1. fundur
1. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
18.01.2023
Kl. 16:00 - 17:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Stuðnings- og stoðþjónusta - Áfrýjun
Áfrýjað er til fjölskylduráðs Garðabæjar ákvörðun afgreiðslufundar stuðnings- og stoðþjónustu frá 20.12.2022 um breytingu á fjölda samþykktra tíma í notendasamningi.
Ákvörðun afgreiðslufundar stuðnings- og stoðþjónustu frá 20.12.2022 er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
02
Umsókn um fjárhagsaðstoð - trygging húsaleigu/ábyrgðaryfirlýsing
Mál nr. 2301235, umsókn um tryggingu/ábyrgðaryfirlýsingu til tryggingar húsaleigu lögð fyrir fjölskylduráð.
Tekið er fyrir mál nr. 2301235, umsókn um tryggingu/ábyrgðaryfirlýsingu til tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
03
Umsókn um fjárhagsaðstoð - námsstyrkur
Mál nr. 2301244, umsókn um námsstyrk lögð fyrir fjölskylduráð.
Tekið er fyrir mál nr. 2301244, umsókn um námsstyrk. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
04
Gott að eldast - aðgerðaáætlun
Viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk var undirrituð 21.06.2022. Þar sem kveðið er á um aukið samstarf og samvinnu varðandi málefni eldra fólks með það markmið að tryggja samhæfða þjónustu við hæfi á réttu þjónustustigi og á réttum tíma. Á það bæði við um stuðningsþjónustu sveitarfélaga og heilbrigðisþjónustu ríkisins. Markmiðið er að tryggja samhæfða þjónustu. Verkefnastjórn hefur það hlutverk að leiða vinnu við heildarendurskoðun þjónustunnar og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára og í framhaldi vinna að innleiðingu og framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar. Í september sl. var haldin vinnustofa um framtíð þjónustu við eldra fólk sem er hluti af vinnu heildarendurskoðunarinnar. Nú hefur verið lögð fram í samráðsgátt drög að þingsályktunartillögu um aðgerðaætlun um þjónustu við eldra fólk 2023-2027. Umsagnarfrestur er til 23.01.2023
Viljayfirlýsing heilbrigðisráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landsambands eldri borgara um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk var undirrituð 21.06.2022. Þar er kveðið á um aukið samstarf og samvinnu varðandi málefni eldra fólks með það markmið að tryggja samhæfða þjónustu við hæfi á réttu þjónustustigi og á réttum tíma. Á það bæði við um stuðningsþjónustu sveitarfélaga og heilbrigðisþjónustu ríkisins. Markmiðið er að tryggja samhæfða þjónustu.
Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023-2027 frá félags- og vinnumarkaðsráðherra ásamt kynningarbæklingnum Gott að eldast, dags. 19.12.2022, lögð fram til kynningar.
05
Tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu varðandi stöðu aðgerða í framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2017-2021
Tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti um stöðu aðgerða í framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2017-2021 lögð fram til kynningar.
Tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti um stöðu aðgerða í framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2017-2021 lögð fram. Fyrir fundinum lá lokagreinargerð Félags- og vinnumarkaðsráðuneytis frá desember 2022 um stöðu aðgerða framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðs fólks 2017-2021.
06
Breytt skipulag barnaverndar (umdæmisráð)
Þann 1. janúar 2023 tók sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar í Kraganum til starfa. Á sama tíma voru barnaverndarnefndir lagðar niður sem áður gegndu úrskurðarhlutverki samkvæmt barnaverndarlögum. Umdæmisráð er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem er skipað þremur ráðsmönnum og jafn mörgum varamönnum til fimm ára í senn: lögfræðingi, sem er formaður ráðsins, félagsráðgjafa og sálfræðingi. Verkefni umdæmisráða barnaverndar er að úrskurða í málum samkvæmt 3. mgr. 13. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Aðalmenn umdæmisráðs Kragans eru:
Ómar Örn Bjarnþórsson, lögfræðingur - formaður
Laufey Þorvaldsdóttir, félagsráðgjafi
Einar Ingi Magnússon, sálfræðingur
Varamenn umdæmisráðs Kragans eru:
Kolbrún Garðarsdóttir, lögfræðingur - varaformaður
Þóra Kemp, félagsráðgjafi
Eva Sjöfn Helgadóttir, sálfræðingur
Þann 1. janúar 2023 tók sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar í Kraganum til starfa. Á sama tíma voru barnaverndarnefndir lagðar niður sem áður gegndu úrskurðarhlutverki samkvæmt barnaverndarlögum. Umdæmisráð er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem er skipað þremur ráðsmönnum og jafn mörgum varamönnum til fimm ára í senn: lögfræðingi, sem er formaður ráðsins, félagsráðgjafa og sálfræðingi. Verkefni umdæmisráða barnaverndar er að úrskurða í málum samkvæmt 3. mgr. 13. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Aðalmenn umdæmisráðs Kragans eru:
Ómar Örn Bjarnþórsson, lögfræðingur - formaður
Laufey Þorvaldsdóttir, félagsráðgjafi
Einar Ingi Magnússon, sálfræðingur
Varamenn umdæmisráðs Kragans eru:
Kolbrún Garðarsdóttir, lögfræðingur - varaformaður
Þóra Kemp, félagsráðgjafi
Eva Sjöfn Helgadóttir, sálfræðingur
Lagt fram.