Beint í efni

2. fundur

15.05.2023
Öldungaráð

2. fundur

Öldungaráð

í Ísafold, Strikinu 3

15.05.2023

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Ólafur J Proppé - aðalmaður
  • Margrét Björnsdóttir - aðalmaður
  • Þóra Gunnarsdóttir - forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2211434

01

Kynning fyrir öldungaráð

Kynning á starfsemi Ísafoldar, hjúkrunarheimilis og dagdvalar.

Rannveig Albína Norðdhal hjúkrunardeildarstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið, kynnti starfsemi Ísafoldar hjúkrunarheimilis og dagdvalar og svaraði fyrirspurnum.

Málsnúmer 2304082

02

Fjölgun rýma í dagdvöl Ísafoldar

Minnisblað um fjölgun rýma í dagdvöl Hrafnistu var til umræðu í bæjarráði þann 18. apríl sl. Bæjarráð samþykkti að Garðabær styddi við umsókn Hrafnistu um fjölgun á dagdvalarrýmum á Ísafold úr 20 í 30 enda lægi fyrir að þörfin væri brýn og almenn ánægja væri með þjónustu dagdvalar Ísafoldar hjá þjónustuþegum og aðstandendum.

Minnisblað um fjölgun rýma í dagdvöl Hrafnistu lagt fram til kynningar. Öldungaráð styður heilshugar við umsókn Hrafnistu og Garðabæjar um fjölgun dagdvalarrýma á Ísafold úr 20 í 30, enda þörfin afar brýn.

Málsnúmer 2301003

03

Gott að eldast - aðgerðaáætlun

Viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk var undirrituð 21.06.2022. Þar sem kveðið er á um aukið samstarf og samvinnu varðandi málefni eldra fólks með það markmið að tryggja samhæfða þjónustu við hæfi á réttu þjónustustigi og á réttum tíma. Á það bæði við um stuðningsþjónustu sveitarfélaga og heilbrigðisþjónustu ríkisins. Markmiðið er að tryggja samhæfða þjónustu. Verkefnastjórn hefur það hlutverk að leiða vinnu við heildarendurskoðun þjónustunnar og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára og í framhaldi vinna að innleiðingu og framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar. Í september sl. var haldin vinnustofa um framtíð þjónustu við eldra fólk sem er hluti af vinnu heildarendurskoðunarinnar. Í desember voru lögð fram drög að aðgerðaráætlun sem skipt er upp í fimm þætti, hverjum með sínum undirverkefnum. Þeir eru ; Samþætting, Virkni, Upplýsing, Þróun og Heimili.

Aðgerðaráætlun var í desember sett í samráðsgátt stjórnvalda og þar má sjá umsagnir aðila.

Öldungaráð hefur áður fjallað um málið og telur að sá tími sem lagt er upp með í aðgerðaráætlun sé of langur en um er að ræða tímabilið 2023-2027. Öldungaráð styður áætlun um þróunarverkefni tengt samþættri heimaþjónustu þar sem lagt er til að félags- og heilbrigðisþjónusta sem veitt er eldra fólki í heimahúsi verði samþætt undir sameiginlegri mannafla- og fjármálastjórn.

Málsnúmer 2203422

04

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og almenningssamgöngur

Kynning á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og almenningssamgöngur.

Anna Kristín Guðmundsdóttir, frá Landslagi, kynnti Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og almenningssamgöngur.

Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála hjá Garðabæ, sat fundinn undir þessum dagskrárlið og svaraði fyrirspurnum. Stefnt er að kynningu á stígakerfinu fyrir félög eldri borgara í haust.

Málsnúmer 2111356

05

Lagfæringar/breytingar á Jónshúsi

Kynning á stöðu framkvæmda í Jónshúsi.

Kynning á stöðu framkvæmda í Jónshúsi.

Málsnúmer 2305179

06

Skilabréf starfshóps um hagsmunafullrúa eldra fólks

Kynning á verkefnum starfshóps um hagsmunafulltrúa eldra fólks.

Stefanía Magnúsdóttir, fulltrúi í öldungaráði, sem hefur setið i starfshóp á vegum Félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins kynnir starf hópsins en hann hefur nú sent frá sér skilabréf.

Málsnúmer 2305140

07

Aðalfundur Öldrunarráðs Íslands 2023.

Fundarboð aðalfundar Öldrunaráðs Íslands lagt fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar. Formaður öldungaráðs mun sækja fundinn.