Búsetukjarni Brekkuás 11
Málsnúmer 2109638
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
10. fundur
Búsetukjarni við Brekkuás 11 var vígður 6. nóvember sl. Í kjarnanum eru sjö einstaklingsíbúðir fyrir fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir. Aðlögun íbúa í búsetu er hafin.
Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju sinni með nýopnaðan búsetukjarna og þeirri góðu þjónustu sem íbúar munu koma til með að njóta á eigin heimilum.
Fjölskylduráð Garðabæjar
02
7. fundur
Staða framkvæmda í búsetukjarnanum Brekkuás 11.
Umræður um búsetukjarna í Brekkuási. Í lok umræðna fór fjölskylduráð og skoðaði framkvæmdir í Brekkuási 11, búsetukjarna fyrir fatlað fólk.