8. fundur
8. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
27.09.2023
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Pála Marie Einarsdóttir - umsjónarþroskaþjálfi
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Gott að eldast - aðgerðaáætlun
Sveitarfélögin Garðabær, Hafnarfjörður og Kópavogur ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sóltúni öldrunarþjónustu ehf. hafa að undanförnu rætt saman um mögulegt samstarf tengt umsókn í þróunarverkefnið "Samþætt heimaþjónusta".
Lokað var fyrir umsóknir í þróunarverkefnið þann 14. sept. sl. og á Garðabær aðild að tveimur umsóknum í verkefnið ásamt sveitarfélögunum,
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sóltúni öldrunarþjónustu ehf.
Sveitarfélögin Garðabær, Hafnarfjörður og Kópavogur ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sóltúni öldrunarþjónustu ehf. hafa að undanförnu rætt saman um mögulegt samstarf tengt umsókn í þróunarverkefnið "Samþætt heimaþjónusta".
Lokað var fyrir umsóknir í þróunarverkefnið þann 14. sept. sl. og á Garðabær aðild að tveimur umsóknum í verkefnið ásamt sveitarfélögunum,
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sóltúni öldrunarþjónustu ehf. Samkvæmt upplýsingum frá verkefnastjóra verkefnsins liggur fyrir að 19 umsóknir bárust í verkefnið. Lagt fram til upplýsingar.
02
Tillögur að fyrirkomulagi þjónustu við börn með fjölþættan vanda.
Skýrsla frá mennta- og barnamálaráðuneytinu um tillögur starfshóps að fyrirkomulagi þjónustu við börn með fjölþættan vanda er lögð fram til kynningar.
Skýrsla frá mennta- og barnamálaráðuneytinu um tillögur starfshóps að fyrirkomulagi þjónustu við börn með fjölþættan vanda er lögð fram til kynningar.
Í skýrslunni eru lagðar fram 14 tillögur ásamt kostnaðarmati. Niðurstöður kostnaðarmatsins sýna að hægt er að ná umtalsverðri hagræðingu í rekstri þjónustu við börn með fjölþættan vanda.
Fjölskyldusvið mun fylgjast með framvindu málsins.
03
Tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar 2023 til ágúst 2023 lögð fram til umræðu og kynningar.
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar 2023 til ágúst 2023 lögð fram til umræðu og kynningar. Guðrún Willardsdóttir félagsráðgjafi og Anna Eygló Karlsdóttir deildarstjóri í barnavernd sitja fundinn undir þessum lið og svara fyrirspurnum fundarmanna.
04
Erindi vegna félagslegs húsnæðis
Mál nr. 190211, erindi húsfélags til fjölskyldusviðs Garðabæjar vegna íbúa í félagslegu leiguhúsnæði Garðabæjar lagt fyrir fjölskylduráð.
Tekið fyrir mál nr. 190211, fjölskylduráð fjallar um málið. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.