Gott að eldast - Efling og þróun dagdvala á landsvísu - Skýrsla starfshóps - Mars 2025
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
18. (2166). fundur
Sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti skýrslu starfshóps félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins varðandi eflingu og þróun dagdvala á landsvísu.
Bæjarráð áréttar bókun Öldungaráðs Garðabæjar frá 9. desember 2024 vegna tíu samþykktra dvalarrýma Ísafoldar, þar sem öldungaráð lagði áherslu á að mikilvægt væri að samningar náist sem fyrst þannig að unnt sé að taka viðbótarrýmin í notkun og styðja á þann hátt við dagdvalarþjónustu eldri borgara í Garðabæ.
Fylgiskjöl
Öldungaráð
02
2. fundur
Verkefnið WHODAS.
Kynning á verkefni WHODAS sem snýr að samræmdu mati á færni eldra fólks. Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu fer yfir stöðu verkefnis og svarar fyrirspurnum fundarmanna.
Öldungaráð
03
2. fundur
Efling og þróun dagdvala á landsvísu - Skýrsla starfshóps, mars 2025.
Efling og þróun dagdvala á landsvísu - Skýrsla starfshóps, mars 2025 lögð fram til kynningar og umræðu.
Öldungaráð
04
2. fundur
Kynning á verkefninu Gott að eldast. Berglind Magnúsdóttir, sérfræðingur hjá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu upplýsir um stöðu verkefnis.
Kynning á verkefninu Gott að eldast. Berglind Magnúsdóttir, sérfræðingur hjá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu situr fundinn, upplýsir um stöðu verkefnis og svarar fyrirspurnum fundarmanna.
Fjölskylduráð Garðabæjar
05
8. fundur
Sveitarfélögin Garðabær, Hafnarfjörður og Kópavogur ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sóltúni öldrunarþjónustu ehf. hafa að undanförnu rætt saman um mögulegt samstarf tengt umsókn í þróunarverkefnið "Samþætt heimaþjónusta".
Lokað var fyrir umsóknir í þróunarverkefnið þann 14. sept. sl. og á Garðabær aðild að tveimur umsóknum í verkefnið ásamt sveitarfélögunum,
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sóltúni öldrunarþjónustu ehf.
Sveitarfélögin Garðabær, Hafnarfjörður og Kópavogur ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sóltúni öldrunarþjónustu ehf. hafa að undanförnu rætt saman um mögulegt samstarf tengt umsókn í þróunarverkefnið "Samþætt heimaþjónusta".
Lokað var fyrir umsóknir í þróunarverkefnið þann 14. sept. sl. og á Garðabær aðild að tveimur umsóknum í verkefnið ásamt sveitarfélögunum,
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sóltúni öldrunarþjónustu ehf. Samkvæmt upplýsingum frá verkefnastjóra verkefnsins liggur fyrir að 19 umsóknir bárust í verkefnið. Lagt fram til upplýsingar.
Öldungaráð
06
3. fundur
Félags- og vinnumarkaðsráðherra lagði fram tillögu til þingsályktunar um aðgerðaráætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024-2028 sem samþykkt var á Alþingi þann 10. maí sl. Tillögurnar byggja á stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og viljayfirlýsingu hlutaðeigandi aðila um aukið samstarf í þjónustu við eldra fólk.
Framkvæmdin er á þann veg að skilgreind verða þróunarverkefni til fjögurra ára á grunni aðgerðaáætlunarinnar Gott að eldast. Meginþungi aðgerða í áætluninni felst í þróunarverkefnum þar sem samþætting félags- og heilbrigðisþjónustu í heimahúsum, nýsköpun og prófanir munu nýtast sem grundvöllur að ákvörðunum um framtíðarskipulag þjónustu við eldra fólk.
Vilji var fyrir því að skoða hvort sveitarfélögin Hafnarfjörður, Garðabær og Kópavogur myndu eiga í samstarfi varðandi sameiginlega umsókn í þróunarverkefnið "Samþætt heimaþjónusta" ásamt aðilum úr heilbrigðisþjónustunni og hafa að undanförnu farið fram umræður á milli þessara þriggja sveitarfélaga og hlutaðeigandi aðila. Nú liggur fyrir að Garðabær á aðild að tveimur umsóknum í verkefnið Samþætt heimaþjónusta, með sveitarfélögum, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sóltúni öldrunarþjónustu ehf.

07
7. fundur
Samþætting félags- og heilbrigðisþjónustu.
Þróunarverkefni aðgerðaráætlunar í þjónustu við eldra fólk, samþætting félags- og heilbrigðisþjónustu, til umræðu. Verið er að skoða innan sveitarfélaganna Garðabæjar, Kópavogs og Hafnarfjarðar hvort grundvöllur er til samstarfs um verkefnið.
Fjölskylduráð Garðabæjar
08
6. fundur
Tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu varðandi þróunarverkefni um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum þar sem auglýst er eftir samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir sem vilja vinna að þróunarverkefnum um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Umsóknarfrestur er til 1. september 2023.
Bæjarráð vísaði málinu til kynningar í fjölskylduráði.
Fyrir fundinum lá tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti varðandi þróunarverkefni um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum þar sem auglýst er eftir samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir sem vilja vinna að þróunarverkefnum um samþættinguna.
