Beint í efni

2. fundur

04.05.2022
Öldungaráð

2. fundur

Öldungaráð

í Jónshúsi

04.05.2022

Kl. 08:30 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Rúnar Símonarson - aðalmaður
  • Ólafur J Proppé - aðalmaður
  • Margrét Björnsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þóra Gunnarsdóttir - forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2201437

01

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021

Mál nr. 2201437, lagt fram til kynningar, þjónustukönnun Gallup 2021. Markmiðið er að kanna ánægju með þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins og gera samanburð þar ásamt því að skoða breytingar frá fyrri mælingum.

Mál nr. 2201437, lagt fram til kynningar. Öldungaráð lýsir yfir ánægju með niðurstöður íbúakönnunar Gallup, varðandi þá þætti er snúa að þjónustu við eldri borgara í sveitarfélaginu.

Málsnúmer 2111356

02

Lagfæringar/breytingar á Jónshúsi

Mál nr. 2111356, staðan á máli er varðar lagfæringar, breytingar á Jónshúsi tekin til umfjöllunar.











Mál nr. 2111356, tekið til umræðu. Umsjónarmaður félagsstarfs eldri borgara í Jónshúsi, leggur fram yfirlit yfir tillögur að endurbótum í Jónshúsi. Tillögurnar snúa að auknu rými fyrir starfsemina og gesti. Ráðsmenn lásu yfir tillögurnar og skoðuðu aðstöðuna í Jónshúsi samhliða. Leitað verður til umsjónarmanns fasteigna og tæknimála til að meta umfang og kostnað verkefnisins.

Málsnúmer 2106019

03

Samstarfssamningur við FEBG

Mál nr. 2106019, samstarfssamningur við FEBG. Í fylgiskjali liggur fyrir samantekt um hreyfingu og annað er varðar bætta heilsu eldri íbúa í Garðabæ svo og umfjöllun un inntak samnings sem gildir út árið 2022.

Mál nr. 2106019, tekið til umræðu. Aðilar sammála um að vel hafi tekist til að efla og auka þátttöku eldri borgara í hreyfingu og félagsstarfi og að áhugi sé á að halda áfram með verkefnið í samstarfi við Félög eldri borgara.

Málsnúmer 2103259

04

Átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna í samvinnu við sveitarfélögin,

Tekið er fyrir mál nr. 2103259, Aukið félagsstarf fullorðinna árið 2022 vegna COVID-19.

Félags- og vinnumarkaðsráðherra hvetur sveitarfélög til að efla félagsstarf fullorðinna á árinu 2022, með það að markmiði að rjúfa félagslega einangrun sem orðið hefur vegna COVID-19. Eldri borgarar hafa víða þurft að þola skerta samveru og félagslega einangrun vegna samkomutakmarkana og sjálfsskipaðrar sóttkvíar. Af þeim sökum er sérstaklega mikilvægt að leggja aukna áherslu á frístundaiðkun, geðrækt, hreyfingu, tæknilæsi og forvarnir með það að markmiðið að auka lífsgæði og heilbrigði fólks, fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun.

Mál nr. 2103259, tekið til umfjöllunar. Öldungaráð telur mikilvægt að nýta styrkinn til þess að efla félagsstarf eldri borgara í sumar með það að markmiði að rjúfa félagslega einangrun og auka frístundaðiðkun.