Beint í efni

10. fundur

15.11.2023
Fjölskylduráð Garðabæjar

10. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

15.11.2023

Kl. 16:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • María Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
  • Pála Marie Einarsdóttir - umsjónarþroskaþjálfi

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2212110

01

Húsbyggingarsjóður Þroskahjálpar - samstarf

Kynning frá Þroskahjálp á húsbyggingasjóði.

Landssamtökin Þroskahjálp reka húsbyggingasjóð sem byggir og kaupir íbúðir sem eru leigðar fötluðu fólki. Markmið sjóðsins er að greiða fyrir að sveitarfélög standi betur og fyrr við lagalegar skuldbindingar sínar um að sjá fötluðu fólki fyrir hentugu húsnæði fyrir leigugjald sem það ræður við.

Þórarinn Snorri Sigurgeirsson, verkefnastjóri reksturs, og Símon Gísli Ólafsson, umsjónarmaður fasteigna hjá Þroskahjálp kynntu húsbyggingasjóð Þroskahjálpar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109638

02

Búsetukjarni Brekkuás 11

Búsetukjarni við Brekkuás 11 var vígður 6. nóvember sl. Í kjarnanum eru sjö einstaklingsíbúðir fyrir fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir. Aðlögun íbúa í búsetu er hafin.

Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju sinni með nýopnaðan búsetukjarna og þeirri góðu þjónustu sem íbúar munu koma til með að njóta á eigin heimilum.

Málsnúmer 2310064

03

Samþykktir Garðabæjar - viðauki v. sviðsstjóra fjölskyldusviðs

Drög að breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar lögð fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar. Málinu hefur verið vísað til fyrri umræðu bæjarstjórnar 16. nóvember nk.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2311256

04

Reglur um stuðningsþjónustu

Drög að reglum um stuðningsþjónustu lögð fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar. Drögum að reglum um stuðningsþjónustu hefur verið vísað til bæjarstjórnar 16. nóvember nk. til afgreiðslu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2311256

05

Reglur um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir

Drög að reglum um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir lögð fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar. Drögum að reglum um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir hefur verið vísað til bæjarstjórnar 16. nóvember nk. til afgreiðslu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2311257

06

Reglur um notendasamninga

Drög að reglum um notendasamninga lögð fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar. Drögum að reglum um notendasamninga hefur verið vísað til bæjarstjórnar 16. nóvember nk. til afgreiðslu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2301082

07

Jafnréttisáætlun Garðabæjar 2023-2026

Vinna við gerð jafnréttisáætlunar Garðabæjar fyrir árin 2023-2026.

Umræður um efni jafnréttisáætlunar Garðabæjar og endurskoðaðrar aðgerðaráætlunar á grundvelli hennar. Fjölskylduráð mun vinna að gerð tillagna að aðgerðaráætlun fyrir næsta fund ráðsins. Starfsfólk fjölskyldusviðs mun óska eftir samráði annarra sviða við endurskoðun áætlunarinnar. Stefnt er að því að fyrstu drög liggi fyrir í desember nk. og tillaga verði lögð fyrir bæjarstjórn vorið 2024.