Tillaga að breytingu á samþykktum Garðabæjar nr. 1182/2022, viðauki IV - síðari umræða.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
18. (933). fundur
Lögð fram til afgreiðslu tillaga að breytingum á samþykktum Garðabæjar nr. 1182/2022 ásamt viðauka IV . Um er að ræða breytingu á heiti fjölskylduráðs í velferðarráðs og viðauka um embættisafgreiðslur sviðsstjóra velferðarsviðs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að breytingu á samþykktum Garðabæjar nr. 1182/2022 ásamt viðauka IV.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
16. (931). fundur
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að breytingu á samþykktum Garðabæjar og einnig reglum sem eru til afgreiðslu samkvæmt dagskrárliðum 9, 10 og 11. Bæjarstjóri þakkaði öllum sem komið hafa að undirbúningi málsins fyrir þeirra hlut að máli og hrósaði starfsmönnum fyrir góð og vönduð vinnubrögð.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls. Gunnar Valur sagði frá umræðu í fjölskylduráði og tók undir þakkir til starfsmanna sem komið hafa að undirbúningi málsins.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögu að breytingu á samþykktum Garðabæjar nr. 1182/2022 ? Viðauka IV til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Fjölskylduráð Garðabæjar
03
10. fundur
Drög að breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar. Málinu hefur verið vísað til fyrri umræðu bæjarstjórnar 16. nóvember nk.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
04
43.(2096). fundur
Á fund bæjarráðs komu Sigríður Logadóttir, persónuverndarfulltrúi og lögfræðingur og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði. Gerðu þær grein fyrir tillögu að breytingu á samþykktum Garðabæjar er varðar viðauka IV um embættisafgreiðslur sviðsstjóra fjölskyldusviðs ásamt því að gera grein fyrir drögum að reglum um stuðningsþjónustu, drögum að reglum um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og drögum að reglum um notendasamninga, sbr. dagskrárliðir 14, 15 og 16.
Bæjarráð vísar tillögu að breytingu á samþykktum Garðabæjar ásamt viðauka IV til fyrri umræðu í bæjarstjórn.