Bæjarráð vísaði málinu til kynningar í fjölskylduráði. Fjölskyldusvið vinnur að gerð minnisblaðs um mögulega þátttöku Garðabæjar í þróunarverkefni um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Stefnt er að því að minnisblaðið liggi fyrir í haust.
Bæjarráð Garðabæjar
10
23. (2076). fundur
Í tilkynningunni er auglýst eftir samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir sem vilja vinna að þróunarverkefnum um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Umsóknarfrestur er til 1. september 2023.
Bæjarráð felur fjölskyldusviði að gera minnisblað um mögulega þátttöku í verkefninu. Málinu er einnig vísað til kynningar í fjölskylduráði og öldungaráði.
Bæjarráð Garðabæjar
11
21. (2074. fundur
Í tilkynningunni kemur fram að KPMG hefur unnið kostnaðar- og ábatagreiningu fyrir stjórnvöld sem veitir sýn á fjárhagsgögn ríkis og sveitarfélaga og samkeyrir við lýðfræðileg gögn.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í fjölskylduráði og öldungaráði.
Öldungaráð
12
2. fundur
Viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk var undirrituð 21.06.2022. Þar sem kveðið er á um aukið samstarf og samvinnu varðandi málefni eldra fólks með það markmið að tryggja samhæfða þjónustu við hæfi á réttu þjónustustigi og á réttum tíma. Á það bæði við um stuðningsþjónustu sveitarfélaga og heilbrigðisþjónustu ríkisins. Markmiðið er að tryggja samhæfða þjónustu. Verkefnastjórn hefur það hlutverk að leiða vinnu við heildarendurskoðun þjónustunnar og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára og í framhaldi vinna að innleiðingu og framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar. Í september sl. var haldin vinnustofa um framtíð þjónustu við eldra fólk sem er hluti af vinnu heildarendurskoðunarinnar. Í desember voru lögð fram drög að aðgerðaráætlun sem skipt er upp í fimm þætti, hverjum með sínum undirverkefnum. Þeir eru ; Samþætting, Virkni, Upplýsing, Þróun og Heimili.
Aðgerðaráætlun var í desember sett í samráðsgátt stjórnvalda og þar má sjá umsagnir aðila.
Öldungaráð hefur áður fjallað um málið og telur að sá tími sem lagt er upp með í aðgerðaráætlun sé of langur en um er að ræða tímabilið 2023-2027. Öldungaráð styður áætlun um þróunarverkefni tengt samþættri heimaþjónustu þar sem lagt er til að félags- og heilbrigðisþjónusta sem veitt er eldra fólki í heimahúsi verði samþætt undir sameiginlegri mannafla- og fjármálastjórn.
Öldungaráð
13
1. fundur
Viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk var undirrituð 21.06.2022. Þar sem kveðið er á um aukið samstarf og samvinnu varðandi málefni eldra fólks með það markmið að tryggja samhæfða þjónustu við hæfi á réttu þjónustustigi og á réttum tíma. Á það bæði við um stuðningsþjónustu sveitarfélaga og heilbrigðisþjónustu ríkisins. Markmiðið er að tryggja samhæfða þjónustu. Verkefnastjórn hefur það hlutverk að leiða vinnu við heildarendurskoðun þjónustunnar og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára og í framhaldi vinna að innleiðingu og framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar. Í september sl. var haldin vinnustofa um framtíð þjónustu við eldra fólk sem er hluti af vinnu heildarendurskoðunarinnar.

Öldungaráð telur að sá tími sem lagt er upp með í aðgerðaráætlun sé of langur en fram kemur að um sé að ræða tímabilið 2023-2027.
Fjölskylduráð Garðabæjar
14
1. fundur
Viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk var undirrituð 21.06.2022. Þar sem kveðið er á um aukið samstarf og samvinnu varðandi málefni eldra fólks með það markmið að tryggja samhæfða þjónustu við hæfi á réttu þjónustustigi og á réttum tíma. Á það bæði við um stuðningsþjónustu sveitarfélaga og heilbrigðisþjónustu ríkisins. Markmiðið er að tryggja samhæfða þjónustu. Verkefnastjórn hefur það hlutverk að leiða vinnu við heildarendurskoðun þjónustunnar og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára og í framhaldi vinna að innleiðingu og framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar. Í september sl. var haldin vinnustofa um framtíð þjónustu við eldra fólk sem er hluti af vinnu heildarendurskoðunarinnar. Nú hefur verið lögð fram í samráðsgátt drög að þingsályktunartillögu um aðgerðaætlun um þjónustu við eldra fólk 2023-2027. Umsagnarfrestur er til 23.01.2023
Viljayfirlýsing heilbrigðisráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landsambands eldri borgara um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk var undirrituð 21.06.2022. Þar er kveðið á um aukið samstarf og samvinnu varðandi málefni eldra fólks með það markmið að tryggja samhæfða þjónustu við hæfi á réttu þjónustustigi og á réttum tíma. Á það bæði við um stuðningsþjónustu sveitarfélaga og heilbrigðisþjónustu ríkisins. Markmiðið er að tryggja samhæfða þjónustu.
Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023-2027 frá félags- og vinnumarkaðsráðherra ásamt kynningarbæklingnum Gott að eldast, dags. 19.12.2022, lögð fram til kynningar.
Bæjarráð Garðabæjar
15
2. (2055). fundur
Lögð fram og vísað til kynningar í öldungaráði og fjölskylduráði.