Lagfæringar/breytingar á Jónshúsi
Ferill máls
Öldungaráð
01
3. fundur
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að endurbótum í Jónshúsi félagsmiðstöð eldri borgara í Garðabæ og hefur húsið nú verið opnað á nýjan leik og starfsemin komin vel af stað.
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að endurbótum í Jónshúsi félagsmiðstöð eldri borgara í Garðabæ og hefur húsið nú verið opnað á nýjan leik og starfsemin komin vel af stað. Öldungaráð telur breytingarnar vel heppnaðar og mæta þörf fyrir aukna aðsókn að starfinu.
Öldungaráð
02
2. fundur
Kynning á stöðu framkvæmda í Jónshúsi.
Kynning á stöðu framkvæmda í Jónshúsi.
Öldungaráð
03
2. fundur
Mál nr. 2111356, staðan á máli er varðar lagfæringar, breytingar á Jónshúsi tekin til umfjöllunar.
Mál nr. 2111356, tekið til umræðu. Umsjónarmaður félagsstarfs eldri borgara í Jónshúsi, leggur fram yfirlit yfir tillögur að endurbótum í Jónshúsi. Tillögurnar snúa að auknu rými fyrir starfsemina og gesti. Ráðsmenn lásu yfir tillögurnar og skoðuðu aðstöðuna í Jónshúsi samhliða. Leitað verður til umsjónarmanns fasteigna og tæknimála til að meta umfang og kostnað verkefnisins.
Öldungaráð
04
1. fundur
Mál nr. 2111356, lagt fram til kynningar og umræðu, lagfæringar/breytingar á Jónshúsi. Aðsókn að félagsstarfi í Jónshúsi hefur verið að aukast umtalsvert undanfarið og hefur sú fjölgun kallað á umræður um möguleika til stækkunar á aðstöðunni. Haldnir hafa verið fundir með formanni félags eldri borgara ásamt starfsmönnum eignaumsjónar og fjölskyldusviðs ásamt arkitekt sem hannaði á sínum tíma Jónshús. Fram hafa komið hugmyndir um stækkun út í garð og einnig breytingar innanhúss sem eru áhugaverðar og til skoðunar hjá hópnum.
Mál nr. 2111356, lagfæringar, breytingar í Jónshúsi, lagt fram kynningar og umfjöllunar. Góðar umræður urðu um málið á fundinum. Horfa þarf til þeirrar starfsemi sem fram fer í Jónshúsi samhliða þeim breytingum sem gerðar verða á innra rými og skipulagi Jónshúss. Öldungaráð styður við tillögur sem snúa að breytingum á Jónshúsi til að mæta þörf fyrir aukna aðsókn í félagsstarfið.