðabæjar.
03
Barnaverndarmál
Dómur í barnaverndarmáli lagður fram til kynningar.
Dómur í máli 1805225, lagður fram til kynningar í fjölskylduráði Garðabæjar.
04
Athugasemdir og ábendingar varðandi málsmeðferð barnaverndarmála
Erindi Barnaverndarstofu lagt fram til kynningar og umræðu.
Mál 2201007 lagt fram til kynningar í fjölskylduráði og umræðu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundarins.
05
Umsókn um fjárhagsaðstoð námsstyrkur
Umsókn um námsstyrk á vorönn 2022.
Tekið er fyrir mál nr. 2201002, umsókn um námsstyrk. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar nánar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðar. Umsókn um námsstyrk á vorönn 2022 er samþykkt.
06
Umsókn um fjárhagsaðstoð námsstyrkur
Umsókn um námsstyrk á vorönn 2022.
Tekið er fyrir mál nr. 2202172, umsókn um námsstyrk. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar nánar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðar. Umsókn um námsstyrk á vorönn 2022 er samþykkt.
07
Umsókn um fjárhagsaðstoð trygging vegna húsaleigu
Umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.
Tekið er fyrir mál nr. 2201303, umsókn um styrk vegna tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar nánar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðar. Umsókn um styrk vegna tryggingar húsaleigu er synjað.
08
Umsókn um fjárhagsaðstoð trygging vegna húsaleigu
Umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.
Tekið er fyrir mál nr. 2201579, umsókn um styrk vegna tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar nánar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðar. Umsókn um styrk vegna tryggingar húsaleigu er synjað.
09
Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ
Fjölskylduráð felur starfsmönnum fjölskyldusviðs að móta tillögur að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð í Garðabæ sem lagðar verða fyrir ráðið á vormánuðum.
10
Breytt skipulag barnaverndar (umdæmisráð)
Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 1.02.2022 um nauðsynleg viðbrögð sveitarfélaga vegna breytinga á barnaverndarlögum lagt fram til umræðu.
Mál nr. 2112038 lagt fram til umræðu í fjölskylduráði. Fjölskylduráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samvinnu við sviðsstjóra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, deildarstjóra í barnavernd og Samband íslenskra sveitarfélaga. Fjölskylduráð óskar eftir að fá þær tillögur sem koma úr því samtali til umræðu í ráðinu.
11
Mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa
Lagt er fram til kynningar og umræðu bréf frá umboðsmanni barna, dags. 28. jan. 2022 um mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og réttur barna til þátttöku og áhrif.
Mál nr. 2201561, mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og réttur barna til þátttöku og áhrif, lagt fram til kynningar og umræðu.