Beint í efni

7. fundur

16.08.2023
Fjölskylduráð Garðabæjar

7. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

16.08.2023

Kl. 16:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • María Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Rakel Steinberg Sölvadóttir sat fundinn í fjarveru aðal- og varamanns Viðreisnar.

Dagskrá

Málsnúmer 2301003

01

Gott að eldast - aðgerðaáætlun

Samþætting félags- og heilbrigðisþjónustu.

Þróunarverkefni aðgerðaráætlunar í þjónustu við eldra fólk, samþætting félags- og heilbrigðisþjónustu, til umræðu. Verið er að skoða innan sveitarfélaganna Garðabæjar, Kópavogs og Hafnarfjarðar hvort grundvöllur er til samstarfs um verkefnið.

Málsnúmer 2306307

02

Vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ

Staða verkefnis.

Vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ og staða verkefnis til umræðu. Pála Marie Einarsdóttir umsjónarþroskaþjálfi, sat fundinn undir þessum lið og svaraði spurningum fundarmanna.

Málsnúmer 2109638

03

Búsetukjarni Brekkuás 11

Staða framkvæmda í búsetukjarnanum Brekkuás 11.

Umræður um búsetukjarna í Brekkuási. Í lok umræðna fór fjölskylduráð og skoðaði framkvæmdir í Brekkuási 11, búsetukjarna fyrir fatlað fólk.