Breytt skipulag barnaverndar (umdæmisráð)
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
1. fundur
Þann 1. janúar 2023 tók sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar í Kraganum til starfa. Á sama tíma voru barnaverndarnefndir lagðar niður sem áður gegndu úrskurðarhlutverki samkvæmt barnaverndarlögum. Umdæmisráð er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem er skipað þremur ráðsmönnum og jafn mörgum varamönnum til fimm ára í senn: lögfræðingi, sem er formaður ráðsins, félagsráðgjafa og sálfræðingi. Verkefni umdæmisráða barnaverndar er að úrskurða í málum samkvæmt 3. mgr. 13. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Aðalmenn umdæmisráðs Kragans eru:
Ómar Örn Bjarnþórsson, lögfræðingur - formaður
Laufey Þorvaldsdóttir, félagsráðgjafi
Einar Ingi Magnússon, sálfræðingur
Varamenn umdæmisráðs Kragans eru:
Kolbrún Garðarsdóttir, lögfræðingur - varaformaður
Þóra Kemp, félagsráðgjafi
Eva Sjöfn Helgadóttir, sálfræðingur
Þann 1. janúar 2023 tók sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar í Kraganum til starfa. Á sama tíma voru barnaverndarnefndir lagðar niður sem áður gegndu úrskurðarhlutverki samkvæmt barnaverndarlögum. Umdæmisráð er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem er skipað þremur ráðsmönnum og jafn mörgum varamönnum til fimm ára í senn: lögfræðingi, sem er formaður ráðsins, félagsráðgjafa og sálfræðingi. Verkefni umdæmisráða barnaverndar er að úrskurða í málum samkvæmt 3. mgr. 13. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Aðalmenn umdæmisráðs Kragans eru:
Ómar Örn Bjarnþórsson, lögfræðingur - formaður
Laufey Þorvaldsdóttir, félagsráðgjafi
Einar Ingi Magnússon, sálfræðingur
Varamenn umdæmisráðs Kragans eru:
Kolbrún Garðarsdóttir, lögfræðingur - varaformaður
Þóra Kemp, félagsráðgjafi
Eva Sjöfn Helgadóttir, sálfræðingur
Lagt fram.
Fjölskylduráð Garðabæjar
02
9. fundur
Á fundi stjórnar SSH hinn 3. október sl. var samráðshópi á sviði velferðarmála falið að vinna mál umdæmisráðs áfram og gera drög að samningi um sameiginlegt umdæmisráð auk kostnaðargreiningar og að drög yrðu lögð fyrir stjórn SSH þegar þau liggja fyrir. Sviðsstjórar velferðarsviða Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar hafa hafið gerð að drögum að samningi um sameiginlegt umdæmisráð þeirra sveitarfélaga auk Kjósarhrepps. Stefnt er að leggja drög að samningi auk kostnaðargreiningar fyrir fund stjórnar SSH, 7. nóvember n.k.
Lagt fram til kynningar.
Fjölskylduráð Garðabæjar
03
8. fundur
Mál nr. 2112038 lagt fram til umræðu í fjölskylduráði, varðandi sameiginlega aðkomu sveitarfélaga að rekstri umdæmisráðs samkvæmt nýrri 13. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Á fundi sviðsstjóra velferðarmála á höfuðborgarsvæðinu hinn 14.09.2022 sl. kom fram að fleiri sveitarfélög, utan Kragans, hefðu óskað eftir aðkomu að sameiginlegri starfssemi umdæmisráðs sem sviðsstjórar á höfuðborgarsvæðinu eru jákvæðir gagnvart, enda í samræmi við markmið laganna um faglegri meðferð barnaverndarmála, aukningu málafjölda til umfjöllunar hjá umdæmisráði og aukna hagkvæmni.
Barna- og fjölskyldustofa hefur lagt fram sniðmát að samningi milli sveitarfélaga um rekstur umdæmisráðs sem sveitarstjórnir þurfa að taka formlega afstöðu til. Sá samningur tekur ekki á rekstrarkostnaði, fjalla þarf um það sérstaklega.
Sviðsstjórar í velferðarþjónustu munu senda sameiginlegt erindi á SSH þar sem óskað er eftir formlegri ákvörðun sveitarstjórna um samstarfið, en umdæmisráð taka formlega til starfa frá og með 01. janúar 2023.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
Fylgiskjöl
Fjölskylduráð Garðabæjar
04
2. fundur
Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 1.02.2022 um nauðsynleg viðbrögð sveitarfélaga vegna breytinga á barnaverndarlögum lagt fram til umræðu.
Mál nr. 2112038 lagt fram til umræðu í fjölskylduráði. Fjölskylduráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samvinnu við sviðsstjóra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, deildarstjóra í barnavernd og Samband íslenskra sveitarfélaga. Fjölskylduráð óskar eftir að fá þær tillögur sem koma úr því samtali til umræðu í ráðinu.
Fjölskylduráð Garðabæjar
05
13. fundur
Lagt er fram til kynningar breytt skipulag barnaverndar, sbr. breytingar á barnaverndarlögum.
Breytingarnar taka gildi að loknum sveitarstjórnarkosningum, þ.e.þann 28. maí 2022.
Breytt skipulag barnaverndar lagt fram til kynningar og tekið til umræðu.
Bæjarráð Garðabæjar
06